32022L1632

Commission Delegated Directive (EU) 2022/1632 of 12 May 2022 amending, for the purposes of adapting to scientific and technical progress, Annex IV to Directive 2011/65/EU of the European Parliament and of the Council as regards an exemption for the use of lead in certain magnetic resonance imaging devices


iceland-flag
Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1632 frá 12. maí 2022 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir notkun blýs í tiltekin segulómtæki, í því skyni að laga viðaukann að framförum á sviði vísinda og tækni
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 307/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Í þessari tilskipun er gildistími undanþágu, sem leyfir notkun blýs í lóðningarefni, húðum á úttakstengjum á rafmagns- og rafeindaíhlutum og prentplötum og tengingum raftauga, hlífa og umluktra tengja, framlengdur fyrir tiltekinn búnað í MRI-tækjum. Undanþágan er þannig framlengd en gildissvið hennar þrengt.

Nánari efnisumfjöllun

Í II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB er listi yfir efni sem raf- og rafeindabúnaður má ekki innihalda skv. 1. mgr. 4. gr. tilskipunarinnar. Í IV. viðauka er listi yfir undanþágur frá framangreindum takmörkunum. Undanþágur í IV. viðauka eiga sérstaklega við um lækningatæki og tæki til vöktunar og eftirlits.Blý er á meðal bönnuðu efnanna í II. viðauka en í 27. lið IV. viðauka er veitt undanþága sem heimilar notkun á blýi í lóðningarefni, húðum á úttakstengjum á rafmagns- og rafeindaíhlutum og prentplötum og tengingum raftauga, hlífa og umluktra tengja í tilteknum búnaði. Gildistími undanþágunnar var til 30. júní 2020 en 12. desember 2018, innan tilgreindra tímamarka, barst framkvæmdastjórninni beiðni um endurnýjun á undanþágunni. Í samræmi við ákvæði tilskipunarinnar gildir undanþágan þar til ákvörðun hefur verið tekin um afgreiðslu endurnýjunarinnar.Í þessari tilskipun er tveim nýjum stafliðum, c og d, bætt við undanþáguna í 27. lið IV. viðauka. Nýju stafliðirnir framlengja gildistíma undanþágunnar til 30. júní 2027 en aðeins fyrir hluta þess búnaðar sem hún gilti fyrir áður. Um er að ræða búnað (MRI-tæki) þar sem blýlausir staðgöngukostir eru ekki tæknilega mögulegir og framlenging undanþágunnar fyrir þennan búnað kemur þannig í veg fyrir ótímabæra úreldingu slíks búnaðar.Aðildarríkin skulu samþykkja og birta regluverk sem innleiðir þessa breytingu innan 5 mánaða frá gildistöku tilskipunarinnar.Tilskipunin tekur gildi á tuttugasta degi eftir birtingu hennar í stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf tilskipunina með breytingu á reglugerð nr. 630/2014 um takmarkanir á notkun tiltekinna, hættulegra efna í raf- og rafeindabúnaði. Lagastoð er í 9. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022L1632
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 245, 22.9.2022, p. 48
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2022)3041
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 48, 29.6.2023, p. 31
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 164, 29.6.2023, p. 31