Útdráttur
Markmiðið er annars vegar að skýra þær kröfur sem gerðar eru og hins vegar að tryggja bestu framkvæmd ýmissa flugverndarráðstafana. Auk þess er verið að samræma þær kröfur sem gerðar eru við þróun í flugvalla- og flugrekstri. Í þeim tilgangi eru hér gerðar breytingar á viðauka við reglugerð (ESB) 2015/1998. Þá er með ákvörðun C(2022) 4638 sem fylgir reglugerðinni gerðar breytingar á ákvörðun C(2015) 8005 að því er varðar tilteknar ítarlegar ráðstafanir um framkvæmd sameiginlegra grunnkrafna í flugvernd. Áhrif eðlileg en lítil. Kostnaður óverulegur.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmiðið er annars vegar að skýra þær kröfur sem gerðar eru og hins vegar að tryggja bestu framkvæmd ýmissa flugverndarráðstafana. Auk þess er verið að samræma þær kröfur sem gerðar eru við þróun í flugvalla- og flugrekstri. Í þeim tilgangi eru hér gerðar breytingar á viðauka við reglugerð (ESB) 2015/1998Þá er með ákvörðun C(2022) 4638 sem fylgir reglugerðinni gerðar breytingar á ákvörðun C(2015) 8005 að því er varðar tilteknar ítarlegar ráðstafanir um framkvæmd sameiginlegra grunnkrafna í flugvernd.Efnisútdráttur: Með reglugerðinni eru gerðar breytingar á viðauka við reglugerð (ESB) 2015/1998. Breytingarnar eru á fyrirkomulagi innleiðinga tiltekinna sameiginlegra grunnstaðla í flugvernd. Tilteknar flugverndarráðstafanir eru skýrðar og samræmdar í þeim tilgangi að gera þær einfaldari, auka skýrleika og tryggja bestu framkvæmd í takt við þróun í flugvalla- og flugrekstri.Breytingarnar eiga við flugvallaöryggi almennt, öruggan flutning skotvopna um borð í loftförum, þjálfun starfsfólks, flugfarm, póstöryggi, flugvallabirgja, bakgrunnsskoðun, sprengjuleitarhunda (EDD) og málmleitahlið (WTMD).Aðlögunartími til að innleiða öryggisráðstafanir um þjálfun áhafna og öryggis- og þjónustuliða er til 1. janúar 2023.Með ákvörðun C(2022) 4638 er kveðið ítarlegar á um tilteknar flugverndarráðstafanir sem ekki eru opinberlega birtar.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Áhrif á Samgöngustofu:Óveruleg áhrif á Samgöngustofu. Annars vegar er um að ræða lítillega hertar reglur en jafnframt verið að setja ýtarlegri og skýrari reglur. Samgöngustofa mun þurfa að huga að því að uppfæra reglur og vinnugögn.Áhrif á rekstraraðila flugvalla eru óveruleg. Rekstraraðilar þurfa að aðlaga verklag og þjálfa starfsfólk að einhverju leyti til að geta mætt kröfum.Áhrif á aðra aðila sem sinna flugvernd: Að einhverju leyti verða reglur um vernd- og flutning farms, öryggisleit loftfara o.fl. strangari. Því mun þurfa að uppfæra hluta handbóka, þjálfunarefnis og þjálfunar. Áhrif ekki metin veruleg.Áhrif á flugrekendur eru að einhverju leyti strangari reglur um vernd- og flutning farms, öryggisleit loftfara o.fl. Kallar á uppfærslu hluta handbóka, þjálfunarefnis og þjálfunar. Áhrif ekki metin veruleg.Áhrif á almenning eru að reglugerðin getur haft áhrif á niðurstöðu bakgrunnsskoðana.Að öðru leyti eru áhrif metin jákvæð gagnvart flugöryggi m.t.t. uppfærslu og fyllingar núverandi reglum um flugvernd.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 167. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að innleiða reglugerðina og ákvörðunina með breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Óverulegur kostnaður metinn vegna innleiðingar gerðarinnar hjá Samgöngustofu. Getur haft í för með sér kostnað fyrir eftirlitsskylda aðila vegna krafna um þjálfun.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Flugrekendur, rekstraraðilar flugvalla.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.