Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/455 hvað varðar lista yfir flugrekendur sem lúta umsjón Íslands í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. - 32022R0455

Commission Regulation (EU) 2022/455 of 14 March 2022 amending Regulation (EC) No 748/2009 as regards the update of the list of aircraft operators which performed an aviation activity listed in Annex I to Directive 2003/87/EC of the European Parliament and of the Council on or after 1 January 2006 specifying the administering Member State for each aircraft operator


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/455 frá 14. mars 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 748/2009 að því er varðar uppfærslu á skránni yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem tilgreind er í I. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB, 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 287/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með reglugerð þessari er uppfærður viðauki við reglugerð (EB) nr. 748/2009 um lista yfir flugrekendur sem stunduðu flugstarfsemi, sem getið er í viðauka I við tilskipun 2003/87/EB, 1. janúar 2006 eða síðar. Tilgreint er hvaða ríki telst umsjónarríki gagnvart hverjum flugrekenda líkt og gert er árlega.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 748/2009 var sett til að uppfylla skyldur framkvæmdastjórnarinnar skv. 3. tl. 18. gr. a tilskipunar 2003/87/EB, eins og henni var breytt með 4. tl. 1. gr. tilskipunar 2008/101/EB. Með reglugerðinni var lögfestur listi yfir flugrekendur sem heyra undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir auk þess sem tilgreint var hvaða aðildarríki telst umsjónarríki hvers flugrekanda í skilningi tilskipunar 2003/87/EB. Listinn í viðauka við reglugerðina er miðlægur upplýsingagrunnur um alla flugrekendur sem falla undir gildissvið viðskiptakerfisins. Hann hefur jafnframt það hlutverk að flokka flugrekendur niður á umsjónarríki eftir þeim reglum sem fram koma í fyrrnefndri tilskipun. Reglur um umsjónarríki eru í grófum dráttum þessar: Flugrekendur sem skráðir eru innan EES lúta umsjón þess ríkis sem gaf flugrekstrarleyfi þeirra út. Flugrekendur frá ríkjum utan EES lúta hins vegar umsjón þess ríkis sem mestur hluti af losun þeirra innan viðskiptakerfisins tilheyrði árið 2006. Í aðfaraorðum reglugerðarinnar kemur fram að lista þessum sé ætlað að draga úr stjórnsýslubyrði flugrekstraraðila sem og að veita upplýsingar til flugrekstraraðila um hvaða aðildarríki muni framfylgja kröfum viðskiptakerfisins gagnvart viðkomandi aðila. Ennfremur að hverju aðildarríki sé ljóst hvaða flugrekendum því beri að hafa umsjón með. Tekið er fram í aðfaraorðunum að listanum sé þó ekki ætlað að skera úr um það hvort flugrekandi falli undir gildissvið viðskiptakerfisins, heldur ráðist það eingöngu af gildissviði tilskipunar 2003/87/EB. Ef flugrekandi stundar starfsemi sem fellur undir gildissvið tilskipunarinnar heyrir hann því undir viðskiptakerfið hvort sem hans er getið á listanum eða ekki. Að sama skapi eru flugrekendur sem hafa hætt flugstarfsemi sem heyrir undir gildissvið tilskipunar 2003/87/EB ekki hluti viðskiptakerfisins þótt þeirra sé getið á listanum. Við þetta bætist síðan að þar sem að aðlögunartímabilinu, sem mælt er fyrir um í útgöngusamningi um brotthvarf Stóra-Bretlands og Norður- Írlands úr ESB, er lokið er Bretland ekki lengur umsjónarríki fyrir flugrekendur innan ETS-kerfisins, og því eru þeir flugrekendur sem áður lutu umsjón Bretlands færðir yfir í umsjón annarra aðildarríkja, þ. á m. Íslands. Með reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/455 er lögfestur nýr viðauki yfir flugrekendur og þeim eldri samkvæmt reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/662 skipt út fyrir hann.   Samkvæmt þessum nýja viðauka verða 395 flugrekendur í umsjón Íslands, og fjölgar því flugrekendum um 28 á því tímabili en fjöldi þessara flugrekenda var 367 skv. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 2021/662. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 606/2021 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, sbr. reglugerðarheimild í 4. mgr. 16. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022R0455
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 93, 22.3.2022, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 35, 4.5.2023, p. 17
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 117, 4.5.2023, p. 17