Regulation (EU) 2023/839 of the European Parliament and of the Council of 19 April 2023 amending Regulation (EU) 2018/841 - 32023R0839

Regulation (EU) 2023/839 of the European Parliament and of the Council of 19 April 2023 amending Regulation (EU) 2018/841 as regards the scope, simplifying the reporting and compliance rules, and setting out the targets of the Member States for 2030, and Regulation (EU) 2018/1999 as regards improvement in monitoring, reporting, tracking of progress and review


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, bókun) 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð (ESB) 2023/839 fjallar um breytingar á Reglugerð (ESB) 2018/841 („LULUCF Regulation“), og á reglugerð (ESB) 2018/1999 („Governance Regulation“). Reglugerð 2018/841 fjallar um skuldbindingar og uppgjörsreglur vegna losunar og bindingar frá landnotkun, breyttri landnotkun og skógrækt (e. Land use, land use change and forestry – LULUCF). Helsta breytingin felst í því að skuldbindingar fyrir LULUCF skv. upprunulegu LULUCF reglugerð munu einungis gilda fyrir tímabilið 2021-2025. Fyrir tímabilið 2026-2030 verða sett markmið um losun/bindingu fyrir hvert aðildarríki, sem er alveg nýtt fyrirbæri fyrir LULUCF hluta losunarbókhaldsins. Einnig eru settar auknar kröfur um aðferðafræði fyrir vöktun og skýrslugjöf varðandi LULUCF flokkinn, en ítarlegur listi yfir kröfurnar kemur fram í 3. hluta Viðauka V reglugerðar 2018/1999. Að lokum má nefna að reglur varðandi sveiganleika eru breyttar.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð (ESB) 2023/839 um breytingu á reglugerð (ESB) 2018/841 („LULUC Regulation“) og á reglugerð (ESB) 2018/1999 („Governance Regulation“) er hluti af aðgerðarpakka ESB í loftlagsmálum sem miðar að því að aðildarríki að ESB dragi úr gróðurhúsalofttegundum um a.m.k. 55% fyrir árið 2030. Aðgerðarpakkinn var kynntur í júlí 2021 (e. „Fit for 55”)  og var fyrsta tillaga um breytingu birt í lok árs 2021. Í byrjun árs 2023 var tillagan uppfærð og tók samþykkt reglugerð gildi þann 11. maí 2023. með uppfærð tillögu birt í byrjun 2023 og samþykkt reglugerð sem tók gildi 11 Maí 2023.Reglgerð (ESB) 2018/841  var tekin upp í Bókun 31 EES-samningsins árið 2019 með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2019 og var reglugerðin innleidd í íslenskan rétt með 9. tölul. 47. gr. laga um loftslagsmál nr. 70/2012. Tilteknar greinar úr Reglugerð (ESB) 2018/1999, sem taldar voru nauðsynlegar til að geta framfylgt reglugerðir (ESB) 2018/841 og 2018/842 („Effort Sharing Regulation“), voru einnig innleiddar í sömu ákvörðun nr. 269/2019, en reglugerð (ESB) 2018/1999 í heild sinni hefur ekki enn verið tekin inn í EES samningnum, en sú gerð er sem stendur  greiningarferli hjá Orkustofnun og Umhverfisstofnun.Helstu breytingar á reglugerð 2018/841 fela í sér uppfærslur á markmiðum, (1. gr.), gildissviði (2. gr.), skilgreiningum (3. gr), skuldbindingum aðildarríkjanna (4. gr.), breytingum á uppgjörsreglum (e. accounting rules, 6-10. gr.) og reglum um sveigjanleika (e. flexibilities) ásamt viðbótum við þær (11. gr., 12. gr., 13. gr. og 13. gr. b.). Vert er að nefna hér að tilvísanir til ákvæða eiga við um ný eða breytt ákvæði tilskipunar 2023/841 nema annað sé tekið fram.§  Gildissvið:o    Skuldbindingartímabil 2021-2025: Gildissvið verður áfram eins og það er í upprunulegu reglugerðinni.o   Skuldbindingartímabil 2026-2030: Gildissvið hefur verið uppfært. Flokkar munu endurspegla IPCC leiðbeiningar / gagnagruninn UNFCCC (CRT).§  Skilgreiningar:o    Skilgreining á hugtakinu „Natural disturbances“ hefur verið rýmkuð. Nú mun hugtakið ekki einungis ná yfir skógarlendi heldur alla landflokka.§  Markmið:o    Yfirmarkmið ESB í loftslagsmálum: Samhliða breytingu á yfirmarkmiði ESB fyrir árið 2030 hefur markmið Evrópusambandsins (e. national determined contribution) gagnvart Parísarsamkomulaginu jafnframt verið uppfært. Á losun Sambandsins samkvæmt því að vera 55% lægri á árinu 2030 en hún var árið 1990, en áður var miðað við 40% minni losun. Yfirmarkmiðið nær til losunar sem fellur undir reglugerð (ESB) 2018/842 (reglugerð um losun á beinni ábyrgð ríkja, þ.e. ESR reglugerð), reglugerð (ESB) 2018/841 (reglugerð um landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt, þ.e. LULUCF reglugerð og er sú reglugerð sem er fjallað um hér) og losun sem fellur undir tilskipun 2003/87/EC (tilskipun um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, þ.e. ETS tilskipunin). Hingað til hefur yfirmarkmið ESB ekki náð yfir losun og bindingu frá LULUCF en skuldbinding fyrir LULUCF var að finna í svokallaðri „no-debit rule“, sem fól í sér að losun mætti ekki fara umfram bindingu þegar reiknað væri samkvæmt þágildandi bókhaldsreglum, sbr. 4. gr.  þágildandi reglugerðar.  Verði tillagan samþykkt mun losun og binding frá LULUCF falla undir  55% yfirmarkmiðið.o   Markmið ESB fyrir LULUCF uppfært: Samtals losun og binding vegna LULUCF verði -310 milljón tonn CO2 (þ.e.a.s. 310 milljón tonn CO2 binding) á árinu 2030.§  Skuldbindingar aðildarríkja:o    Fyrir tímabilið 2021-2025: LULUCF skuldbindingar haldast að mestu leyti óbreyttar (losun sé ekki meiri en binding  (e. no-debit rule));o   Markmið 2030 fyrir aðildarríki: Hvert aðildarríki fær 2030 losunar- og bindingarmarkmið sem byggð eru á meðallosun áranna 2016-2018 eins og losunartölur voru samþykktar eftir úttekt á ári 2020 og byggð á flatarmál stýrðs lands (e. Managed land). Er þetta mjög mikilvægt atriði fyrir losunarbókhalds Íslands því skilgreining á „managed land“ getur verið álitamál og þ.e.a.s er óljóst hversu stórt flatarmál stýrt land er á Íslandi.o   Markmið 2026-2029 fyrir aðildarríki: Aðildarríki fá úthlutað „budget“, þ.e. losunarúthlutanir fyrir tímabilið 2026-2029. Þar verður reiknað með línulegum samdrætti frá 2022 til 2030 markmiðs, og útreikningar muna byggja á meðaltali losunar og bindingar áranna 2021-2023 eftir ítarlegri úttekt (e. Comprehensive review) sem mun vera framkvæmt á losunarbókhaldsgögnum sem skilað verur árið 2025.§  Bókhaldsreglur:o   Uppfært: Kröfur um aðferðafræði fyrir vöktun og skýrslugjöf varðandi LULUCF flokkinn eru auknar verulega, með umfangsmikilli breytingu á 3. hluta viðauka V. reglugerðar (ESB) 2018/1999. Í fyrsta lagi er gerð krafa um að frá og með 2028 skilum verði breytingar á öllum kolefnisforða metnar með aðferðum á gæðaþrepi 2 (Tier 2). Það þýðir að allar kolefnisforðabreytingar innan LULUCF sem skráðar eru í bókhaldi Íslands skulu byggðar á innlendum gögnum og rannsóknum. Þá eru jafnframt gerðari ríkari kröfur varðandi. vöktun kolefnisforðaríkra, verndaðra og endurheimtra landsvæða, (votlendi og skógar) en skilgreiningar á slíkum svæðum koma m.a. fram í ESB reglugerðum og tilskipunum sem ekki hafa verið teknar upp í EES-samningnum. Þar eru gerðar kröfur um að kolefnisforðabreytingar á þeim svæðum verði metnar með aðferðum á gæðaþrepi 3 (Tier 3) frá og með 2030 skilum nema að þau séu minni en 1% af heildarflatarmáli stýrðra svæða (managed land). Ljóst er að stór landssvæði munu falla undir þennan flokk. Vegna þess að það er viðbúið að með auknar kröfur um bætta aðferðafræði mun losunarbókhaldið taka breytingum sem fram koma í 14. og 15. gr. reglugerðar 2018/841  þar sem fram kemur að sett verði framseld reglugerð um leiðrétting á aðferðafræði (e. „methodological adjustments“) til að gera grein fyrir bættum gögnum þegar athugað verður hvort að farið sé að tilskildum ákvæðum (e. compliance check) árin 2027 og 2032.§  Uppgjörsreglur:o   Óbreytt: Á árinu  2027 verður gerð ítarleg úttekt (e. comprehensive review) á losunarbókhaldinu  fyrir árin 2021-2025 og eru uppgjörsreglur þeirrar úttektar byggðar á „no-debit rule“ fyrirkomulaginu, þar sem losun og binding vegna graslendis og ræktunarlands er m.v. losun og bindingu áranna 2005-2009 og losun og binding vegna skógræktar er m.v. viðmiðunargildi fyrir skóga (e. Forest Reference Level).o   Uppfært: Uppgjörið fyrir árin 2026-2030 mun fara fram eftir ítarlegri úttekt á árinu 2032, og verður metið fyrir tímabilið 2026-2029 hvort að LULUCF nettólosun sé meiri eða minni en markmiðið fyrir það tímabil, sett skv. 3. mgr. 4. gr. Ef aðildarríkin standa ekki undir markmiði sínu eftir að hafa tekið tillit til sveigjanleikaákvæða, verður umfram losun í CO2 ígildum margfölduð með stuðlinum 1,08 og bætist við losun ársins 2030. Þetta er nýtt fyrirkomulag hvað varðar LULUCF bókhald, en er sambærilegt þeim refsiákvæðum sem fram koma í 9. gr. reglugerðar (ESB) 2018/842.§  Sveigjanleikareglur til að tryggja reglufylgni (e. compliance):o    Óbreytt: Fyrir uppgjörstímabilið 2021-2025 verður áfram hægt að nota losunarheimildir sem úthlutaðar voru skv. 4. gr. reglugerðar (ESB) 2018/842 til að standast LULUCF skuldbindingar, ef losun er meiri en binding í LULUCF flokknum skv. reikniaðferðum sem skilgreindar eru í reglugerð þessari. Einnig verður áfram hægt að nota bindingareiningar frá LULUCF ef binding er meiri en losun til að standast skuldbindingar skv. reglugerð 2018/842 (með hámark bindingareininga skilgreint í viðauka III. Reglugerðar (ESB) 2018/842)Óbreytt: Fyrir uppgjörstímabilið 2021-2025 stendur enn til boða að nota sveigjanleika vegna skóglendis í umhirðu (e. managed forest land flexibility, skammstafað MFLF), með sömu skilyrði og fram koma í upprunalegu reglugerðinni. Hámarksveigjanleiki sem nota má nemur 50% af því heildarmagni sem fram kemur í viðauka VII. reglugerðarinnar. Vert er að nefna að eitt af skilyrðunum snýr að kröfu um að fram komi í langtímaáætlun, sbr. 15. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1999, tilteknar áætlanir til að tryggja, eins og við á, verndun eða eflingu, eins og við á, viðtaka og geyma í skógum. Í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2019, sem m.a. staðfestir upptöku reglugerðar (ESB) 2018/841 í EES-samninginn, var sett aðlögun um að EFTA ríkin skuli skila áætlun um landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt með að minnsta kosti 30 ára heildarsýn í ljósi þess að 15. gr reglugerðar (ESB) 2018/1999 var ekki tekin upp í EES-samninginn.o   Nýtt: Ef um losun vegna náttúruhamfara er að ræða og MFLF nær ekki að bæta upp losun frá skógarlendi í umhirðu, verður aðildarríkjunum kleift að  sækja um meiri uppbótarmagn en það magn sem fram kemur í Viðauka VII, ef heildarmagn sem er í boði fyrir MFLF fyrir ESB í heild sinni hefur ekki verið notað til fulls.o   Nýtt: Ef aðildarríki uppfylla ekki fyrirliggjandi kröfur um vöktun eins og þær hafa verið uppfærðar í Viðauka V reglugerðar 2018/1999 má það ríki ekki millifæra losunarúthlutanir til annarra ríkja, né sækja um að nota MFLF.o   Uppfært: Í upprunalegu reglugerðinni var aðildarríkjum heimilt að safna upp (e. banking), með ákveðnum skilyrðum, nettó bindingu frá fyrra skuldbindingartímabilinu (2021-2025), til að nota á seinna skuldbindingartímabilinu (2026-2030). Þessa heimild var að finna í 3. mgr. 12. gr. en ákvæðið hefur verið tekið út og er þ.a.l. er ekki lengur heimilt að safna upp nettó bindingu á milli tímabila.o   Nýtt: Fyrir tímabilið 2026-2030 er sett nýtt sveigjanleikaákvæði (e. Land use mechanism), sem felur í sér heimild aðildarríkjanna til að nýta sér sveigjanleika sem nemur samtals -178 milljón tonn CO2e fyrir öll ESB ríkin (samsvarar helmingnum af samtals MFLF skv. viðauka VII.), sem aðildarríkin mega sækja um ef að nettó losun þeirra er meira en fram kemur í viðauka IIa. Skilyrðin, þ.á.m. hámarksheimild til að nota þennan sveigjanleika, eru svipuð og fyrir MFLF á fyrra tímabilinu, en þar mun væntanlega vera þörf á aðlögun fyrir EFTA ríkin þar sem skilyrðin vísa í uppfærslu á landsbundnum orku- og loftlagsáætlunum (e. National Energy and Climate plans)(skv. 14. gr reglugerðar (ESB) 2018/1999), sem EFTA ríkin þurfa einungis að skila að hluta til skv. iii-lið í aðlögun fyrir reglugerð 2018/841 í ákvörðun sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 269/2019. Einnig ber að skila upplýsingum um áhrif náttúrulegra raskana (e. natural disturbances) á losun/bindingu á tímabilinu 2026-2026 til að heimilt sé að nota þennan sveigjanleika, sem og upplýsingum um óviðráðanleg langtímaáhrif loftslagsbreytinga sem geta leitt til frekari losunar eða minni bindingar eða haft áhrif á óvenjulega hátt hlutfall lífræns jarðvegs á stýrðu landi. Þessi sveiganleiki verður einungis í boði ef heildarbinding ESB er minna en 310 milljón tonn CO2-íg árið 2030.o   Ný grein 13d skilgreinir það verklag sem ber að fylgja ef ljóst er að aðildaríki mun ekki uppfylla 2030 markmið sitt. Kemur þar fram að aðildarríki munu þurfa að senda framkvæmdastjórninni aðgerðaráætlun með rökstuðningi fyrir frávikum, tímalínu fyrir úrbætum, sem og útskýringum á hvernig ESB fjármagn hefur verið, og hvernig það verði  nýtt í aðgerðir til að ná LULUCF markmiðunum. Kanna þarf hvort að Íslandi hafi aðgang á slíku fjármagni. o    Skýrslur um reglufylgni  (e. compliance reports)Uppfært: Áfram þurfa aðildaríki að skila skýrslu um reglufylgni, þann 15. mars 2027 fyrir uppgjörstímabil 2021-2025 og þann 15. mars 2032 fyrir uppgjörstímabil 2026-2030. Með þessari reglugerð eru settar auknar kröfur varðandi innihald skýrslanna, m.a. bætist við mat á stefnum og aðgerðum varðandi fórnarskipti (e. trade-offs), mat á samlegðaráhrifum milli ráðstafanna sem miða að því að draga úr loftlagsbreytingum, ráðstafana sem miða að því að aðlagast loftlagsbreytingum ásamt mati á samlegðaráhrifum á milli ráðstafana sem miða að því að draga úr loftlagsbreytingum og líffræðilegrar fjölbreytni. Einnig þarf að koma fram hvernig ríki hafa framfylgt meginreglunni um að valda ekki skaða (e. the do no significant harm principle) við gerð aðgerðaáætlunar til að ná markmiðum sínum skv. reglugerðinni. Að lokum þarf einnig að koma fram skýringar á hvernig ríki hyggjast nota sveiganleikaákvæðin í uppgjörinu.§  Aðrar breytingar á reglugerð (ESB) 2018/1999 sem ekki hafa verið nefndar fyrir ofan: Reglugerð (ESB) 2023/839 inniheldur m.a. breytingar á ákvæðum í reglugerð (ESB) 2018/1999 sem ekki hafa verið tekin inn í EES samninginn með JCD 269/2019, m.a. mgr. (a)(1)(ii) gr.4 og mgr.2 gr.9 en ekki gert er ráð fyrir að það komi í veg fyrir innleiðingu á uppfærðri reglugerð 2018/841. Einnig er ný mgr 4a. bætt við 37.gr reglugerðar um að ef að fram kemur í úttektum að nettóbinding hafi breyst um meira en 500 kt CO2e eigi að framkvæma ítarlegri úttekt á LULUCF hlutann losunarbókhaldsins.  
  

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lög nr. 70/2012 um loftslagsmál.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Já
Hvaða hagsmunaaðilar Landgræðslan, Skógræktin, Landgræðslan
Niðurstöður samráðs Umhverfisstofnun fékk reglugerð þessa til greiningar þegar fyrsta tillaga að uppfærslu á LULUCF reglugerð var birt árið 2021 (COM(2021) 554),og aftur þegar önnur tillaga var birt árið 2023. Greining þessi varðar lokaútgáfuna af birtri reglugerð. Umhverfisstofnun upplýsti unarbókhaldssérfræðinga hjá Landgræðslunni og Skógræktinni um báðar tillögur og fóru þeir yfir drögin á greiningum Umhverfisstofnunar á tillögunum; ásamt því að tryggja að efnisumfjöllun greiningarinnar sé áreiðanleg. Niðurstöður samráðs leiddu í ljós að breytingar þær sem fram koma í reglugerð 2023/839 varðandi gæði á losunarbókhaldsgögnum, ásamt aukinni vinnu vegna ítarlegrar úttekta og skýrslna um reglufylgni árin 2027 og 2032, munu að mestu leyti hafa áhrif á LULUCF sérfræðinga, og þ.a.l. á Landgræðsluna og Skógræktina. Ítarlegri umfjöllun hvað þetta varðar má finna undir „Nánari útskýring á kostnaði, þ. á m. á hvern hann fellur“og í fylgiskjali.

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Talsverður viðbótarkostnaður mun falla á Landgræðsluna og Skógræktina, sem eru þær stofnanir sem bera ábyrgð á útreikningum á LULUCF hluta losunarbókhaldsins. Kostnaðurinn felst m.a. í launum, tækjabúnaði, ferðakostnaði sem og kostnaði við efnagreiningar, sem að mati Landgræðslunnar og Skógræktar gæti numið 837 milljónum kr. fyrir árin 2024-2026. Uppfærsla á aðferðafræði úr þrepi 2 í þrep 3 krefst mikillar líkanagerðar og tölfræðiúrvinnslu og byggir á því að til séu gögn sem hægt sé að nýta við líkanagerðina. Ofangreind kostnaðargreining miðar við upphafið á þeirri gagnaöflun. Eftir 2026 má gera ráð fyrir töluverðum áframhaldandi kostnaði við mælingar og vöktun (þó eitthvað lægri) auk kostnaðar við líkanagerð sem er a.m.k. á við þrjú stöðugildi sérfræðings í eitt ár.
Nánari útlistun á kostnaði fyrir árin 2024-2026 má finna í viðhengi.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Eins og fram kemur í efnisumfjöllun hér að ofan er ljóst að áhrif skilgreiningar á „managed land“ eru veruleg þegar kemur að því að ákvarða hvert markmið ársins 2030 verður og mun velta á því hvaða skilgreining verður notuð. Skv. bráðabirgðaútreikningum getur munurinn numið um 700 kt. CO2-íg. og því mikilvægt er að athuga vel hvaða skilgreiningin er talin réttust.
Einnig er vert að benda á að með innleiðingu þessarar reglugerðar breytast verulega reiknireglur varðandi uppgjör fyrir LULUCF á seinna skuldbindingartímabilinu (2026-2030). Með þessari breytingu er lögð áhersla á heildarlosun og heildarbindingu frá LULUCF, frekar en muninn milli losunar og viðmiðs (e. no-debit rule), þ.e. viðmiðunartímabils fyrir graslendi og ræktunarlendi og skógarviðmiðs (e. Forest Reference Level) fyrir skóglendi. Ef þessi breyting á uppgjörsreglum mun haldast í gildi eftir 2030, þá er líklegt að útreikningar ESB vegna kolefnishlutleysis muni byggja á nettólosun frá LULUCF, frekar en á útreikningum á milli losunar og viðmiðs. Ef Ísland ætlar að nota sömu reiknireglur og ESB hvað varðar kolefnishlutleysi fyrir árið 2040, þá munu aðgerðir til að ná markmiðinu sennilega þurfa að taka mið af þessu.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R0839
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 107, 21.4.2023, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2021) 554
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

COM(2021) 554
52021PC0554
adopts Regulation (EU) 2023/839 of the European Parliament and of the Council of 19 April 2023 amending Regulation (EU) 2018/841 as regards the scope, simplifying the reporting and compliance rules, and setting out the targets of the Member States for 2030, and Regulation (EU) 2018/1999 as regards improvement in monitoring, reporting, tracking of progress and review Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32018R1999 amends Regulation (EU) 2018/1999 of the European Parliament and of the Council of 11 December 2018 on the Governance of the Energy Union and Climate Action, amending Regulations (EC) No 663/2009 and (EC) No 715/2009 of the European Parliament and of the Council, Directives 94/22/EC, 98/70/EC, 2009/31/EC, 2009/73/EC, 2010/31/EU, 2012/27/EU and 2013/30/EU of the European Parliament and of the Council, Council Directives 2009/119/EC and (EU) 2015/652 and repealing Regulation (EU) No 525/2013 of the European Parliament and of the Council Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32018R0841 amends Regulation (EU) 2018/841 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2018 on the inclusion of greenhouse gas emissions and removals from land use, land use change and forestry in the 2030 climate and energy framework, and amending Regulation (EU) No 525/2013 and Decision No 529/2013/EU Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
12016E192 based on