Reglugerð um breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd - 32023R1219

Commission Delegated Regulation (EU) 2023/1219 of 17 May 2023 amending Delegated Regulation (EU) 2016/1675 as regards adding Nigeria and South Africa to the table in point I of the Annex and deleting Cambodia and Morocco from that table


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1219 frá 17. maí 2023 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 að því er varðar að bæta Nígeríu og Suður-Afríku í töfluna í I. lið í viðaukanum og að fella Kambódíu og Marokkó brott úr þeirri töflu
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 09 Fjármálaþjónusta, 09.02 Bankar og aðrar fjármálastofnanir
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 189/2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð sem breytir lista yfir áhættusöm þriðju lönd samkvæmt framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675, sbr. reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 105/2020.

Nánari efnisumfjöllun

Framseld reglugerð (ESB) 2016/1675 er innleidd hér á landi með reglugerð nr. 105/2020 um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Með reglugerðinni fylgdi listi yfir þau ríki sem talin eru glíma við vankanta á vörnum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og hafa annað hvort skuldbundið sig til að vinna að úrbótum á þeim vörnum í samráði við alþjóðlega aðgerðahópinn FATF eða hefur mistekist við þær úrbætur og eru tilgreind sem slík í opinberri yfirlýsingu samtakanna.Reglulega eru gerðar breytingar á umræddum lista. Þær breytingar eru gerðar með breytingarreglugerðum við framselda reglugerð (ESB) 2016/1675. Þær reglugerðir eru sömuleiðis innleiddar hér á landi með breytingarreglugerðum við reglugerð nr. 105/2020. Reglugerðin er þess háttar en með henni er verið að bæta við og fjarlægja nöfn ríkja af listanum.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 105/2020. Lagastoð er í 56. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Önnur ráðuneyti sem hafa aðkomu Dómsmálaráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R1219
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 160, 26.6.2023, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 26, 21.3.2024, p. 20
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/814, 21.3.2024