Heilsufullyrðingar - 32023R1101
Commission Regulation (EU) 2023/1101 of 6 June 2023 refusing to authorise a health claim made on foods and referring to children’s development and health


Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1101 frá 6. júní 2023 um synjun leyfis fyrir heilsufullyrðingu er varðar matvæli og vísar til þroskunar og heilbrigðis barna
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 260/2023 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1101 um synjun leyfis fyrir heilsufullyrðingu er varðar matvæli og vísar til þroskunar og heilbrigðis barna.
Nánari efnisumfjöllun
Samkvæmt reglugerðinni eru næringar og heilsufullyrðingar bannaðar nema þær séu heimilaðar af framkvæmdastjórn ESB í samræmi við reglugerð 1924/2006 og birtar á lista yfir leyfilegar fullyrðingar. Sótt var um leyfi fyrir fullyrðingu í samræmi við gr. 14(1), b í reglugerð (ESB) nr. 1924/2006. Matvælaöryggisstofnuninni (EFSA) var falið að skila áliti á vísindalegum rökstuðningi fyrir heilsufullyrðingu sem tengist lífrænum matvælum og framlagi þeirra til verndar líkamsfrumum og sameindum (lípíðum og DNA) gegn oxunarskemmdum, og þar sem markhópurinn er heilbrigð börn á aldrinum 3 til 15 ára. Fullyrðingin sem umsækjandi lagði til var svohljóðandi: „Lífræn matvæli (lægra magn varnarefnaleifa en í hefðbundnum matvælum) stuðlar að verndun líkamsfrumna og sameinda (lípíð og DNA) gegn oxunarskemmdum.“ Framkvæmdastjórnin og aðildarríkin fengu vísindalegt álit EFSA. Í áliti EFSA benti stofnunin á að magn varnarefnaleifa sem þarf til að einkenna matvæli sem „lífræn“ hefur hvorki verið tilgreint í umsókninni né í rannsóknum á mönnum sem lagðar hafa verið fram til að rökstyðja heilsufullyrðinguna og komst að þeirri niðurstöðu að á grundvelli framlagðra gagna er matvælunum , þ.e. lífræn matvæli, sem eru grundvöllur heilsufullyrðingarinnar ekki nægjanlega lýst og því getur orsök og afleiðingarsamband ekki vera komið á milli neyslu lífrænna matvæla og verndar líkamsfrumum og sameindum frá oxunarskemmdum. Af því leiðir að heilsufullyrðingin uppfyllir ekki kröfur reglugerðar (EB) nr. 1924/2006 fyrir skráningu á skrá Sambandsins yfir leyfilegar heilsufullyrðingar, ætti ekki að leyfa hana. Á grundvelli ályktana EFSA hafnar Framkvæmdastjórnin því umsókninni.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Gerðin verður innleidd sem ný reglugerð með tilvísun í reglugerð (ESB) 1924/2006, sett með stoð í lögum um matvæli, 93/1995. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Áhrif
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
---|
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Atvinnuvegaráðuneyti |
---|---|
Ábyrg stofnun | Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32023R1101 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 147, 7.6.2023, p. 2 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Samþykktardagur i ESB |
---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur | |
Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 42, 16.5.2024, p. 27 |
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/1155, 16.5.2024 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
---|---|
Viðeigandi lög/reglugerði |