32022R0670

Commission Delegated Regulation (EU) 2022/670 of 2 February 2022 supplementing Directive 2010/40/EU of the European Parliament and of the Council with regard to the provision of EU-wide real-time traffic information services


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/670 frá 2. febrúar 2022 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar veitingu umferðarupplýsingaþjónustu á rauntíma innan alls Evrópusambandsins
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 078/2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Verið er að leggja drög að því að samræma gögn sem fengin eru úr umferð á vegum, þ.e. frá nemum í mannvirkjum og ökutækjum auk annarra. Í gerðinni er kveðið á um með hvaða hætti það skuli gert. Tekið er á þáttum eins og samhæfingu í rekstri, gögnum, samfelldri öflun upplýsinga og veitingu þeirra. Upplýsingarnar eiga að vera þannig að þeirra sé aflað á rauntíma og að þær séu einnig veittar með þeim hætti. Áhrif hér á landi til góðs. Kostnaður hverfandi.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með þessari reglugerð er að bæta aðgengi að, skipti á, endurnotkun og uppfærslu vega- og umferðargagna. Það er nauðsynlegt svo unnt sé að veita vandaða og samfellda umferðarupplýsingaþjónustu á rauntíma innan Sambandsins.Reglugerðin kemur til framkvæmda 1. janúar 2025. Þó gildir 13. gr. frá 1. janúar 2023.Aðdragandi: Samkvæmt b-lið 3. gr. tilskipunar 2010/40/ESB er í forgangi að veita þjónustu með upplýsingar um umferð á rauntíma innan alls Evrópusambandsins. Það skal þó gert með hliðsjón af þróun og notkun forskrifta og staðla.Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. tilskipunar 2010/40/ESB er þess krafist af framkvæmdastjórninni að hún samþykki forskriftir sem eru nauðsynlegar til að tryggja að upplýsingar séu samræmdar. Auk þess þarf að samræma ýmsar rekstrarlegar forsendur. Þá þarf að vera tryggt að samfella sé í upplýsingum sem safnað er til að veita þjónustuna. Þessi atrið þarf að tryggja svo auðvelda megi útbreiðslu og hagkvæmni skynvæddra flutningakerfa (ITS) en frá þeim koma þessar upplýsingar á rauntíma innan alls Evrópusambandsins.Samkvæmt 5. gr. tilskipunar 2010/40/ESB ættu forskriftirnar, sem samþykktar eru í samræmi við 6. gr. þessarar tilskipunar, að gilda um verkbúnað og þjónustu við útbreiðslu skynvæddra flutningakerfa. Þó þarf að hafa í huga rétt hvers aðildarríkis til að ákveða útbreiðslu slíks verkbúnaðar og þjónustu á eigin yfirráðasvæði.Í Sambandinu er nú þegar til markaður fyrir veitingu umferðarupplýsinga á rauntíma. Það er því bæði notendum, viðskiptavinum og veitendum þessarar þjónustu í hag að rétt skilyrði séu sköpuð fyrir þennan markað. Þannig má standa vörð um hann og þróa enn frekar með nýbreytni í huga.Aðildarríki ættu að hafa kost á því að beita þessum forskriftum í tengslum við tiltekna vegi, sem eru ekki hluti af samevrópska vega- og hraðbrautakerfinu en það hafa þau tilgreint sem forgangssvæði.Upplýsingar eins og umferðarreglur, takmarkanir og lokun vega eða akreina eru taldar mikilvægar fyrir frekari þróun áreiðanlegrar umferðarupplýsingaþjónustu og til að bæta umferðaröryggi. Því ættu þær að vera aðgengilegar fyrir vegayfirvöld og veghaldara. Vegna mikilvægis þessara upplýsinga ættu þær að vera í forgangi.Uppruni gagna er mjög fjölbreytilegur. Hann er allt frá því að koma frá innbyggðum nemum í grunnvirkjum til ökutækja búnum nemum. Því er mikilvægt að forskriftirnar gildi um viðeigandi flokka gagna en hvorki uppruna né tækni.Mikilvægt er að vegamálayfirvöld og veghaldarar tryggi að vegagögn séu aðgengileg og reglulega uppfærð til að hægt sé að gera nákvæm stafræn kort. Slík kort eru mikilvægur grunnur að áreiðanlegum skynvæddum flutningakerfum.Til að auðvelda skipti á og endurnotkun umferðargagna ættu vegamálayfirvöld, veghaldarar og þeir sem veita þjónustu með umferðarupplýsingar á rauntíma að gera gögnin, tilheyrandi lýsigögn og upplýsingar um gæði gagnanna, aðgengileg öðrum vegamálayfirvöldum, veghöldurum og öðrum sem veita þjónustu með upplýsingar á rauntíma og framleiðendum stafrænna korta með því að nota landsbundinn eða sameiginlegan aðgangspunkt.Með þessum forskriftum ætti þó ekki að skylda vegamálayfirvöld eða veghaldara og þjónustuveitendur til að hefja öflun gagna sem þau hafa ekki aflað nú þegar eða til að setja gögn á stafrænt form sem eru ekki nú þegar aðgengileg á tölvutæku formi.Aðildarríki og hagsmunaaðilar ættu að samþykkja að skilgreining á gæðum sé sameiginleg svo nota megi sameiginlega gæðavísa fyrir öll umferðargögn.Til að tryggja rétta framkvæmd þessara forskrifta ættu aðildarríkin að meta hvort farið sé að kröfunum um aðgengileika, skipti á, endurnotkun og uppfærslu vega- og umferðargagna frá vegamálayfirvöldum, vegstjórum, framleiðendum stafrænna korta og þjónustuveitendum. Í þeim tilgangi ætti lögbærum yfirvöldum að vera frjálst að treysta á samræmisyfirlýsingu frá vegamálayfirvöldum, veghöldurum, framleiðendum stafrænna korta og þjónustuveitendum. Aðildarríki ættu að vinna saman að því að samræma nálgun sína að mati á samræmi í yfirstandandi og framtíðarsamhæfingarverkefnum, sem hjálpa til við að innleiða forskriftir þessarar reglugerðar.Efnisútdráttur: Reglugerðin inniheldur 16 ákvæði ásamt viðauka.1.    gr. – Gildissvið. Þessari reglugerð er beitt í samræmi við 5. gr. tilskipunar 2010/40/ESB. Í þessari reglugerð eru settar forskriftir, sem eru nauðsynlegar til að tryggja aðgengi, skipti á, endurnotkun og uppfærslu gagna af gagnahöfum og notendum til að veita umferðaupplýsingaþjónustu á rauntíma um alla Evrópu og tryggja að þjónustan sé nákvæm og fáanleg yfir landamæri fyrir notendur, e. end-users.2.    gr. – Skilgreiningar. Tekið er fram að skilgreiningar sem koma fram í 4. gr. tilskipunar 2010/40/EB skuli gilda samhliða.3.    gr. – Landsbundnar aðgangsstöðvar. Hvert aðildarríki skal koma á fót landsbundinni aðgangsstöð og er heimilt að nota fyrirliggjandi aðgangsstöðvar, sem hafa verið settar upp til að uppfylla 3. gr. reglugerðar 2015/952/ESB eða sem stafa af öðrum gerðum sem samþykktar eru skv. tilskipun 2010/40/ESB. Aðgangsstöðvarnar skulu veita notendum tiltekna þjónustu og aðgang að gögnum. Tvö eða fleiri aðildarríki geta komið á fót sameiginlegri aðgangsstöð. Sérhver aðili sem veitir aðgang að gögnum í gegnum aðgangsstöð getur gert það í samræmi við gildandi samninga, t.d. í gegnum gagnagrunn þriðja aðila eða safnvél, e. aggregator.4.    gr. – Aðgengileiki, skipti á og endurnotkun gagna um innviði. Til að auðvelda veitingu umferðarupplýsinga á rauntíma innan Sambandsins, sem er samrýmanleg, samhæfð rekstrarlega og samfelld, skulu vegamálayfirvöld, vegstjórar, gjaldtökufyrirtæki og hagsmunaaðilar sem tengdir eru við endurhleðslu og eldsneyti veita tilteknar upplýsingar skv. viðauka við gerðina í samræmi við viðeigandi reglur.5.    Aðgengileiki, skipti á og endurnotkun gagna um reglugerðir og takmarkanir. Til þess að auðvelda það að útvega á samrýmanlegum, rekstrarsamhæfðum og samfelldum umferðarupplýsingum á rauntíma innan Sambandsins skulu vegmálayfirvöld, veghaldarar og gjaldtökufyrirtæki útvega gögn um reglugerðir og takmarkanir sem taldar eru upp í viðaukanum sem safnast saman á DATEX II eða TNT-ITS sniði. Allar uppfærslur á þessum gögnum skulu fara fram í samræmi við 9. gr. Ef skilgreina á viðbótarstaðla, eða aðra staðla, skal fara eftir nánar tilgreindum skilyrðum. Gögnin skulu vera aðgengileg til skiptis á og endurnotkunar fyrir alla gagnanotendur innan Sambandsins. Gagnanotendur skulu tryggja að ónákvæmni í gögnunum sé tilkynnt gagnhafanum. Þjónustuveitendur skulu veita þjónustuna án auka kostnaðar fyrir notandann.6.    Aðgengileiki, skipti á og endurnotkun gagna um stöðu veganetsins. Til þess að auðvelda það að útvega samrýmanleg, rekstrarsamhæfð og samfelldar umferðarupplýsingar á rauntíma innan Sambandsins skulu vegmálayfirvöld, vegstjórar og handhafar gagna sem myndast í ökutækjum og þjónustuveitendur leggja fram gögn um stöðu veganetsins sem talin eru upp í viðaukanum sem þeir safna á DATEX II sniði. Allar uppfærslur á þessum gögnum skulu fara fram í samræmi við 10. gr. Gögnin skulu vera aðgengileg til skiptis á og endurnotkunar fyrir alla gagnanotendur innan Sambandsins. Gagnanotendur skulu tryggja að ónákvæmni í gögnunum sé tilkynnt gagnhafanum. Þjónustuveitendur skulu veita þjónustuna án auka kostnaðar fyrir notandann.7.    Aðgengileiki, skipti á og endurnotkun gagna um veganetið í rauntíma. Til þess að auðvelda útvegun á samrýmanlegum, rekstrarsamhæfðum og samfelldum umferðarupplýsingum á rauntíma innan Sambandsins skulu vegmálayfirvöld, vegstjórar og handhafar gagna sem myndast í ökutækjum, þjónustuveitendur og hagsmunaaðilar tengdir endurhleðslu og eldsneyti leggja fram gögn um veganetið í rauntíma sem talin eru upp í viðaukanum sem þeir safna á DATEX II sniði. Allar uppfærslur á þessum gögnum skulu fara fram í samræmi við 11. gr. Gögnin skulu vera aðgengileg til skiptis á og endurnotkunar fyrir alla gagnanotendur innan Sambandsins. Gagnanotendur skulu tryggja að ónákvæmni í gögnunum sé tilkynnt gagnhafanum. Þjónustuveitendur skulu veita þjónustuna án auka kostnaðar fyrir notandann.8.    Uppfærsla gagna um innviði. Uppfærslur gagna um innviði skulu að lágmarki uppfylla nánar tiltekna þætti. Viðkomandi gagnhafar skulu tryggja uppfærslu gagnanna innan ákveðins tímaramma sem hæfir áreiðanlegum og skilvirkum notkun umferðarupplýsingum í rauntíma og ef mögulegt er að veita gagnanotendum uppfærslurnar fyrir fram. Viðkomandi gagnhafar skulu tímanlega leiðrétta alla ónákvæmni í gögnum sínum. Þegar framleiðendur stafrænna korta og þjónustuveitendur kynna upplýsingar fyrir endanotendum, e. end-users, skulu þeir tryggja að viðeigandi gagnauppfærslur um innviði séu unnar innan tímaramma sem hæfa settum kröfum.9.    Uppfærsla gagna um reglugerðir og takmarkanir skulu að lágmarki varða nánar tiltekna þætti og uppfylla nánar tilteknar kröfur.10.  Uppfærsla gagna um stöðu veganetsins.11.  Uppfærsla gagna vegakerfisins á rauntíma.12.  Mat á því hvort farið sé að kröfum. Aðildarríki skulu meta hvort gagnhafar og gagnanotendur fari að skilyrðunum sem settar eru fram í 3.-8. gr. í samræmi við 2. og 3. mgr. 12. gr. Í 2. mgr. er kveðið á um að lögbær yfirvöld aðildarríkjanna geti óskað eftir gagnahafar og notendur leggi fram ákveðin gögn. Í 3. mgr. kemur fram að aðildarríkin skuli kanna af handahófi réttmæti yfirlýsinganna sem gagnahafar og notendur skila frá sér um að farið sé eftir kröfum í 3-11. gr.13.  Skýrslugjöf. Eigi síðar en 1. janúar 2023 skulu aðildarríkin láta framkvæmdastjórninni í té lista og kort af vegum sem eru í aðalvegakerfinu. Aðildarríkin skulu veita framkvæmdastjórninni nánar tilgreindar upplýsingar sem hluta af framvinduskýrslu sem kveðið er á um í 3. mgr. 17. gr. tilskipunar 2010/40/ESB.14.  Bráðabirgðaákvæði. Á aðlögunartímabilinu sem lýkur 31. desember 2027 gilda kvaðir samkvæmt liðum 1, 3, 5 og 6 einungis á samevrópska flutninganetinu, öðrum hraðbrautum sem eru ekki innan samevrópska flutninganetsins og frumvegum (e. primary roads)15.  Framseld reglugerð 2015/952/ESB fellur úr gildi 1. janúar 2025.16.  gr. Gildistökuákvæði.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi:Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Rétt væri að innleiða gerðina með breytingu á reglugerð nr. 342/2013 um þróun upplýsinga- og fjarskiptatækni til notkunar fyrir skynvædd samgöngukerfi (ITS).Lagastoðin er 45. gr. vegalaga nr. 80/2007.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Að mati Samgöngustofu er væntanlega hverfandi umframkostnaður við þessa gerð. Kostnaður við aðgangspunkta, e. access points, og þau gögn sem þar eiga að vera aðgengileg hafa komið fram áður enda hefur uppsetning aðgangspunkta komið fram í öllum afleiddum gerðum af tilskipun 2010/40/ESB og innleiddar hafa verið með reglugerð nr. 342/2013.Kostnaður Vegagerðarinnar er meiri. Rætt er um allt að einu stöðugildi vegna þessarar gerðar.Kostnaður gæti skapast hjá Landmælingum Íslands.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: Vegagerðin, notendur vega.Persónuvernd – tekið fram að öll vinnsla persónuupplýsinga skuli fara fram í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin er 45. gr. vegalaga nr. 80/2007. Rétt væri að innleiða gerðina með breytingu á reglugerð nr. 342/2013 um þróun upplýsinga- og fjarskiptatækni til notkunar fyrir skynvædd samgöngukerfi (ITS).
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022R0670
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 122, 25.4.2022, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2022)0492
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 38, 12.6.2025, p. 60
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1032, 12.6.2025

Breytir (Modifies)

32015R0962 repeals Commission Delegated Regulation (EU) 2015/962 of 18 December 2014 supplementing Directive 2010/40/EU of the European Parliament and of the Council with regard to the provision of EU-wide real-time traffic information services Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
32010L0040 based on, completes Directive 2010/40/EU of the European Parliament and of the Council of 7 July 2010 on the framework for the deployment of Intelligent Transport Systems in the field of road transport and for interfaces with other modes of transport Tekin upp í EES-samninginn og í gildi