32022R2526
Commission Delegated Regulation (EU) 2022/2526 of 23 September 2022 amending Regulation (EU) 2017/852 of the European Parliament and of the Council as regards the temporary storage of mercury waste in liquid form
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2526 frá 23. september 2022 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/852 að því er varðar bráðabirgðageymslu kvikasilfursúrgangs í vökvaformi
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.04 Íðefni, iðnaður og líftækni |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 341/2023 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin snýr að framlengingu á geymslu kvikasilfurúrgangs í fljótandi formi sem kveður á um í 1. mgr. 13. gr. Undanþágan er framlengd um 3 ár, 1. janúar 2026.
Nánari efnisumfjöllun
Í 1. mgr. 13. gr. reglugerðar (ESB) 2017/852 um kvikasilfur er veitt undanþága fyrir geymslu á kvikasilfursúrgangi í fljótandi formi undir sértækum aðstæðum til og með 1. janúar 2023. Þessi undanþága var veitt vegna þess að kvikasilfur er eini þungmálmurinn í fljótandi formi en bannað er að urða úrgang sem er fljótandi. Því setti framkvæmdarstjórnin fram þær kröfur að kvikasilfursúrgangur þurfi að storkna áður en honum er endanlega fargað.Í ljós kom í mars 2022 að yfir 2000 tonn af kvikasilfursúrgangi í fljótandi formi væri eftir í tímabundinni geymslu innan ESB svæðisins og að storknun þess þyrfti lengri tíma fyrir endanlega förgun en gefinn er. Framkvæmdastjórninni er heimilt að framlengja þann tíma sem gefinn er um allt að þrjú ár, skv. 2. mgr. 13. gr.Þessi reglugerð snýr að því að framlengja undanþáguna um 3 ár eða til 1. janúar 2026 og er 1. mgr. 13. gr. breytt m.t.t. þess. Reglugerðin tekur gildi á þriðja degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum ESB.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Gera þarf viðeigandi breytingu á reglugerð nr. 640/2022. Lagastoð er í 21. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013, 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 9., 12. og 22. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32022R2526 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 328, 22.12.2022, p. 66 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | C(2022)6696 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur |