FuelEU-reglugerð um sjóflutninga. - 32023R1805
Regulation (EU) 2023/1805 of the European Parliament and of the Council of 13 September 2023 on the use of renewable and low-carbon fuels in maritime transport, and amending Directive 2009/16/EC
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.05 Sjóflutningar |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð þessi fjallar um ákveðin skilyrði sem gerð eru til farþegaskipa og flutningaskipa yfir 5000 brúttótonnum að stærð hvað varðar styrk gróðurhúsalofttegunda frá þeirri orku sem notuð er á skipi frá og með 2025. Einnig er með reglugerðinni sett ný skylda á farþegaskip og gámaflutningaskip hvað varðar orkunotkun við bryggju frá og með 2030. Með reglugerð þessari er einnig gerð ein breyting á tilskipun 2009/16/EB um hafnarríkiseftirlit, nánar tiltekið er FuelEU-reglufylgniskjali bætt á lista yfir þau skjöl sem kanna skal við skipaeftirlit skv. IV viðauka tilskipunarinnar.
Nánari efnisumfjöllun
EfniReglugerð sú sem hér er til greiningar inniheldur reglur og skilyrði varðandi styrk gróðurhúsalofttegunda frá þeirri orku sem notuð er á skipum innan Evrópusambandsins (hér eftir ESB) frá 2025, auk þess að mæla fyrir um skyldu til notkunar aflgjafa á landi (e. on-shore power supply) þegar gámaflutninga- og farþegaskip liggja við höfn í aðildarríki frá árinu 2030. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að notkun á endurnýjanlegu- og lágkolefniseldsneyti (e. renewable and low-carbon fuels) með því að tryggja að styrkur gróðurhúsalofttegunda frá þeirri orku sem notuð er í sjóflutningum minnki línulega með tímanum og greiða þannig fyrir orkuskiptum í sjóflutningum innan ESB. Er þetta í samræmi við markmið ESB um kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. Sá aðili sem ber ábyrgð á að framfylgja reglum skv. reglugerð þessari er fyrirtæki (e. company), sem er eigandi skips eða annar aðili sem tekið hefur á sig þær skuldbindingar og ábyrgð sem eigandanum ber, sbr. skilgreiningu í 13.-lið 3. gr. reglugerðarinnar. Reglugerð þessi mælir fyrir um tvennt:Takmörk á styrk gróðurhúsalofttegunda frá þeirri orku sem notuð er í skipum sem koma í höfn, eru í höfn eða fara úr höfn í lögsögu aðildarríkis, sbr. 4. gr.:Í 1. og 2. mgr. 4. gr. er að finna skilyrði varðandi þau takmörk sem gilda um styrk gróðurhúsalofttegunda frá þeirri orku sem notuð er á skipi yfir vöktunartímabil, þ.e. hámark er sett á styrk gróðurhúsalofttegunda frá orku sem nota má á skipi árlega. Eins og sést í ákvæðinu aukast þær kröfur sem gerðar eru á hverjum fimm árum sem líða frá árunum 2025 til 2050.Hér undir fellur koldíoxíð (CO2) en einnig metan (CH4) og díköfnunarefnisoxíð (N2O).Í 5. gr. reglugerðarinnar er fjallað um notkun endurnýjanlegra orkugjafa af ólífrænum uppruna (e. renewable fuels of non-biological origin (hér eftir RFNBO)) og sérstaka útreikninga hvað þá varðar því þó framleiðslukostnaður þess konar orkugjafa sé mun hærri en hefðbundins eldsneytis er geta hans og möguleikar til að koma í stað kolefnislosandi eldsneytis verulegir. Því er markmið reglnanna að ýta undir notkun á RFNBO án þess þó að mismuna annars konar orkugjöfum sem einnig nýtast við að ná sama markmiði. Líkt og nánar er mælt fyrir um í 5. gr. er heimilt að notast við sérstaka aðferð skv. viðauka I þegar styrkur gróðurhúsalofttegunda frá orku skips er reiknaður út, ef að skip notar RFNBO, frá 1. janúar 2025 gil 31. desember 2033. Er hér um að ræða ákveðinn hvata til notkunar á RFNBO.Í 2. mgr. 5. gr. kemur fram að framkvæmdastjórnin skuli vakta, reikna út og gefa árlega út hvert hlutfall RFNBO skuli vera í árlegri orku sem notuð er á skipi sem fellur undir reglugerð þessa, svokallað undirmarkmið. Í 6., 7. og 8. mgr. sömu greinar má finna skyldu og heimild framkvæmdastjórnarinnar til að samþykkja framkvæmdargerðir og framseldar gerðir með nánari reglum um hlutfall RFNBO, útreikninga, skilyrði, sveigjanleikareglur og FuelEU-sektir.Skv. 9. mgr. 5. gr. skal framangreint undirmarkmið fyrir RFNBO ekki eiga við fyrir skip sem sýna fram á að sama hlutfalli sé náð með notkun annars konar eldsneytis sem hefur í för með sér samsvarandi sparnað í losun og er vottað skv. 10. gr. reglugerðar þessarar, sjá þó undantekningu varðandi lífeldsneyti (e. biofuels) í lokamálslið 9. mgr. 5. gr.Ákvæði 9. gr. eiga ekki við hvað varðar árlega orkunotkun skipa frá aflgjafa á landi (e. on-shore power supply, hér eftir nefnt OPS). Í 10. gr. er fjallað um þær reglur sem gilda varðandi vottun (e. certification) og losunarstuðla þegar lífeldsneyti (e. biofuels), lífgas (e. biogas), RFNBO, endurunnið kolefniseldsneyti (e. recycled carbon fuels) og eldsneyti af öðrum uppruna, er tekið með í reikninginn í tilgangi 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar. Skylda til notkunar aflgjafa á landi (OPS) eða tækni án losunar (e. zero-emission technology) í höfnum innan lögsögu aðildarríkis, sbr. 6. gr.:Í 6. gr. reglugerðarinnar er að finna skyldu skips til að tengja sig við OPS fyrir alla rafmagnsnotkun skipsins á meðan það liggur við bryggju (e. at berth). Sú skylda skal gilda frá 1. janúar 2030 fyrir farþegaskip og gámaflutningaskip í ákveðnum tilvikum, en í 5. mgr. 6. gr. má finna undantekningar. Er þessu ætlað að draga úr mengun skipa í höfnum sem eru yfirleitt við þéttbýli. GildissviðSkv. 2. gr. reglugerðar þeirrar sem hér er til greiningar gildir hún um skip yfir 5000 brúttótonnum sem flytja farþega eða farm í viðskiptalegum tilgangi, óháð fánaríki, hvað varðar:þá orku sem notuð er í höfn innan lögsögu aðildarríkis;alla þá orku sem notuð er á siglingum úr höfn innan lögsögu aðildarríkis til hafnar innan lögsögu aðildarríkis;þrátt fyrir b-lið, helming þeirrar orku sem notuð er á siglingum til eða frá höfn sem staðsett er á ysta svæði (e. outermost region) innan lögsögu aðildarríkis; oghelming þeirrar orku sem notuð er á siglingum til eða frá höfn innan lögsögu aðildarríkis, þar sem næsta höfn er innan lögsögu þriðja ríkis. Skv. 7. mgr. 2. gr. gildir sama undantekning á gildissviði reglugerðar þessarar og gildir um sjóflutninga skv. ETS-tilskipuninni og reglugerð (ESB) 2015/757, þ.e. reglugerðin gildir ekki um herskip, hjálparskip í flota, fiskiskip eða fiskvinnsluskip, tréskip með frumstæðu byggingarlagi, skip sem er ekki knúið áfram með vélrænum hætti eða skip í eigu eða rekstri ríkisins sem ekki er nýtt í viðskiptalegum tilgangi. Auk þess er aðildarríkjum heimilt að ákveða tilteknar undantekningar frá gildissviðinu að nánari skilyrðum uppfylltum, sbr. 3.-6. mr. 2. gr. reglugerðar þessarar.Í 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar segir að framkvæmdastjórnin skuli setja framkvæmdarreglugerð um lista yfir umskipunarhafnir fyrir gámaflutninga (e. neighbouring container transhipment ports) fyrir 31. desember 2025, en samkvæmt 10.-lið 3. gr. falla umskipunarhafnir fyrir gámaflutninga ekki undir skilgreiningu reglugerðarinnar á „viðkomuhöfn“ (e. port of call).[1]Frá 1. janúar 2030 nær skyldan til að nota OPS við bryggju skv. 6. gr. reglugerðarinnar yfir gámaflutninga- og farþegaskip sem eru fest við bryggju í höfn sem fellur undir 9. gr. reglugerðar (ESB) 2023/1804 og er í lögsögu aðildarríkis. Frá 1. janúar 2035 nær skyldan yfir slík skip sem fest eru við bryggju í höfn sem fellur ekki undir 9. gr. reglugerðar (ESB) 2023/1804 en sem er í lögsögu aðildarríkis, sé bryggjan útbúin aðgengilegu OPS. Frá 1. janúar 2030 til 31. desember 2034 getur aðildarríki ákveðið að slík skip sem fest eru við bryggju í höfn innan lögsögu viðkomandi aðilarríkis, sem ekki fellur undir 9. gr. reglugerðar (ESB) 2023/1804, eða í tilteknum hluta slíkrar hafnar, skuli tengjast OPS, sbr. 3. mgr. 6. gr. Undantekningar frá gildissviði 6. gr. er að finna í 5. mgr. þeirrar greinar. StjórnsýsluríkiÍ 65.-lið aðfararorða reglugerðar þessarar segir að til að lágmarka stjórnsýslulega byrði eigi aðeins eitt aðildarríki að bera ábyrgð á framkvæmd og eftirfylgni reglugerðarinnar. Segir einnig að viðeigandi ákvæðum tilskipunar 2003/87/EB (hér eftir nefnd ETS-tilskipunin) skuli beitt til að ákvarða stjórnsýsluríki (e. the administering State) hvers fyrirtækis fyrir sig, sbr. 40-lið 3. gr. reglugerðar þessarar, þar sem „administering State“ er skilgreint með vísan til 1. mgr. 3gf. gr. ETS-tilskipunarinnar, með fyrirvara um val þeirra lögbæru stjórnvalda sem um ræðir í hverju aðildarríki. Aðildarríki skulu koma upplýsingum um nöfn og tengiliði þeirra stjórnvalda sem skulu bera ábyrgð á framkvæmd og fullnustu reglugerðar þessarar til framkvæmdastjórnarinnar, sbr. 27. gr. reglugerðar þessarar.Í 1. mgr. 3gf. gr. ETS-tilskipunarinnar er að finna nánari reglur um það hvernig stjórnsýsluyfirvald hvers skipafyrirtækis (e. administering authority in respect of a shipping company) er ákvarðað og fer það eftir skráningu skips eða fjölda siglinga innan tiltekins svæðis á ákveðnu tímabili. Fyrir 1. febrúar 2024 mun framkvæmdastjórnin gefa út lista yfir það hvaða skipafyrirtæki falla undir hvaða stjórnsýsluyfirvöld, sbr. 2. mgr. 3gf. gr. ETS-tilskipunarinnar. Vöktun, skýrslugjöf og vottunFyrirtæki skulu vakta og skila skýrslu um skyldur sínar skv. reglugerð þessari fyrir hvert vöktunartímabil, sbr. 7. gr. og skulu gögnin ná yfir hverja höfn fyrir sig innan lögsögu aðildarríkis og allar ferðir sem vísað er til í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar. Þau skulu ná yfir þá orku sem notuð er á skipi hvort sem það er á siglingu eða við bryggju.Skv. 8. gr. reglugerðar þessarar skal fyrirtæki skila vöktunaráætlun til vottunaraðila fyrir hvert skip fyrir sig fyrir 31. ágúst 2024. Fyrir þau skip sem falla ekki undir gildissvið reglugerðar þessarar fyrr en eftir 31. ágúst 2024 skal skila vöktunaráætlun til vottunaraðila svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en tveimur mánuðum eftir fyrstu viðkomu skipsins í höfn innan lögsögu aðildarríkis. Í 3. mgr. 8. gr. má finna upplýsingar um hvað skal koma fram í vöktunaráætlun. Framkvæmdastjórnin skal setja framkvæmdarreglugerð um stöðluð sniðmát fyrir vöktunaráætlun auk tæknilegra reglna þar um.Skv. 9. gr. reglugerðar þessarar skal fyrirtæki gera athugun á vöktunaráætlun sinni a.m.k. árlega m.t.t. þess hvort hún endurspegli eðli og virkni skipsins sem best má verða og gera breytingar á henni í þeim tilvikum sem talin eru upp í 2. mgr. 9. gr. Fyrirtæki skal tilkynna vottunaraðila um allar breytingatillögur á vöktunaráætlun án tafar.Vottunaraðili skal votta vöktunaráætlun og breytingar á henni í samræmi við 11.-13. gr. reglugerðar þessarar og geyma hana í FuelEU-gagnagrunninum (e. the FuelEU database) þar sem hún er aðgengileg viðkomandi stjórnsýsluríki (e. administering state). Framkvæmdastjórnin skal setja framkvæmdarreglugerð um nánari reglur varðandi vottun, sbr. 5. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar.Í 14. gr. er að finna reglur um faggildingu vottunaraðila og í 5. mgr. þeirrar greinar er heimild framkvæmdastjórnarinnar til að setja framselda reglugerð með nánari reglum varðandi faggildinguna.Skylda fyrirtækis til vöktunar á grundvelli samþykktrar vöktunaráætlunar hefst 1. janúar 2025, sbr. 15. gr. reglugerðarinnar, og í 1. mgr. 15. gr. má finna upplýsingar um hvað skal vakta. Fyrir 31. janúar á hverju vöktunartímabili skal fyrirtæki leggja fram hjá vottunaraðila FuelEU-skýrslu (e. the FuelEU report) sem inniheldur allar upplýsingar sem fram koma í 1. mgr. 15. gr. og þau gögn sem vísað er til í 4. mgr. 7. gr. fyrir viðkomandi vöktunartímabil.Skv. 16. gr. reglugerðarinnar skal vottunaraðili leggja mat á framlagða FuelEU-skýrslu og tilkynna fyrirtæki um allar rangfærslur og vöntun á upplýsingum. Fyrirtæki skal án tafar gera nauðsynlegar úrbætur. Á grundvelli FuelEU-skýrslunnar reiknar vottunaraðili m.a. út styrk gróðurhúsalofttegunda þeirrar orku sem viðkomandi skip notar, reglufylgnistöðu skipsins (e. the ships compliance balance) m.t.t. takmarkana (þ. á m. hvort reglufylgnistaða er jákvæð eða neikvæð), fjölda viðkoma í höfn þar sem reglum um OPS hefur ekki verið fylgt, magn þeirrar orku sem notuð hefur verið um borð í skipi yfir árið, utan við orku frá OPS og magn þeirrar orku frá RFNBO sem notuð hefur verið um borð yfir árið. Viðbótarathugun lögbærs stjórnvaldsÍ 17. gr. reglugerðarinnar er fjallað um þær heimildir sem lögbært stjórnvald viðkomandi fyrirtækis hefur til að framkvæma viðbótarathugun (e. additional checks) á framfylgd tiltekinna þátta í reglugerðinni hvað varðar tvö vöktunarár aftur í tímann. Í fyrsta lagi er um að ræða athugun á FuelEU-skýrslunni skv. 15. og 16. gr., í öðru lagi á vottunarskýrslunni skv. 16. gr. og í þriðja lagi á þeim útreikningum sem vottunaraðili gerir í samræmi við 4. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar. Fyrirtæki skal verða við beiðni lögbærs stjórnvalds um öflun þeirra gagna og upplýsinga sem nauðsynlegar eru fyrir slíka viðbótarathugun og heimila aðgang að svæði fyrirtækisins eða skipi í þeim tilgangi, sbr. 2. