32023R1028
Commission Delegated Regulation (EU) 2023/1028 of 20 March 2023 amending Regulation (EU) No 748/2012 as regards the definition of complex motor-powered aircraft and correcting that Regulation


Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1028 frá 20. mars 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar skilgreiningu á flóknum, vélknúnum loftförum og um leiðréttingu þeirrar reglugerðar
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 297/2024 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Verið er að gera breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012. Með gerðinni er sett fram skilgreining á flóknu, vélknúnu loftfari, e. complex motor-powered aircraft, í þeim tilgangi að samræma reglugerðina við reglugerð (ESB) 2018/1139. Þá er markmið breytinganna að leiðrétta villur og rangar tilvísanir sem komu fram með reglugerð (ESB) 2022/1358 um breytingu á reglugerð (ESB) 748/2012. Lítil áhrif, enginn kostnaður.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Um er að ræða reglugerð um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012. Með gerðinni er sett fram skilgreining á flóknu, vélknúnu loftfari, e. complex motor-powered aircraft, í þeim tilgangi að samræma reglugerðina við reglugerð (ESB) 2018/1139. Þá er markmið breytinganna að leiðrétta villur og rangar tilvísanir sem komu fram með reglugerð (ESB) 2022/1358 um breytingu á reglugerð (ESB) 748/2012.Efnisútdráttur: Í reglugerð (ESB) nr. 748/2012 er mælt fyrir um framkvæmdarreglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja. Með þessari gerð er sett fram skilgreining á hugtakinu flókið, vélknúið loftfar. Er það gert til að samræma reglugerðina við reglugerð (ESB) 2018/1139.Þá snýr gerðin að því að leiðrétta breytingar og tilvísanir í viðauka sem voru gerðar með reglugerð 2022/1358 til að forðast rugling. Leiðréttingarnar snúa að ákvæðum 3. gr. 8. gr. og 9. gr. reglugerðar (ESB) 748/2012.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Reglugerðin hefur lítil áhrif. Gerðin snýr að því að aðlaga reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að reglugerð (ESB) 2018/1139 og því að leiðrétta breytingar sem hafa verið gerðar á tilteknum ákvæðum hennar í þeim tilgangi að koma í veg fyrir rugling.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 72. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að innleiða reglugerðina með breytingu á reglugerð nr. 380/2013.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Enginn kostnaður metinn við innleiðingu þessarar reglugerðar.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoðin er 72. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Rétt væri að innleiða reglugerðina með breytingu á reglugerð nr. 380/2013. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32023R1028 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 139, 26.5.2023, p. 10 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | C(2023)1760 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 25, 24.4.2025, p. 78 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/594, 24.4.2025 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
---|---|
Viðeigandi lög/reglugerði |