Útdráttur
Markmið sem að er stefnt: Um er að ræða reglugerð um breytingu á reglugerð (EBE) nr. 95/93 að því er varðar tímabundna undanþágu frá reglum um úthlutun afgreiðslutíma á bandalagsflugvöllum vegna faraldsfræðilegra aðstæðna eða hernaðarárása.
Markmiðið með gerðinni er að veita flugrekendum sem geta ekki nýtt afgreiðslutíma sína á flugvöllum vegna aðstæðna sem tengjast faraldsfræði eða hernaðarárásum sveigjanleika. Þeir munu geta að vissum skilyrðum uppfylltum, haldið afgreiðslutímum sínum á næsta viðmiðunartímabili. Kostnaður óverulegur. Áhrif jákvæð og eðlileg.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með gerðinni er að veita flugrekendum sem geta ekki nýtt afgreiðslutíma sína á flugvöllum vegna aðstæðna sem tengjast faraldsfræði eða hernaðarárásum sveigjanleika. Þeir munu geta að vissum skilyrðum uppfylltum, haldið afgreiðslutímum sínum á næsta viðmiðunartímabili.Aðdragandi: Í reglugerð (EBE) nr. 95/93 er kveðið á um skyldu flugrekenda til að nýta úthlutaða afgreiðslutíma á flugvöllum í 80% tilvika á hverju úthlutunartímabili en að öðrum kosti missa þá að tímabilinu loknu, e. use-it-or-lose-it-rule.Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á reglugerð nr. 95/93 vegna áhrifa COVID-19 á getu flugrekenda til að nýta afgreiðslutíma sinn. Með breytingunum hefur verið veitt undanþága frá reglunni um 80% nýtingu á afgreiðslutíma.Samkvæmt upplýsingum frá Eurocontrol mun flugumferð næstum hafa færst til fyrra horfs. Í spám er gert ráð fyrir að hún verði um 90% af því sem var árið 2019 á vetraráætlunartímabilinu 2022/2023.Þrátt fyrir það ríkir enn óvissa bæði vegna COVID-19 og innrásar Rússa í Úkraínu. Hvoru tveggja getur haft skyndileg áhrif á flugumferð. Því þykir nauðsynlegt að kveða á um ákveðinn sveigjanleika og úrræði fyrir samræmingarstjóra til að geta brugðist við í samræmi við það.Efnisútdráttur: Með þessari gerð eru gerðar breytingar á 2. gr., 8. gr., 10. gr., 10. gr. a og 11. gr. reglugerðar (EBE) nr. 95/93 um sameiginlegar reglur um úthlutun afgreiðslutíma á bandalagsflugvöllum.Breytingarnar snúa meðal annars að því að skerpa á markmiðum reglugerðarinnar sem er að tryggja skilvirka nýtingu afgreiðslutíma á flugvöllum, tryggja sanngjarnan aðgang allra flugrekenda að afgreiðslutímum og stuðla að samkeppni.Samræmingarstjórar hafa samkvæmt gerðinni rýmri heimild til að breyta tímasetningum úthlutaðra afgreiðslutíma í samræmi við sérstakar leiðbeiningar og skilyrði.Komi til þess að flugrekandi geti ekki nýtt úthlutunartíma sína vegna takmarkana yfirvalda sem settar eru á vegna faraldurs, náttúruhamfara eða pólitískrar ólgu sem síðan hafi veruleg áhrif á getu þeirra til að nýta afgreiðslutíma sinn, má samræmingarstjórinn að vissum skilyrðum uppfylltum veita undanþágu frá reglunni um skyldu til að nýta afgreiðslutíma eða tapa hönum ella.Samræmingarsjórinn má einnig veita undanþágu frá reglum vegna afleiðinga af hernaði t.d. vegna eyðileggingar mikilvægra innviða sem hefur áhrif á getu flugrekenda til að veita flugþjónustu eða áhrifa á eftirspurn. Slík undanþága má gilda í 16 vikur frá lokun loftrýmis eða flugvallar hvort sem gerist fyrr. Sé slík undanþága veitt skal framkvæmdarstjórn ESB tilkynnt um hvenær hún hefst og hvenær henni lýkur.Gerðin gildir á tímabilinu frá 30. október 2022 til 28. október 2023.Á tímabilinu gildir einnig víðari skilgreining á hugtakinu nýr aðili. Það er gert í þeim tilgangi að gefa fleiri flugrekendum tækifæri á að auka við starfsemi sína.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Reglugerðin hefur jákvæð áhrif fyrir flugrekendur og möguleika þeirra á að halda óbreyttum úthlutuðum afgreiðslutíma á flugvöllum þrátt fyrir að uppfylla ekki nýtingartíma samkvæmt ákvæðum reglugerðar (EBE) nr. 95/93.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er g. liður 1. mgr. 200. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 858/2014 um úthlutun afgreiðslutíma flugvalla.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Enginn kostnaður metinn vegna innleiðingar gerðarinnar.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.