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar.Hafi viðbótarathugun verið framkvæmd skal lögbært stjórnvald gefa út viðbótarathugunarskýrslu með uppfærðum útreikningum þar sem við á, þ. á m. uppfærðri stöðu af jákvæðri reglufylgni (e. compliance surplus) eða fyrirfram-jákvæðri reglufylgni (e. advance compliance surplus) og uppfærðri fjárhæð FuelEU-sektar (e. the FuelEU penalty). Skv. 4. mgr. 17. gr. ber lögbæru stjórnvaldi að tilkynna fyrirtæki um það ef breytingar verða á fjárhæð sekta og aðildarríki skal tryggja að sá aðili sem ábyrgur er fyrir skipi á því vöktunartímabili sem um ræðir greiði fjárhæðina innan mánaðar eftir slíka tilkynningu til fyrirtækis, skv. reglunum í 23. gr. reglugerðar þessarar þar sem fjallað er um FuelEU-sektir. Ef framangreind sekt er ekki greidd innan lögbundins frests skal lögbært stjórnvald fjarlægja FuelEU-reglufylgniskjal skipsins (e. the FuelEU document of compliance) úr FuelEU-gagnagrunninum, sbr. 5. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar. Slíkt skjal skal ekki gefið út á ný fyrr en skilyrði reglugerðarinnar hafa verið uppfyllt og sekt greidd að fullu. FuelEU-gagnagrunnurinnSkv. 19. gr. reglugerðarinnar skal framkvæmdastjórnin þróa, tryggja virkni og uppfæra rafrænan gagnagrunn fyrir eftirlit með framfylgd reglugerðar þessarar, svokallaðan FuelEU-gagnagrunn (e. the FuelEU database), sem skal byggður á THETIS-kerfinu eða vera viðbót við það kerfi. Þar er frammistaða hvers skips skráð og skal gagnagrunnurinn notaður fyrir allar helstu athafnir sem skylt er að framkvæma skv. reglugerð þessari. Í 19. gr. er nánar tekið fram hvað skuli fært inn í gagnagrunninn. Gagnagrunnurinn skal vera aðgengilegur fyrirtækjum, vottunaraðilum, lögbærum stjórnvöldum, aðilum sem hlotið hafa til þess viðeigandi umboð, faggildingaraðilum, EMSA (the European Maritime Safety Agency) og framkvæmdastjórninni, með mismunandi aðgangsheimildum eftir því sem við á. Í 3. mgr. 19. gr. er heimild framkvæmdastjórnarinnar til að setja framkvæmdarreglugerð um nánari reglur um aðgangsheimildir og önnur tæknileg atriði í tengslum við gagnagrunninn. Sveigjanleika- og samnýtingarreglurÞar sem reglufylgni við reglugerð þessa getur farið eftir ýmsum þáttum sem fyrirtæki hefur ekki stjórn á, s.s. í tengslum við framboð eða gæði eldsneytis, eru í reglugerð þessari til staðar ákveðnar sveigjanleikaheimildir, sbr. 20. gr. Annars vegar getur fyrirtæki, þar sem reglufylgnistaða (e. compliance balance) vegna styrks gróðurhúsalofttegunda skv. 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar eða vegna hlutfalls RFNBO skv. 3. mgr. 5. gr., er jákvæð(e. compliance surplus), millifært (e. banking) hina jákvæðu reglufylgnistöðu frá einu ári til annars, sbr. 1. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar. Hins vegar getur fyrirtæki fengið að láni (e. borrowing) fyrirfram-jákvæða reglufylgnistöðu (e. advance compliance surplus) frá árinu á eftir, með ákveðnum takmörkunum, sbr. 2. mgr. 20. gr. Skylda til notkunar á OPS fellur þó utan framangreindra sveigjanleikareglna vegna loftgæðasjónarmiða.Til að koma í veg fyrir „tæknilæsingu“ (e. technology lock-in) og styðja við þróun skilvirkustu lausnanna, er fyrirtækjum heimilt að samnýta (e. pooling) reglufylgnistöðu skipa í eigu mismunandi fyrirtækja, sbr. 21. gr. reglugerðarinnar. Þannig er hægt að nýta jákvæða reglufylgni eins skips til að bæta upp fyrir neikvæða reglufylgni annars eða annarra skipa, að því tilskildu að reglufylgnin sé jákvæð í heild. Um er að ræða valkvæða heimild og er hún samkomulagsatriði milli fyrirtækja. Ekki er heimilt að taka þátt í fleiri en einni samnýtingu á sama vöktunartímabili, en samnýta má þó annars vegar reglufylgnistöðu vegna styrks gróðurhúsalofttegunda og hins vegar vegna notkunar RFNBO.Fyrirtæki skulu skrá upplýsingar um millifærslur, lán og samnýtingu á reglufylgnistöðu í FuelEU-gagnagrunninn eftir að vottunaraðili hefur samþykkt þær. Vottunaraðili skal fyrir 30. apríl á hverju vöktunartímabili skrá upplýsingar um lokaskiptingu milli skipa í slíkri samnýtingu í FuelEU-gagnagrunninn. FuelEU-reglufylgniskjal (e. the FuelEU-document of compliance)Í 22. gr. segir að fyrir 30. júní á hverju vöktunartímabili skuli vottunaraðili gefa út FuelEU-reglufylgniskjal fyrir skip, að því tilskildu að reglufylgnistaða skips sé ekki neikvæð, að teknu tilliti til 20. og 21. gr. hvað varðar sveigjanleika og samnýtingu, að skyldu um notkun OPS við bryggju hafi verið fullnægt og að skyldu skv. 24. gr. um að hafa gilt FuelEU-reglufylgniskjal hafi verið fullnægt. Í þeim tilvikum sem FuelEU-sektir skv. 2. eða 5. mgr. 23. gr. reglugerðarinnar hafa ekki verið greiddar, skal lögbært stjórnvald stjórnsýsluríkis gefa út FuelEU-reglufylgniskjal fyrir 30. júní á vöktunartímabilinu, að því tilskildu að fjárhæð FuelEU-sektarinnar hafi verið greidd, sbr. 2. mgr. 22. gr.Skv. 24. gr. reglugerðarinnar skulu öll skip sem koma í höfn, eru í höfn eða fara úr höfn innan lögsögu aðildarríkis, eða sem hafa siglt á yfirstandandi vöktunartímabili, hafa gilt FuelEU-reglufylgniskjal fyrir 30. júní á vöktunartímabili. Slíkt skírteini er til sönnunar á reglufylgni skips skv. reglugerð þessari. Skv. 2. mgr. 25. gr. skal hvert aðildarríki fyrir sig sjá til þess að við skoðun skips (e. inspection of a ship) á grundvelli tilskipunar 2009/16/EB um hafnarríkiseftirlit skuli fara fram athugun á því hvort skipið hafi gilt FuelEU-reglufylgniskjal skv. 24. gr.FuelEU-reglufylgniskjal skal gilda í 18 mánuði eftir að vöktunartímabili lýkur eða þar til nýtt FuelEU-reglufylgniskjal hefur verið gefið út, eftir því hvort gerist á undan. Vottunaraðili eða lögbært stjórnvald, eftir því sem við á, skráir útgefið FuelEU-reglufylgniskjal í FuelEU-gagnagrunninn án tafar. Framkvæmdastjórninni ber að setja framkvæmdargerðir um form og rafrænt sniðmát slíks reglufylgniskjals. FuelEU-sekt (e. the FuelEU penalty)23. gr. reglugerðarinnar fjallar um FuelEU-sektir. Þau skip sem ná ekki markmiðum um árlegan meðalstyrk gróðurhúsalofttegunda frá þeirri orku sem notuð er á skipi skulu greiða FuelEU-sekt. Sektin grundvallast á kostnaði þess endurnýjanlega og kolefnislága eldsneytis sem skip hefði átt að nota til að uppfylla skyldur skv. reglugerð þessari, sbr. 60.-tölul. aðfararorða reglugerðar þessarar. Einnig skal greiða sekt fyrir hverja viðkomu í höfn þar sem reglum er ekki fylgt hvað varðar notkun á OPS, og skal upphæðin vera í réttu hlutfalli við kostnað fullnægjandi rafmagnsnotkunar, reiknað út á tiltekinn hátt, sbr. 61.