32022R0938
Commission Implementing Regulation (EU) 2022/938 of 26 July 2022 amending Implementing Regulation (EU) 2017/373 as regards the requirements for aeronautical data catalogue and aeronautical information publication
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/938 frá 26. júlí 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/373 að því er varðar kröfur um flugmálagagnaskrá og flugmálahandbók
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 138/2023 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Markmiðið með gerðinni er að uppfæra ákvæði í viðaukum við reglugerð (ESB) 2017/373 og samræma þau leiðbeiningum ICAO um flugmálagagnaskrá og flugmálahandbók sem og við sambærileg ákvæði í reglugerðum (ESB) 965/2012 og (ESB) nr. 139/2014. Áhrif og kostnaður minniháttar.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með gerðinni er að uppfæra ákvæði í viðaukum við reglugerð (ESB) 2017/373 og samræma þau leiðbeiningum ICAO um flugmálagagnaskrá og flugmálahandbók sem og við sambærileg ákvæði í reglugerðum (ESB) 965/2012 og (ESB) nr. 139/2014. Efnisútdráttur: Í framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/373 er kveðið á um sameiginlegar kröfur til þeirra sem sjá um flugleiðsöguþjónustu (ATM/ANS) og til starfsemi neta sem notuð eru til flugleiðsöguþjónustu og eftirlit með þeim. Í júní 2020 samþykkti Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) breytingu á verklagsreglum flugleiðsöguþjónustu – stjórnun flugmálaupplýsinga (PANS-AIM, Doc 10066). Þar voru sett fram ný ákvæði um flugmálahandbók (AIP) og skrár um flugmálagögn sem tóku gildi í samningsríkjum þann 4. nóvember 2021. Með þessari reglugerð eru gerðar breytingar á viðaukum I, III og VI við reglugerð (ESB) 2017/373. Þeim er ætlað að endurspegla framangreindar breytingar frá ICAO. Breytingarnar snúa að því að uppfæra ákvæði um innihald og uppbyggingu AIP í VI. viðauka (AIS-hluta) við reglugerð (ESB) 2017/373. Eftir breytinguna eiga þau að endurspegla núgildandi kröfur í 14. viðauka við Chicago-samninginn um núningsmælingar og birtingu nauðsynlegra flugmálaupplýsinga í gegnum AIP. Þá er gerð breyting á skilgreiningum sem tengjast hugtakinu starfrækslu í skertu skyggni, e. all weather operations, í I. viðauka við reglugerð (ESB) 2017/373. Það er gert til að tryggja samræmi við skilgreiningar í reglugerð (ESB) 965/2012 og (ESB) nr. 139/2014. Skilgreining á SNOWTAM í I. viðauka við reglugerð (ESB) 2017/373 er breytt þannig að hún sé í samræmi við skilgreiningu á SNOWTAM í 15. viðauka við Chicago-samninginn og í samræmi við skilgreiningu í reglugerð (ESB) nr. 139/2014. Samkvæmt núverandi leiðbeiningum um útfyllingu á SNOWTAM formi er ekki hægt að gefa út SNOWTAM við tiltekin rekstrarskilyrði flugbrauta. Því er leiðbeiningum breytt og þær samræmdar við reglugerðir (ESB) 965/2012 og (ESB) nr.139/2014. Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Gerðin kallar á uppfærslu verklagsreglna og í einhverjum tilfellum hugbúnaðar hjá veitanda upplýsingaþjónustu flugmála. Áhrifin eru minniháttar. Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að innleiða reglugerðina með breytingu á reglugerð nr. 720/2019 um sameiginlegar kröfur fyrir veitendur þjónustu á sviði rekstrarstjórnunar flugumferðar/flugleiðsöguþjónustu og á sviði starfsemi neta fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar og eftirlit með þeim.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Kostnaður við innleiðingu þessarar reglugerðar er minniháttar. Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei. Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei. Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Gerðin hefur tilvísanir í reglugerð (ESB) 2017/373 sem er innleidd með aðlögunum í viðauka XIII við EES-samninginn.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoðin er í 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Innleiðing með breytingu á reglugerð nr. 720/2019 um sameiginlegar kröfur fyrir veitendur þjónustu á sviði rekstrarstjórnunar flugumferðar/flugleiðsöguþjónustu o. fl. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32022R0938 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 209, 10.8.2022, p. 1 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | D081998/02 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 81, 9.11.2023, p. 105 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2023/02281, 9.11.2023 |