Útdráttur
Verið er að leggja grunninn að harðari markmiðum um losun gróðurhúsalofttegunda frá fólksbilum og léttum atvinnuökutækjum. Framkvæmdastjórninni er falin heimild til að breyta markmiðunum og útreikningi þeirra eftir því sem þörf er metin á. Þá er verið að flýta fyrir því að eldri og mengandi ökutækjum verði skipt út fyrir önnur sem menga minna eða ekki neitt. Áhrif hér á landi eingöngu óbein. Kostnaður telst falla innan reglubundinnar starfsemi Samgöngustofu.
Nánari efnisumfjöllun
Lengri:Markmið sem að er stefnt: Þær ráðstafanirnar sem gerðar eru í þessari reglugerð eru gerðar til að ná markmiðum Evrópusambandsins um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Með minni losun mun sambandið auðveldara með að afla nægjanlegs eldsneytis til samgangna og annarra þátta daglegs lífs. Sambandið mun þannig verða sjálfstæðara.Aðdragandi: Eigi losun gróðurhúsalofttegunda að hafa dregist saman um a. m. k. 55% árið 2030 miðað við viðmiðunar árið 1990 er nauðsynlegt að auka þær kröfur um samdrátt sem settar voru fram í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/631 bæði fyrir fólksbíla og létta atvinnubíla.Þá þarf einnig að gera skýra grein fyrir því hvernig standa á að málum eftir 2030 þannig að markmiðinu um hlutleysi í loftslagsmálum verði náð fyrir árið 2050. Án metnaðarfullra aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda sem hljótast af flutningum á vegum væri þörf á meiri samdrætti í losun í öðrum geirum.Efnisútdráttur: Verið er að tryggja að sömu aðferðir verði notaðar við útreikning á sérstökum losunarmarkmiðum sem framleiðendum hafa verið sett. Auk þess er verið að fela framkvæmdastjórninni vald til að samþykkja afleiddar gerðir til fyllingar á ákvæðum reglugerðar (ESB) 2019/631, þ.m.t. breyta, eftir þörfum þeim útreikningum sem notaðir eru.Kaup og sala á notuðum ökutækjum skapar hættu á að losun koltvísýrings og önnur mengun í andrúmslofti færist til fátækari svæða sambandsins. Til að flýta fyrir því að bifreiðum verði skipt úr fyrir aðrar sem engin losun kemur frá er afar mikilvægt að til þess verði beitt hvötum.ESB markmiðin eiga að uppfærast með tilliti til hvernig gengur að beita hvötum, m.a. hvernig gengur að gera aðgang að eldsneyti auðveldari með því að koma upp nauðsynlegum innviðum. Því er mikilvægt að fjárfestingar í þeim verði auknar. Þannig verður dreifing endurnýjanlegrar orku sem kveðið er á um í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 betri.Tilkynning gagna um ökutæki í flokkum M2 (rútur) og N2 (meðalstórar vöruflutningabifreiðar) falla undir gildissvið reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/956. Því er rétt að fella út ákvæði um skil á upplýsingum um þá flokka bifreiða úr reglugerð (ESB) 2019/631.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Breyting á 2. gr. gæti haft áhrif á flokkun ökutækja þar sem skilgreiningu á N1 er breytt lítilsháttar með hliðsjón af aflgjafa. Gæti haft áhrif á svokallað „Real world data“. Mat á því verður gert við áframhaldandi vinnu Samgöngustofu vegna 2019/631.Að öðru leyti eingöngu óbein áhrif. Bein áhrif verða aðallega á framleiðendur og framkvæmdastjórnina.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðina er að finna í 4. mgr. 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.Innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Gæti verið kostnaður við uppfærslu á tölvukerfum ef óskað er frekari gagna frá Samgöngustofu vegna skila á gögnum úr 2019/631. Sá kostnaður fellur innan marka reglubundinnar starfsemi Samgöngustofu.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.