32022L0738

Directive (EU) 2022/738 of the European Parliament and of the Council of 6 April 2022 amending Directive 2006/1/EC on the use of vehicles hired without drivers for the carriage of goods by road


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Verið er að gera breytingar á ákvæðum um leigu ökutækja til vöruflutninga án ökumanns. Breytingarnar eiga að vera til að létta undir með þeim sem taka þau á leigu. Gerðin er á sviði innviðaráðuneytisins.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmið tillögunnar er að einfalda reglur um notkun ökutækja sem tekin eru á leigu. Á það að leiða til lægri rekstrarkostnaðar, aukins sveigjanleika og arðsemi rekstraraðila. Þessu til viðbótar á það að auðvelda eftirlit með lögmæti flutningastarfsemi sem framkvæmt er af fyrirtækjum í öðrum aðildarríkjum en staðfestuaðildarríki þeirra.Aðdragandi: Með tilskipun 2006/1/EB var kveðið á um lágmarksopnun markaðarins fyrir notkun leigðra ökutækja án ökumanna til flutninga á vörum á vegum.Með því að leigja ökutæki geta rekstraraðilar lækkað rekstrarkostnað og aukið sveigjanleika í rekstri. Það eykur framleiðni og samkeppnishæfni. Þar að auki, eru leigð ökutæki oft yngri, öruggari og umhverfisvænni.Ákvæði tilskipunar 2006/1/EB koma í veg fyrir að fyrirtæki njóti til fulls þeirra kosta sem fylgja því að leigja ökutæki. Aðildarríkjunum er heimilt að takmarka notkun fyrirtækja á ökutækjum sem tekin eru á leigu með leyfilega hámarksþyngd yfir 6 tonnum. Þar að auki eru aðildarríkjunum ekki skylt að leyfa notkun leigðs ökutækis á sínu yfirráðasvæði ef ökutækið hefur verið skráð eða sett í umferð af öðru aðildarríki en því sem fyrirtækið hefur staðfestu í.Til að gera fyrirtækjum kleift að njóta enn frekar góðs af þeim kostum sem fylgja því að leigja ökutæki ætti að vera mögulegt að leigja ökutæki frá öðrum aðildarríkjum. Það myndi auðvelda fyrirtækjum að mæta árstíðabundinni eða tímabundinni eftirspurn eða til að skipta út gölluðu eða ónýtu ökutæki.Aðildarríkjum ætti ekki að vera heimilt að takmarka notkun á leigðum ökutækjum á sínu yfirráðasvæði þó það hafi verið skráð eða sett löglega í umferð af öðru aðildarríki.Engu að síður ættu aðildarríkin að eiga kost á því að takmarka þann tíma sem fyrirtæki á þeirra yfirráðasvæði má leigja ökutæki frá öðru aðildarríki. Þau ættu að geta krafist skráningar að því tilskildu þó heimild sé til að keyra án skráningar í a.m.k. 30 daga. Aðildarríkjum ætti einnig að vera heimilt að takmarka fjölda slíkra ökutækja. Þessar heimildir aðildarríkjanna byggja á skattalegum sjónarmiðum.Umferð ökutækja sem tekin eru á leigu ætti ekki að torvelda eftirlit með lögmæti flutningastarfsemi fyrirtækjum sem starfa utan staðfesturíkis. Í samræmi við reglugerð nr. 1071/2009/EB skulu innlendar rafrænar skrár innihalda skráningarnúmer ökutækja sem flutningafyrirtæki hefur til umráða. Í þeim skrám ættu að vera upplýsingar um öll ökutæki sem eru leigð í öðru aðildarríki en staðfestuaðildarríki fyrirtækisins. Framangreind reglugerð kveður einnig á um aðgengi lögbærra yfirvalda annarra aðildarríkja að gögnum sem eru í rafrænum landsskrám. Í innlendum skrám ætti einnig að vera hægt að fletta upp ökutækjum með frá öðrum aðildarríkjum en staðfestuaðildarríkinu.Aðildarríkjum ætti ekki að vera heimilt að takmarka notkun ökutækja sem tekin hafa verið á leigu til flutning í eigin þágu. Framkvæmdastjórnin ætti að fylgjast með framkvæmd og áhrifum tilskipunar 2006/1/EB og gera skýrslu í síðasta lagi 4 árum eftir innleiðingu þessarar tilskipunar sem hér er gerð tillaga að. Í skýrslunni ætti að taka tillit til áhrifa þessarar tilskipunar á umferðaröryggi. Jafnframt ætti að meta áhrif á umhverfi út frá breytingum á aldurs- og tegundasamsetningu ökutækjaflotans. Þá ætti að meta áhrif á skatttekjur með tilliti til notkunar slíkra sjónarmiða við takmarkanir sem heimilar eru samkvæmt tilskipuninni. Einnig ætti að meta hvort innleiðing tilskipunarinnar skapi erfiðleika við framfylgd reglna, þ. á. m. fyrir ferðaþjónustu.Efnisútdráttur: Tilskipunin inniheldur fjórar greinar:Í 1. gr. eru gerðar eftirfarandi breytingar á tilskipun 2006/1/EB:•      1) Í 2. gr. tilskipunarinnar kemur fram að hvert aðildarríki skuli heimila notkun leigðra ökutækja á sínu yfirráðasvæði sem eru leigð af fyrirtækjum í öðrum aðildarríki að því tilskildu að: a) ökutækið sé skráð eða tekið í umferð samkvæmt gildandi lögum hvers aðildarríkis, ef við á, notað í samræmi við reglugerðir 1071/2009/EB og 1072/2009/EB.•      2) Texti 3. gr. er uppfærður. Breytingarnar kveða á um að ef leigt ökutæki er skráð og tekið í umferð í samræmi við lög annars aðildarríkis getur staðfestuaðildarríki flutningafyrirtækis:a) takmarkað notkunartíma hins leigða ökutækis á yfirráðasvæði þess að því tilskildu að flutningafyrirtækinu sé leyft að nota hið leigða ökutæki í að minnsta kosti tvo mánuði samfellt á hverju almanaksári; í því tilviki getur aðildarríkið krafist þess að leigusamningurinn gildi ekki lengur en það tímamark sem aðildarríki setur.b) krafist þess að leigða ökutækið sé skráð í samræmi við landsbundnar skráningarreglur e. national registration rules eftir að minnsta kosti 30 daga tímabil; í því tilviki getur aðildarríki krafist þess að leigusamningurinn gildi ekki lengur en það tímamark sem líður fyrir skráningarskylduna.c) takmarkað fjölda leigðra ökutækja sem fyrirtæki mega nota, að því tilskildu að lágmarksfjöldi leigðra ökutækja sé að minnsta kosti 25% af vörubílaflota sem fyrirtækið hefur til umráða skv. g-liðar 1. gr. 5. gr. reglugerðar nr. 1071/2009/EB, en ef fyrirtæki hefur fleiri en eitt og færri en fjögur ökutæki til umráða skal því heimilt að nota að minnsta kosti eitt slíkt ökutæki.d) takmarkað notkun leigðra ökutækja fyrir eigin reikning•      3) Ákvæði 3a er bætt við tilskipunina.•      1. mgr.: Aðildarríki skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að númer leigðra ökutækja sem notað er af vöruflutningafyrirtækjum sé skráð í rafræna landsskrá sbr. 16. gr. reglugerðar nr. 1071/2009/EB.•      2. mgr.: Lögbær yfirvöld aðildarríkjanna skulu hafa náið samstarf og veita hvert öðru gagnkvæma aðstoð á skjótan hátt og allar viðeigandi upplýsingar sem auðvelda framkvæmd og framfylgd þessarar tilskipunar. Í því skyni skal hvert aðildarríki tilnefna innlendan tengilið sem ber ábyrgð á upplýsingaskiptum við önnur aðildarríki.•      3. mgr.-9. mgr.: fjallað nánar um meðferð upplýsinganna og veitingu þeirra. Kemur þar fram að setja skal upplýsingar inn í ERRU kerfið, sbr. reglugerð (ESB) 2016/480.Í 9. tl. kemur fram að tryggja skuli að vegaeftirlit ríkja hafi aðgang að upplýsingunum í 1. mgr.•      4) Ákvæði 5a er bætt við tilskipunina. Fjallað um skýrslu sem framkvæmdastjórnin skal leggja fyrir Evrópuþingið og ráðið um framkvæmd og áhrif þessarar tilskipunar fyrir 7. ágúst 2027. Á grundvelli þeirrar skýrslu skal framkvæmdastjórnin meta hvort nauðsynlegt sé að leggja til viðbótarráðstafanir.•      5) Ákvæði 5b er bætt við tilskipunina. Þar kemur fram að framkvæmdastjórnin skuli njóta aðstoðar nefndarinnar sem komið var á fót með 1. mgr. 42. gr. reglugerðar nr. 165/2014/EB.Í 2. gr. kemur fram að frestur aðildarríkjanna til að aðlaga regluverk sitt að tilskipuninni og upplýsa framkvæmdastjórnina þar um er fram til 6. ágúst 2023.Í 3. gr. er gildistökuákvæði. Kemur þar fram að gerðin taki gildi 20 dögum eftir birtingu.Í 4. gr. er tilskipuninni beint til aðildarríkjanna.Umsögn: helstu breytingar,  mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Ekki er að sjá að gerðin hafi áhrif á starfsemi Samgöngustofu. Þegar Samgöngustofa gefur út rekstrarleyfi til farmflutninga eru alltaf skráð ökutæki sem tilheyra rekstrinum, þ. á m. bílnúmer. Ekki eru í gildi takmarkanir á því hvort ökutækið sé skráð á Íslandi eða í öðru ríki EES-svæðisins. Samgöngustofa hefur nokkrum sinnum gefið út bandalagsleyfi til farmflutninga. Þeir sem það hafa fengið hafa verið með íslensk ökutæki sem skráð voru á leyfið. Engar reglur koma í veg fyrir að slíkir aðilar ættu að gera skráð ökutæki á evrópskum bílnúmerum.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Skoða þarf þörf á innleiðingu með hliðsjón af lögum nr. 28/2017 um farþegaflutninga og farmflutninga á landi og lögum nr. 65/2015 um leigu skráningarskyldra ökutækja og reglugerðum sem af þeim leiða.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Nei.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Já, við menningar- og viðskiptaráðuneytið.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta lög nr. 28/2017 um farþegaflutninga og farmflutninga á landi og lögum nr. 65/2015 um leigu skráningarskyldra ökutækja
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022L0738
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 137, 16.5.2022, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2017) 282
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB