32022R0672

Commission Implementing Regulation (EU) 2022/672 of 22 April 2022 amending Implementing Regulation (EU) 2017/2470 as regards the specifications of the novel food trans-resveratrol (from microbial source)


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/672 frá 22. apríl 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470 að því er varðar nákvæma skilgreiningu á nýfæðinu trans-resveratróli (af örverufræðilegum uppruna)
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 043/2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/672 frá 22. apríl um breytingu á framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 að því er varðar nákvæmar skilgreiningar fyrir trans-reservatról (af örverufræðilegum uppruna).

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði. Sótt hefur verið um leyfi Framkvæmdastjórnarinnar til að breyta nákvæmum skilgreiningum fyrir trans-reservatról af örverufræðilegum uppruna. Óskað var eftir að felld yrðu niður skilyrði í núverandi nákvæmum skilgreiningum, þar sem kveðið er á um að 100% af ögnum sem framleiddar eru af S. cerevisiae séu minni en 62,23 míkrómetrar að stærð (< 62,23 μm). Umsækjandi hefur í umsókn sinni sýnt fram á að kornastærð trans-reservatróls af örverufræðilegum uppruna sé sambærileg við kornastærð trans-reservatróls sem framleitt er með efnafræðilegum aðferðum. En fyrir það eru engar slíkar takmarkanir. Framkvæmdastjórnin telur að þær breytingar, á sértækum skilyrðum, sem sótt var um leyfi fyrir séu ekki líklegar til að hafa áhrif á heilsu manna og að ekki sé ástæða til að leita álits EFSA, í samræmi við gr. 10(3) í reglugerð 2015/2283. Framkvæmdastjórnin fellst á umsóknina og viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breyting á framkvæmdareglugerð 2017/2470 um lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Matvælaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022R0672
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 122, 25.4.2022, p. 24
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 77, 26.10.2023, p. 31
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/2329, 26.10.2023