Innleiðing framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2299 á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1999 að því er varðar uppbyggingu, snið, tæknilegar upplýsingar og ferli fyrir samþættar framfaraskýrslur ríkja í orku- og loftslagsmálum. - 32022R2299

Commission Implementing Regulation (EU) 2022/2299 of 15 November 2022 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2018/1999 of the European Parliament and of the Council as regards the structure, format, technical details and process for the integrated national energy and climate progress reports


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, bókun) 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Í stuttu máli fjallar innleiðing framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2299 aðallega um nánari framkvæmd á 17. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1999, þ.e. er varðar uppbyggingu, snið, tæknilegar upplýsingar og ferli fyrir samþættar framfaraskýrslur aðildarríkja í orku- og loftslagsmálum.

Nánari efnisumfjöllun

Í stuttu máli fjallar innleiðing framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2299 (hér eftir „gerðin“) aðallega um nánari framkvæmd á 17. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1999, þ.e. er varðar uppbyggingu, snið, tæknilegar upplýsingar og ferli fyrir samþættar framfaraskýrslur aðildarríkja í orku- og loftslagsmálum. Í reglugerð (ESB) 2018/1999 er kveðið á um að aðildarríkin leggi fyrir framkvæmdastjórnina samþættar innlendar orku- og loftslagsáætlanir sem ná yfir tíu ára tímabil og reiða sig á tveggja þrepa nálgun með eftirfarandi hætti: að setja innlend markmið, markmið og framlög fyrir allar fimm víddir Orkusambandsins (e. Energy Union);að skipuleggja viðeigandi stefnur og aðgerðir til að ná þeim fram. Hvað sem því líður er hins vegar ljóst að 17. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1999 hefur ekki verið innleidd í EES-samninginn, enda var reglugerðin aðeins innleidd hér á landi að hluta, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2019. Einungis eftirfarandi ákvæði reglugerðarinnar gilda:- Ákvæði .1-10. mgr. 2. gr., 12.-13. mgr. 2. gr., 15.-17. mgr. 2. gr., 18. gr., 2.-7. mgr. 26. gr., b-liður 5. mgr. 29. gr., 37.-42. gr., a-liður 1. mgr., 2.-3. mgr. og 6. mgr. 44. gr., 57.-58. gr., og V.-VII. viðauki og XII.-XIII. viðauki.Að því sögðu gæti 11. gr. gerðarinnar, varðandi skýrslugjöf um áhrif á loftgæði og um losun loftmengunarefna, og viðauki XIV komið til innleiðingar í EES-samninginn. Slíkt myndi auka kröfur um mat á aðgerðum sem hafa áhrif á losun gróðurhúsalofttegunda og loftmengunarefna. Nú þegar er verið að meta áhrif aðgerða á losun gróðurhúsalofttegunda (eins og hægt er), en við þetta mun bætast krafa um að meta áhrif aðgerða á 5 loftmengunarefni: SO2, NOx, NMVOC, NH3, PM2,5 og mögulega fleiri.Þar sem teymi losunarbókhalds hjá Umhverfisstofnun er nú þegar að meta áhrif aðgerða á losun gróðurhúsalofttegunda (eins og hægt er), virðist ekki vera mikil aukavinna skapast við að meta áhrif aðgerða á þessi 5 loftmengunarefni. Umfang viðbótarvinnunar veltur þó að mestu leyti á fjölda og tegunda aðgerða sem þarf að meta. Miðað við fjölda og umfang aðgerða sem er verið að meta í dag, ætti umfang verkefnisins að rúmast innan núverandi starfsgetu teymisins. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun
Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022R2299
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 306, 25.11.2022, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32018R1999 based on Regulation (EU) 2018/1999 of the European Parliament and of the Council of 11 December 2018 on the Governance of the Energy Union and Climate Action, amending Regulations (EC) No 663/2009 and (EC) No 715/2009 of the European Parliament and of the Council, Directives 94/22/EC, 98/70/EC, 2009/31/EC, 2009/73/EC, 2010/31/EU, 2012/27/EU and 2013/30/EU of the European Parliament and of the Council, Council Directives 2009/119/EC and (EU) 2015/652 and repealing Regulation (EU) No 525/2013 of the European Parliament and of the Council Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum