Tillaga að ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins um breytingu á tilskipun 2003/87/EB að því er varðar tilkynningu um jöfnun um alþjóðlega markaðstengda ráðstöfun fyrir flugrekendur með aðsetur í Sambandinu. - 32023D0136
Decision (EU) 2023/136 of the European Parliament and of the Council of 18 January 2023 amending Directive 2003/87/EC as regards the notification of offsetting in respect of a global market-based measure for aircraft operators based in the Union
Ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/136 frá 18. janúar 2023 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB að því er varðar tilkynningu um jöfnun er varðar hnattræna markaðstengda ráðstöfun fyrir umráðendur loftfara með staðfestu í Sambandinu
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 334/2023 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Tillaga um að leggja lagaskyldu á landsbundin stjórnvöld aðildarríkjanna að tilkynna viðbótarjöfnun fyrir umráðendur loftfara í ESB að því er varðar losun þeirra árið 2021 fyrir 30. nóvember 2022 vegna CORSIA kerfisins, sem verður að öllum líkindum núll.
Nánari efnisumfjöllun
Tillaga um breytingu á reglum um flug í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS kerfinu) til að innleiða tilkynningu aðildarríkja um kolefnisjöfnun (e. offsetting) flugrekenda innan EES (ESB) fyrir árið 2021 skv. alþjóðlegu kerfi um samdrátt í losun frá flug (e. Carbon Offsetting and Reduction Scheme for International Aviation, CORSIA).CORSIA er kolefnisjöfnunarkerfi þar sem flugfélög sem eru skráð í þeim ríkjum og hafa staðfest þátttöku í kerfinu, kolefnisjafna koltvísýringslosun sína sem fer yfir ákveðna grunnlínu með alþjóðlegum kolefniseiningum. Vegna COVID-19 heimsfaraldursins ákvað ráð Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (e. International Civil Aviation Organization, ICAO) í júní 2020 að nota ætti losun ársins 2019 sem grunnlínu fyrir árin 2021-2023 í stað meðaltals losunar á árunum 2019-2020 eins og áður hafði verið ákveðið.ESB hyggst innleiða CORSIA inn í sína löggjöf og því ættu flugrekendur sem eru staðsettir innan ESB (EES) að gera upp losun sína ef við á til að vera í reglufylgni við CORSIA vegna losunar ársins 2021. Aðildarríki ESB ættu að reikna út og upplýsa flugrekendur um jöfnun sína að því er varðar losun ársins 2021 fyrir 30. nóvember 2022 eins og reglur og ráðlagðir starfshættir CORSIA segja til um. Eftir það ættu flugrekendur að gera jafna losun sína fyrir 31. janúar 2025. Vegna COVID-19 heimsfaraldursins dróst losun frá flugi innan ETS kerfisins saman um 64% árið 2020 samanborið við árið 2019. Samkvæmt spá Evrópsku flugöryggisstofnunarinnar (e. European Organisation for the Safety of Air Navigation, Eurocontrol) myndi losun ekki verða sú sama og hún var árið 2019 fyrr en árið 2024, en versta sviðsmyndin spáir slíkri aukningu ekki fyrr en árið 2029.Þessar spár gera ekki ráð fyrir neinum raunverulegum kröfum um jöfnun í CORSIA á tímabilinu 2021-2023 þar sem ólíklegt er að flugrekendur munu ná yfir grunnlínuna. Hins vegar ætti engu að síður að vera lagaskylda innan Sambandsins fyrir aðildarríki að tilkynna jöfnunartölur til flugrekenda í ESB fyrir 30. nóvember 2022 að því er varðar losun ársins 2021. Þegar litið er til ofangreindra staðreynda um losun ársins 2020 og fyrri hluta árs 2021, eru mjög litlar líkur á því að kröfur CORSIA um kolefnisjöfnun verði að veruleika fyrir árið 2021 og sömuleiðis fyrir árið 2022. Þar af leiðandi gerir þessi tillaga ráð fyrir að nú þegar sé ljóst að viðbótarjöfnunartalan að því er varðar árið 2021 verði líklegast núll, en aðildarríki skulu, á árinu 2022, tilkynna þetta til flugrekenda.ETS