32022R0203

Commission Implementing Regulation (EU) 2022/203 of 14 February 2022 amending Regulation (EU) No 748/2012 as regards management systems and occurrence-reporting systems to be established by competent authorities, and correcting Regulation (EU) No 748/2012 as regards the issuance of airworthiness review certificates


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/203 frá 14. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar stjórnunarkerfi og tilkynningarkerfi um atvik, sem lögbær yfirvöld eiga að koma á fót, og um leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar útgáfu lofthæfistaðfestingarvottorða
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem hún er háð gildistöku annarra ákvarðanna sameiginlegu nefndarinnar
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 130/2023

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Verið er að breyta ákvæðum reglugerðar (ESB) 748/2012 um stjórnkerfi og atvikatilkynningakerfi sem lögbær stjórnvöld koma á fót. Auk þess er um að ræða leiðréttingu á ákvæðum reglugerðar (ESB) 748/2012 um útgáfu lofthæfiskírteina. Breytingarnar snúa aðallega að ákvæðum um innleiðingu öryggisstjórnunarkerfa hjá hönnunarfyrirtækjum.
Reglugerðin kveður meðal annars á um að lögbær landsyfirvöld skuli gera kröfu um að hönnunarfyrirtæki sem falla undir I. viðauka við reglugerð (ESB) 748/2012 innleiði öryggisstjórnunarkerfi. Þá er öllum samþykktum hönnunarfyrirtækjum einnig skylt að koma á fót tilkynningakerfi vegna atvika.
Tiltekin ákvæði reglugerðar (ESB) 748/2012 eru leiðrétt til að samræma hana ákvæðum um útgáfu lofthæfistaðfestingarvottorða samkvæmt reglugerð (ESB) 2021/699.
Lítil áhrif hér á landi og ekki kostnaður fyrir hið opinbera.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Um er að ræða framkvæmdareglugerð um breytingu á ákvæðum reglugerðar (ESB) 748/2012 um stjórnkerfi og atvikatilkynningakerfi sem lögbær stjórnvöld koma á fót. Auk þess er um að ræða leiðréttingu á ákvæðum reglugerðar (ESB) 748/2012 um útgáfu lofthæfiskírteina.  Aðdragandi: Í reglugerð (ESB) nr. 748/2012 er mælt fyrir um sameiginlegar tæknikröfur fyrir hönnun og framleiðslu borgaralegra loftfara svo og hreyfla, skrúfa og hluta.Samkvæmt reglugerð (ESB) 2018/1139 verða hönnunarfyrirtæki sem hanna og framleiða hreyfla, skrúfur og hluti fyrir borgaraleg loftför að innleiða stjórnunarkerfi í samræmi við tegund starfsemi. Stjórnkerfin skulu meðal annars tryggja öryggisáhættu og að farið sé að grunnkröfum. Þá skal stöðugt unnið að endurbótum kerfanna.Efnisútdráttur: Með þessari reglugerð er tilteknum ákvæðum reglugerðar (ESB) 748/2012 breytt sem og viðaukum við hana.Breytingarnar snúa aðallega að ákvæðum um innleiðingu öryggisstjórnunarkerfa hjá hönnunarfyrirtækjum.Reglugerðin kveður meðal annars á um að lögbær landsyfirvöld skuli gera kröfu um að hönnunarfyrirtæki sem falla undir I. viðauka við reglugerð (ESB) 748/2012 innleiði öryggisstjórnunarkerfi. Þá er öllum samþykktum hönnunarfyrirtækjum  einnig skylt að koma á fót tilkynningakerfi vegna atvika.Því eru gerðar breytingar á ákvæðum I viðauka reglugerðar (ESB) 748/2012 til að tryggja að atvikatilkynningakerfi sé hluti stjórnunarkerfis og að kröfurnar séu í samræmi við kröfur reglugerðar (ESB) 376/2014.Tiltekin ákvæði reglugerðar (ESB) 748/2012 eru leiðrétt til að samræma hana ákvæðum um útgáfu lofthæfistaðfestingarvottorða samkvæmt reglugerð (ESB) 2021/699.Viðeigandi aðlögunartímabil verður gefið áður en ákvæði gerðarinnar koma til framkvæmda, en framkvæmdadagsetning liggur ekki fyrir í texta gerðarinnar.Umsögn: helstu breytingar,  mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Reglugerðin á einkum við um lögbær landsyfirvöld sem hafa eftirlit með hönnunarfyrirtækjum á sviði upphafslofthæfis.Áhrifin eru ekki mikil fyrir Ísland þar sem Samgöngustofa telst ekki vera lögbært landsyfirvald fyrir hönnunarfyrirtæki og engin framleiðslufyrirtæki fyrir loftför og íhluti til staðar hér á landi.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum.Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.  Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Gerðin felur ekki í sér kostnað fyrir Samgöngustofu. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin er 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 380/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022R0203
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 33, 15.2.2022, p. 46
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D076051/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 81, 9.11.2023, p. 97
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/02273, 9.11.2023