32023R1435
Commission Delegated Regulation (EU) 2023/1435 of 2 May 2023 amending Regulation (EC) No 1272/2008 of the European Parliament and of the Council on classification, labelling and packaging of substances and mixtures as regards the modification of entries in Part 3 of Annex VI for 2-ethylhexanoic acid and its salts, boric acid, diboron trioxide, tetraboron disodium heptaoxide hydrate, disodium tetraborate anhydrous, orthoboric acid sodium salt, disodium tetraborate decahydrate, and disodium tetraborate pentahydrate
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1435 frá 2. maí 2023 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna að því er varðar að breyta færslum í 3. hluta VI. viðauka um 2-etýlhexansýru og sölt hennar, bórsýru, díbórtríoxíð, tetrabórdínatríumheptaoxíðhýdrat, dínatríumtetrabórat, vatnsfrítt, ortóbórsýru, natríumsalt, dínatríumtetrabóratdekahýdrat og dínatríumtetrabóratpentahýdrat
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 265/2023 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun og merkingu og umbúðir efna og efnablandna. Skrá yfir samræmda flokkun og merkingu hættulegra efna í VI. viðauka, 3 hluta, töflu 3 er breytt.
Nánari efnisumfjöllun
Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun og merkingu og umbúðir efna og efnablandna (CLP). Skrá yfir samræmda flokkun og merkingu hættulegra efna í VI. viðauka, 3 hluta, töflu 3 er breytt.Breytingarnar tengjast viðbótum við athugasemdir sem koma fram í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1434 frá 25. apríl 2023 sem kemur til framkvæmda 31. júlí 2023, þar sem athugasemdum X, 11 og 12 var bætt við til að gera leiðbeiningar um samræmda hættuflokkun skilmerkilegri að því leyti að tekið verði mið af samlagningaráhrifum hættulegra efna í efnablöndum og eiginleika sem hópar efna hafa sameiginlega við hættuflokkun efnablandna. Þetta var gert í kjölfar samantektar á vísindarannsóknum á efnunum sem talin eru upp í færslunum hér fyrir neðan.Breytingarnar fela í sér að fjórum færslum í töflu 3 er skipt út fyrir nýjar færslur þar sem bætt er við bókstaf eða tölustaf undir athugasemdir sem eiga við um færsluna:a) Fyrir Skránúmer 005-007-00-2, bórsýra er bætt við athugasemd 11b) Fyrir Skránúmer 005-008-00-8, díbóron tríoxíð er bætt við athugasemd 11c) Fyrir Skrárnúmer 005-011-00-4, tetrabór dínatríum heptaoxíð hýdrat, dínatríum tetrabór anhýdríð, orþóbórsýru natríum salt, dínatríum tetrabór dekahýdríð, dínatríumtetrabór pentahýdríð er bætt við athugasemd 11d) Fyrir Skránúmer 607-230-00-6, 2-etýlhexansýru ásamt söltum þess er bætt við athugasemdum X og 12 og einnig athugasemd A þar sem fyrir færslu efna sem er lýst sem sambönd eða sölt skal birgir tilgreina rétt nafn á miða vörunnar. Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu reglugerðarinnar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og kemur til framkvæmda 1. febrúar 2025.Birgjar mega flokka og merkja efni og efnablöndur sem koma fram í viðauka við þessa reglugerð í samræmi við reglugerð (EB) nr. 1272/2008, samkvæmt breytingum í þessari reglugerð frá 31. júlí 2023.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Breyta þarf reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna sem innleiðir reglugerð Evrópusambandsins nr. 1272/2008 (CLP) hér á landi. Reglugerðin er innleidd með tilvísunaraðferð. Lagastoð er að finna í 2. tölul. 1. mgr. 11. gr efnalaga nr. 61/2013. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32023R1435 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 176, 11.7.2023, p. 6 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | C(2023)2674 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 42, 16.5.2024, p. 33 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/1149, 16.5.2024 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
|---|---|
| Viðeigandi lög/reglugerði |