-tölul. aðfararorða reglugerðarinnar. Tekjur aðildarríkja vegna sekta skulu notaðar til að efla framgang notkunar á endurnýjanlegu eldsneyti og lágkolefniseldsneyti í sjóflutningum og aðstoða rekstraraðila við að ná markmiðum sínum í umhverfis- og loftslagsmálum. Fyrir 30. júní 2030 og með fimm ára millibili upp frá því, skal aðildarríki gefa út opinbera skýrslu um notkun þeirra tekna sem aflað er með FuelEU-sektargreiðslum sem nær yfir síðustu fimm ár fyrir skýrsluárið, sbr. síðari málsl. 11. mgr. 23. gr. reglugerðar þessarar.Skv. 1. mgr. 23. gr. reglugerðarinnar skal vottunarðili fyrir 1. maí á hverju vöktunartímabili skrá í FuelEU-gagnagrunninn hina vottuðu reglufylgnistöðu skips hvað varðar styrk gróðurhúsalofttegunda frá orku skv. 2. mgr. 4. gr. og undirmarkmið fyrir RFNBO skv. 3. mgr. 5. gr., þar sem við á. Skv. 2. mgr. 23. gr. skal stjórnsýsluríki tryggja að fyrirtæki allra skipa með neikvæða reglufylgnistöðu 1. júní á vöktunartímabili greiði fyrir 30. júní á sama vöktunartímabili upphæð sektar sem reiknuð er út skv. aðferð í B-hluta viðauka IV.Skv. 4. mgr. 23. gr. skal vottunaraðili fyrir 1. maí á vöktunartímabili skrá í FuelEU-gagnagrunninn þann heildartíma sem skip við bryggju uppfyllti ekki skilyrði skv. 6. gr. reglugerðar þessarar og skal fyrirtæki greiða sekt í samræmi við það, sbr. 5. mgr. 23. gr.Aðildarríki skulu sjá til þess að í landsrétti séu til staðar lagalegar og stjórnsýslulegar forsendur til að tryggja að þær skyldur er varða álagningu, greiðslu og innheimtu FuelEU-sekta skv. reglugerð þessari verði uppfylltar.Upplýsingar er varða sekt og greiðslu hennar skulu skráðar í FuelEU-gagnagrunninn af þeim aðila sem við á hverju sinni.Fyrirtæki ber aðalábyrgð á greiðslu FuelEU-sekta óháð því hvort fyrirtækið geri samninga við annars vegar rekstraraðila skips og hins vegar eldsneytisbirgja, sem fela í sér að fyrirtæki geti átt endurgreiðslukröfu á viðkomandi rekstraraðila/birgja til að standa straum af kostnaði sem fellur á fyrirtækið vegna sektar, sbr. 8. og 9. mgr. 23. gr. Svipar þetta til ákvæðis 3. gr. gc. í ETS-tilskipuninni og eru rökin að baki þessu þau að framangreindir aðilar geta tekið ákvarðanir er varða orkunotkun skips (m.a. um farm, siglingaleið og hraða) og eldsneytiskaup. ViðurlögÍ 25. gr. reglugerðarinnar kemur fram að aðildarríki skuli setja reglur um viðurlög vegna brota gegn ákvæðum hennar og sjá til þess að þeim sé framfylgt. Tilkynna skal framkvæmdastjórninni vita um umræddar reglur og úrræði og þær breytingar sem gerðar kunna að vera þar að lútandi.Í þeim tilvikum sem skip hefur brotið gegn skyldu 24. gr. um að hafa gilt FuelEU-reglufylgniskjal í tvö eða fleiri samfelld skýrslugjafarár og önnur þvingunarúrræði hafa ekki dugað til að knýja á um framfylgd reglna skv. reglugerð þessari, er lögbæru stjórnvaldi í aðildarríki þeirrar hafnar sem um ræðir, ef ekki er um fánaríki skips að ræða, heimilt að gefa út ákvörðun um brottvísun skips (e. expulsion order), eftir að fyrirtæki hefur verið gefið tækifæri til að leggja fram andmæli, sbr. 3. mgr. 25. gr. reglugerðar þessarar. Öll önnur aðildarríki, að fánaríki undanskildu, skulu neita því skipi sem um ræðir um aðgang að öllum höfnum þar til fyrirtæki efnir skyldur sínar. Í þeim tilvikum sem skip hefur brotið gegn skyldu 24. gr. í tvö eða fleiri samfelld skýrslugjafarár og kemur í höfn í fánaríki sínu, skal viðkomandi aðildarríki ákvarða farbann skips (e. flag detention), eftir að tækifæri hefur verið veitt til andmæla, þar til fyrirtæki uppfyllir skyldur sínar.