32022R0255

Commission Delegated Regulation (EU) 2022/255 of 15 December 2021 amending Council Regulation (EEC) No 95/93 as regards the extension of measures for temporary relief from the slot utilisation rules due to the COVID-19 crisis


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/255 frá 15. desember 2021 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 95/93 að því er varðar rýmkun ráðstafana með tilliti til tímabundinnar tilslökunar á reglum um nýtingu afgreiðslutíma vegna COVID-19-hættuástandsins
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 079/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Markmið með gerðinni er að koma til móts við flugrekendur sem geta ekki vegna áhrifa COVID-19 nýtt afgeiðslutíma sem þeim hefur verið úthlutaður í 80% tilvika eins og áskilið er samkvæmt reglugerð (EBE) nr. 95/93 skv. svokallaðri use-it or loose it reglu. Með reglugerðinni er undanþága frá fullri nýtingu afgreiðslutíma framlengd þannig að hún nái einnig yfir sumartímabilið 2022, þ.e. frá 27. mars 2022 til 29. október 2022. Á því tímabili er gert ráð fyrir að flugrekandi nýti afgreiðslutíma sinn í 50% tilvika í stað 80%. Áhrif eingöngu jákvæð. Enginn kostnaður.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmið með gerðinni er að koma til móts við flugrekendur sem geta ekki vegna áhrifa COVID-19 nýtt afgeiðslutíma sem þeim hefur verið úthlutaður í 80% tilvika eins og áskilið er samkvæmt reglugerð (EBE) nr. 95/93 skv. svokallaðri use-it or loose it reglu. Efnisútdráttur: Í reglugerð (EBE) nr. 95/93 er kveðið á um skyldu flugrekenda til að nýta úthlutaða afgreiðslutíma á flugvöllum í 80% tilvika innan úthlutunartímabils en að öðrum kosti missa þá, e. use-it-or-lose-it-rule. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á reglugerð  nr. 95/93 um úthlutun afgreiðslutíma vegna áhrifa COVID-19 á getu flugrekenda til að nýta úthlutunartíma sinn á flugvöllum. Með þeim breytingum hefur verið veitt undanþága frá reglunni um 80% nýtingu á afgreiðslutíma. Um er að ræða reglugerð um framlengingu COVID-19 tengdra ráðstafana sem settar voru fram með reglugerð (ESB) 2020/459.Með reglugerðinni er undanþága frá fullri nýtingu afgreiðslutíma framlengd þannig að hún nái einnig yfir sumartímabilið 2022, þ.e. frá 27. mars 2022 til 29. október 2022. Á því tímabili er gert ráð fyrir að flugrekandi nýti afgreiðslutíma sinn í 50% tilvika í stað 80%.Umsögn: helstu breytingar,  mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Reglugerðin hefur jákvæð áhrif á íslenska flugrekendur og möguleika þeirra á að halda tapa ekki afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli þrátt fyrir að uppfylla ekki nýtingartíma samkvæmt ákvæðum reglugerðar (EBE) nr. 95/93.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 1. mgr. 57. gr. c, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 858/2014 um úthlutun afgreiðslutíma flugvalla.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Enginn kostnaður metinn vegna innleiðingar gerðarinnar.  Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin er 1. mgr. 57. gr. c, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 858/2014 um úthlutun afgreiðslutíma flugvalla.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022R0255
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 42, 23.2.2022, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2021)9105
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 45, 7.7.2022, p. 55
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 182, 7.7.2022, p. 67

Breytir (Modifies)

31993R0095 amends, based on Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)