Nýfæði - 32023R0931
Commission Implementing Regulation (EU) 2023/931 of 8 May 2023 amending Implementing Regulation (EU) 2017/2470 as regards the conditions of use of the traditional food from a third country infusion from coffee leaves of Coffea arabica L. and/or Coffea canephora Pierre ex A. Froehner


Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/931 frá 8. maí 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470 að því er varðar skilyrði fyrir notkun hefðbundinna matvæla frá þriðja landi sem eru seyði úr kaffilaufum af Coffea arabica L. og/eða Coffea canephora Pierre ex A. Froehner
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 229/2023 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/931 frá 8. maí 2023 um breytingu á framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 hvað varðar notkunarskilyrði fyrir hefðbundið fæði frá þriðja ríki seyði af kaffilaufum af Coffea arabica L. og/eða Coffea canephora Pierre ex A. Froehner.
Nánari efnisumfjöllun
Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/931 frá 8. maí 2023 um breytingu á framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 hvað varðar notkunarskilyrði fyrir hefðbundið fæði frá þriðja ríki seyði af kaffilaufum af Coffea arabica L. og/eða Coffea canephora Pierre ex A. Froehner. Gerðin varðar reglugerð (ESB) 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði. Seyði af kaffilaufum af Coffea arabica L. og/eða Coffea canephora Pierre ex A. Froehner var leyft sem hefðbundið fæði frá þriðja ríki með reglugerð (ESB) 2020/917 og er á lista yfir leyfilegt nýfæði í reglugerð 2017/2470. Sótt hefur verið um leyfi til breytinga á notkunarskilyrðum fyrir þessa afurð í samræmi við 10. gr. reglugerðar (ESB) nr. 2015/2283.Sótt er um leyfi til að nota seyðið í bragðbætta og óbragðbætta óáfenga drykki tilbúna til neyslu og kaffi ásamt ýmsum öðrum kaffi-, te- og jurtadrykkjum o.fl. Drykkirnir eru ætlaðir almennum neytendum. Framkvæmdastjórnin telur að ólíklegt sé að breytingin á notkunarskilyrðum sé líkleg til að hafa áhrif á heilsu almennings og að ekki sé þörf á umsögn Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA). Viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er því breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Gerðin verður innleidd sem breyting við reglugerð nr. 900/2018, og með stoð í lögum um matvæli, nr. 93/1995. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Atvinnuvegaráðuneyti |
---|---|
Ábyrg stofnun | Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32023R0931 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 124, 10.5.2023, p. 1 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 35, 25.4.2024, p. 70 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/973, 25.4.2024 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
---|---|
Viðeigandi lög/reglugerði |