Nýfæði - 32023R0961

Commission Implementing Regulation (EU) 2023/961 of 12 May 2023 amending Implementing Regulation (EU) 2017/2470 as regards the conditions of use of the novel food Lacto-N-neotetraose


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/961 frá 12. maí 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470 að því er varðar skilyrði fyrir notkun á nýfæðinu laktó-N-neótetraósa
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 224/2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdareglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/961 um breytingu á Framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 að því er varðar notkunarskilyrði fyrir nýfæðið Laktó-N-neótetraósa

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (ESB) 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði.Óskað hefur verið eftir því að felld verði úr gildi skilyrði fyrir notkun Laktó-N-neótetraósa, þegar hann er notaður með 2′-Fúkósýllaktósa í ungbarnablöndur og stoðblöndur og í mjólkurdrykki og sambærilegar vörur fyrir ung börn. Skilyrðin takmarki að óþörfu notkunarmöguleika matvælafyrirtækja til að markaðssetja þessar vörur.Framkvæmdastjórnin telur að umbeðnar breytingar séu ekki  líklegar til að hafa áhrif á heilsu neytenda og að umsagnar Matvælaöryggisstofnunar Evrópu væri ekki þörf.Viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð.  

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breyting á reglugerð nr. 900/2018 sem innleiðir Framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 um lista sambandsins yfir leyfilegt nýfæði, sett með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R0961
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 129, 16.5.2023, p. 3
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 35, 25.4.2024, p. 59
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/944, 25.4.2024