32023R0443
Commission Regulation (EU) 2023/443 of 8 February 2023 amending Regulation (EU) 2017/1151 as regards the emission type approval procedures for light passenger and commercial vehicles
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/443 frá 8. febrúar 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1151 að því er varðar gerðarviðurkenningaraðferðir vegna losunar frá léttum farþega- og atvinnuökutækjum
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.01 Vélknúin ökutæki |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 207/2023 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með gerðinni er verið að samræma skilgreiningar í Evrópugerðum sem fjalla um gerðarviðurkenningar ökutækja. Tekin eru út ákvæði sem eru ekki lengur viðeigandi og öðrum bætt við í samræmi við þróun nýjustu tækni til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Lítil áhrif hér á landi og eingöngu óbein. Kostnaður óverulegur.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Með gerðinni er verið að samræma skilgreiningar í Evrópugerðum sem fjalla um gerðarviðurkenningar ökutækja. Tekin eru út ákvæði sem eru ekki lengur viðeigandi og öðrum bætt við í samræmi við þróun nýjustu tækni til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Sem dæmi eru ákvæði um að setja sérstök tæki í ný ökutæki sem nota má til að greina hvort þau virki í samræmi við grunnlosunaraðferð (BES) eða í samræmi við aukalosunaraðferð (AES). Verið er að gera ákveðnar breytingar á WLTP aðferðinni sem notuð hefur verið til að meta losun samræmi við nýjustu tækniframfarir. Almennt: Reglugerð (ESB) nr. 715/2007 kveður á um gerðarviðurkenningu vélknúinna ökutækja með tilliti til útblásturs þeirra. Í henni er gerð krafa um að létt farþega- og atvinnuökutæki uppfylli ákveðin losunarmörk. Sértæk tæknileg ákvæði sem nauðsynleg eru til að innleiða þá reglugerð er að finna í reglugerð (ESB) nr. 2017/1151. Í ljósi þess að í reglugerð (ESB) 2018/858 er kveðið á um gerðarviðurkenningu vélknúinna ökutækja er rétt að samræma skilgreiningar í þeirri reglugerð við reglugerð (ESB) 2017/1151 og ná þannig samræmi í lögum um gerðarviðurkenningar.Reglugerðin öðlast gildi 1. september 2023. Þrátt fyrir það skulu landsyfirvöld, miðað við 1. mars 2023, veita ESB-gerðarviðurkenningu fyrir nýja tegund ökutækis, veita framlengingu fyrir núverandi gerð ökutækis og heimila skráningu, markaðssetningu og notkun nýs ökutækis, séu skilyrði þessarar reglugerðar uppfyllt.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Engir framleiðendur ökutækja, gerðarviðurkenningaryfirvöld eða fyrirtæki sem veita tækniþjónustu af þessu tagi eru á Íslandi og hefur reglugerðin því lítil sem engin áhrif hér á landi eins og stendur. Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 69. gr. umferðalaga nr. 77/2019. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Kostnaður við innleiðingu þessarar reglugerðar er metinn óverulegur sem enginn. Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Tengsl við umhverfisráðuneyti en ekki bein skörun.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Nei. Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoðin er 69. gr. umferðalaga nr. 77/2019. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32023R0443 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 66, 2.3.2023, p. 1 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D082562/03 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 35, 25.4.2024, p. 34 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/925, 25.4.2024 |
Breytt af (Modified by)
| 32024R1257 | implicitly repeals | Regulation (EU) 2024/1257 of the European Parliament and of the Council of 24 April 2024 on type-approval of motor vehicles and engines and of systems, components and separate technical units intended for such vehicles, with respect to their emissions and battery durability (Euro 7), amending Regulation (EU) 2018/858 of the European Parliament and of the Council and repealing Regulations (EC) No 715/2007 and (EC) No 595/2009 of the European Parliament and of the Council, Commission Regulation (EU) No 582/2011, Commission Regulation (EU) 2017/1151, Commission Regulation (EU) 2017/2400 and Commission Implementing Regulation (EU) 2022/1362 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Breytir (Modifies)
| 32017R1151 | amends | Commission Regulation (EU) 2017/1151 of 1 June 2017 supplementing Regulation (EC) No 715/2007 of the European Parliament and of the Council on type-approval of motor vehicles with respect to emissions from light passenger and commercial vehicles (Euro 5 and Euro 6) and on access to vehicle repair and maintenance information, amending Directive 2007/46/EC of the European Parliament and of the Council, Commission Regulation (EC) No 692/2008 and Commission Regulation (EU) No 1230/2012 and repealing Commission Regulation (EC) No 692/2008 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32007R0715 | based on | Regulation (EC) No 715/2007 of the European Parliament and of the Council of 20 June 2007 on type approval of motor vehicles with respect to emissions from light passenger and commercial vehicles (Euro 5 and Euro 6) and on access to vehicle repair and maintenance information. | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
