32022R1439

Commission Regulation (EU) 2022/1439 of 31 August 2022 amending Regulation (EU) No 283/2013 as regards the information to be submitted for active substances and the specific data requirements for micro-organisms


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1439 frá 31. ágúst 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 283/2013 að því er varðar upplýsingar sem á að leggja fram varðandi virk efni og sértækar kröfur um gögn varðandi örverur
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 089/2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með þessari reglugerð er kröfum um upplýsingar varðandi virk efni breytt, einnig er kröfum um sérstök gögn, varðandi örverur, sem þarf að skila inn þegar sótt er um samþykki fyrir virku efni. Viðauki við reglugerð (ESB) nr. 283/2013 breytist eins og fram kemur í I. og II. viðauka við þessa reglugerð.
Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og kemur til framkvæmda 21. nóvember 2022.

Nánari efnisumfjöllun

Nauðsynlegt er að breyta kröfum sem fram koma í viðauka í reglugerð (ESB) nr. 283/2013 í því skyni að uppfæra kröfurnar um upplýsingar og sérstök gögn að nýjustu þróun í vísindum og til að aðlaga þær að sérstökum líffræðilegum eiginleikum örvera. Í 2. og 3. gr. þessarar reglugerðar koma fram umbreytingarráðstafanir sem gilda um málsmeðferðir varðandi samþykki á virku efni sem eru örverur og varðandi plöntuverndarvörur sem innihalda virk efni sem eru örverur.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf þessa framkvæmdarreglugerð með tilvísunaraðferð með því að breyta reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur.
Lagaheimild er í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Engin áhrif.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022R1439
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 227, 1.9.2022, p. 8
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 81, 9.11.2023, p. 26
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/02244, 9.11.2023