skuldbindingar flugrekenda innan ESB halda gildi sínu eins og löggjöf Sambandsins kveður á um samkvæmt tilskipun 2003/87/EB (ETS tilskipunin). Þessar skuldbindingar fela í sér skyldu til að vakta og tilkynna um losun þeirra, þar með talið þá losun sem tengist flugi milli EES-ríkjanna og þriðju landa.Endurskoðun á ETS reglunum í samræmi við nýjan aðgerðapakka ESB um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda um 55% fyrir árið 2030 (e. „Fit for 55“), felur í sér innleiðingu á CORSIA í gegnum ETS tilskipunina.Aðrar breytingar sem tengjast innleiðingu CORSIA fela í sér ákvæði um notkun alþjóðlegra eininga fyrir flug utan EES; uppgjörskyldur fyrir flug utan EES; meðhöndlun flugrekenda utan ESB fyrir flug utan Evrópu; meðhöndlun flugrekenda innan ESB á leiðum þar sem CORSIA er ekki beitt á sama hátt; og umfjöllun tilskipunarinnar um flug flugrekenda innan ESB á milli tveggja þriðju landa. Framangreindar breytingar sem tengjast innleiðingu CORSIA eru innifaldar í víðtækari tillögu að tilskipun um breytingu á ETS tilskipuninni því er varðar framlag flugs til markmiðs ESB um að draga úr losun þvert á hagkerfið og innleiða viðeigandi ráðstafanir á heimsmarkaði. Ný málsgrein bætist við 12. gr. ETS tilskipunarinnar sem leggur lagaskyldu á landsbundin stjórnvöld aðildarríkjanna að tilkynna viðbótarjöfnun fyrir umráðendur loftfara í ESB að því er varðar losun þeirra árið 2021 fyrir 30. nóvember 2022, sem líkt og að ofan greinir, verður líklega núll.Þeir flugrekendur sem tilkynna skal um eru þeir flugrekendur sem um getur í 1. gr. framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1603, sem innleiðir CORSIA og eftir því sem við á, vöktun og skýrslugjöf losunar. Þessir flugrekendur þurfa í fyrsta lagi að hafa flugrekstrarskírteini útgefið af aðildarríki ESB eða eru skráðir í aðildarríki ESB, þar með talið þau sem eru staðsett á ystu svæðum (e. outermost regions), héruðum og yfirráðasvæðum þess aðildarríkis. Í öðru lagi þurfa þeir að losa árlega meira en 10.000 tonn af koltvísýring og vottaður hámarksflugtaksmassi er meiri en 5.700 kg í flugi sem fellur undir 1. viðauka ETS tilskipunarinnar, önnur en þau sem koma og fara til sama aðildarríkis (þ.m.t. ystu svæði sama aðildarríkis), frá 1. janúar 2019. Ríkisflug (e. state flights), mannúðarflug, sjúkraflug, herflug og flug í tengslum við slökkvistarf eiga ekki við þessa grein.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyta þarf 27. gr. a. í lögum um loftslagsmál nr. 70/2012. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32023D0136 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 19, 20.1.2023, p. 1 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2021) 567 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Ísland) |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 48, 13.6.2024, p. 72 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/1419, 13.6.2024 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Hvít: Ekki þörf á laga- eða reglugerðabreytingum til að innleiða gerðina |
|---|
Breytir (Modifies)
| COM(2021) 567 52021PC0567 |
adopts | Decision (EU) 2023/136 of the European Parliament and of the Council of 18 January 2023 amending Directive 2003/87/EC as regards the notification of offsetting in respect of a global market-based measure for aircraft operators based in the Union | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32003L0087 | amends | Directive 2003/87/EC of the European Parliament and of the Council of 13 October 2003 establishing a scheme for greenhouse gas emission allowance trading and amending Council Directive 96/61/EC | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 12016E192 | based on |
