MIFID2 L2: Breyting á framkvæmdareglugerð ESB 2017/1093 - 32022R1300

Commission Implementing Regulation (EU) 2022/1300 of 24 March 2022 amending Implementing Regulation (EU) 2017/1093 laying down implementing technical standards with regard to the format of position reports by investment firms and market operators


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1300 frá 24. mars 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/1093 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar snið stöðutilkynninga verðbréfafyrirtækja og rekstraraðila markaða
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 09 Fjármálaþjónusta, 09.03 Kauphöll og verðbréf
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 018/2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdareglugerðin breytir viðauka II við framkvæmdareglugerð ESB 2017/1093 sem fjallar um sniðmát fyrir daglegar tilkynningar vegna hámarka á stöður.

Nánari efnisumfjöllun

Breytingin er tilkomin vegna þess að 57. gr tilskipunar 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga, (MiFID2) var breytt með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/338 um breytingu á tilskipun 2014/65/ESB að því er varðar upplýsingakröfur, afurðastýringu og stöðuhámark og tilskipanir 2013/36/ESB og (ESB) 2019/878 að því er varðar beitingu þeirra á verðbréfafyrirtæki til að aðstoða við endurreisn í kjölfar COVID-19-hættuástandsins Búið er að innleiða þessar breytingar á  57. gr. MiFID2 í íslenskan rétt með lögum um breytingu á ýmsum lögum á fjármálamarkaði (innleiðing o.fl.) nr. 50/2022. Breytingarnar fólust m.a. í því að mengi þeirra afleiðna sem áhættustýring rekstraaðila markaða og verðbréfafyrirtækja sem starfrækja viðskiptavettvanga var breytt og svokallaðar verðbréfaðar afleiður undanskyldar. Breyting framkvæmdareglugerðar ESB 2022/1300 á framkvæmdareglugerð ESB 2017/1093 er því ætlað að endurspegla þær breytingar sem þegar hafa verið gerðar á móðurgerðinni, MiFID2, og teknar hafa verið upp í íslenskan rétt. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglur SÍ nr. 981/2023 um afleiður og stöðustofnun fyrir fjármálagerninga (birtar í Stjtíð. dags. 25.9.2023)
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Seðlabanki Íslands

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022R1300
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 197, 26.7.2022, p. 4
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 75, 19.10.2023, p. 27
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/2309, 19.10.2023