Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2463 frá 3. nóvember 2023 um birtingu notendahandbókar þar sem lýst er nauðsynlegum áföngum til aðildar í umhverfisstjórnunarkerfi Evrópusambandsins (EMAS) skv. reglugerð (EB) nr. 1221/2009 - 32023D2463
Commission Decision (EU) 2023/2463 of 3 November 2023 on the publication of the user’s guide setting out the steps needed to participate in the EU eco-management and audit scheme (EMAS) pursuant to Regulation (EC) No 1221/2009 of the European Parliament and of the Council


Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.01 Almenn atriði |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 139/2024 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Ákvörðunin felst í endurútgáfu á notendaleiðbeiningum sem lýsa nauðsynlegum áföngum til aðildar í umhverfisstjórnunarkerfi Evrópusambandsins (EMAS). Umhverfisstjórnunarkerfi eru meðal verkfæra sem félög og önnur fyrirtæki/stofnanir geta notað til að bæta árangur sinn í umhverfismálum og jafnframt sparað orku og aðrar auðlindir.
Nánari efnisumfjöllun
Notendahandbókin var upphaflega samþykkt af framkvæmdastjórninni árið 2013 með ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (tilkynnt með númeri C(2013) 1114) (2013/131/ESB) en henni hefur verið breytt í tvígang. Þar sem breytingar hafa verið gerðar var talið æskilegt að endurútgefa handbókina til að auka skýrleika.Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1221/2009 frá 25. nóvember 2009 um frjálsa aðild fyrirtækja/stofnana að umhverfisstjórnunarkerfi Bandalagsins (EMAS) var innleidd í íslenskan rétt með reglugerð nr. 334/2013.Eitt markmið í umhverfisstefnu ESB er að hvetja allar tegundir fyrirtækja/stofnana til að nota umhverfisstjórnunarkerfi og að draga úr umhverfisáhrifum sínum. Umhverfisstjórnunarkerfi eru meðal verkfæra sem félög og önnur fyrirtæki/stofnanir geta notað til að bæta árangur sinn í umhverfismálum og jafnframt sparað orku og aðrar auðlindir.Notendahandbókin varðandi umhverfisstjórnunarkerfi ESB var útbúin í samræmi við kröfurnar í 5. mgr. 46. gr. reglugerðar (EB) nr. 1221/2009.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Óþarfi er að breyta lögum eða reglugerð en það gæti verið tilefni til að breyta reglugerð nr. 344/2013 um frjálsa þátttöku fyrirtækja og stofnana í umhverfisstjórnunarkerfi Evrópusambandsins (EMAS). Ákvarðanir sem hafa verið teknar upp í EES-samninginn, og hafa ekki verið innleiddar í landsrétt, eru ekki bindandi sem almennar reglur en þær geta samt sem áður haft þýðingu við skýringu og túlkun EES-réttar og við teljum þessar leiðbeiningar geta verið notaðar til skýringar og túlkunar á reglugerð (EB) nr. 1221/2009. Ef ákveðið væri að innleiða ákvörðunina væri tilvísunaraðferðin rétta aðferðin til innleiðingar en það er ekki skylda til að innleiða hana. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
---|---|
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Ekkert fyrirtæki eða stofnun er með EMAS vottun við gerð þessarar greiningar. |
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32023D2463 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2023/2463, 10.11.2023 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 72, 3.10.2024, p. 37 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/2436, 3.10.2024 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Hvít: Ekki þörf á laga- eða reglugerðabreytingum til að innleiða gerðina |
---|