Ákvörðun aðildarríkis um viðurlög skal tilkynnt framkvæmdastjórninni, öðrum aðildarríkjum og fánaríki viðkomandi skips í gegnum FuelEU-gagnagrunninn, sbr. 5. mgr. 25. gr.Fyrirtæki skal staðfesta uppfyllingu skilyrðis 24. gr. með því að leggja fram gilt FuelEU-reglufylgniskjal hjá því lögbæra stjórnvaldi sem ákvarðaði brottvísun, sbr. 4. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar. Réttur til endurskoðunarSkv. 26. gr. reglugerðarinnar skulu fyrirtæki eiga rétt á því að óska eftir endurskoðun á þeim útreikningum og aðgerðum er vottunaraðili framkvæmir skv. reglugerð þessari, þ. á m. á synjun þess að gefa út FuelEU-reglufylgniskjal skv. 1. mgr. 22. gr. Slík beiðni skal lögð fram hjá lögbæru stjórnvaldi í því aðildarríki þar sem vottunaraðili hlaut faggildingu, innan mánaðar frá því að niðurstaða vottunaraðila um útreikning eða aðferð er tilkynnt.Skv. 2. mgr. 26. gr. skal vera mögulegt að bera þær ákvarðanir sem lögbært stjórnvald tekur á grundvelli reglugerðar þessarar undir dómstóla viðkomandi aðildarríkis. Kostnaður og stjórnsýslubyrðiTil að lágmarka stjórnsýslubyrði á skipaeigendur, fyrirtæki, hafnir og vottunaraðila er í reglugerð þessari vísað til þeirra samlegðaráhrifa sem liggja milli reglugerðar þessarar og annarra reglna, m.a. tilskipunar (ESB) 2023/959 um breytingar á ETS-tilskipuninni og reglugerðar (ESB) 2015/757 um vöktun og skýrslugjöf um losun gróðurhúsalofttegunda í sjóflutningum. Við vöktun og skýrslugjöf skv. 8.-10. og 15. gr. reglugerðar þessarar skal nýta þau gögn sem aflað er á grundvelli reglugerðar (ESB) 2015/757 þar sem við á, sbr. 5. mgr. 7. gr. reglugerðar þessarar. Vottunaraðili getur sömuleiðis notað svipað verklag þar sem við á skv. þessum tveimur reglugerðum, og þeim reglugerðum sem settar verða á grundvelli reglugerðar þessarar. Framkvæmdastjórnin skal, stuttu eftir að reglugerð þessi er birt, kanna samræmi milli reglugerðanna og hvort um mögulegan tvíverknað sé að ræða í einhverjum tilvikum, og gera tillögur að reglugerðarbreytingum ef þurfa þykir, sbr. 1. mgr. 30. gr. reglugerðar þessarar.Framkvæmdastjórnin hefur nú á grundvelli 5. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar gefið út drög að framkvæmdarreglugerð varðandi vottun skv. reglugerð þessari ásamt sniðmátum, á grundvelli 4. mgr. 8. gr. gefið út drög að framkvæmdarákvörðun um staðlaðar vöktunaráætlanir, á grundvelli 5. mgr. 14. gr. gefið út drög að framseldri reglugerð um faggildingu vottunaraðila og á grundvelli 3.-málsl. 8. mgr. 6. gr. gefið út drög að framkvæmdarreglugerð um samskipti er varða OPS.[2] Markmiðið er að einfalda gagnaöflun eins og kostur er með því t.d. að upplýsingar um losun skv. reglugerð (ESB) 2015/757 og um styrk gróðurhúsalofttegunda frá orku skv. reglugerð þessari verði í einni og sömu skýrslunni.Sú stjórnsýslubyrði og kostnaður sem af reglugerð þessari kann að hljóta skal vera í stöðugri skoðun hjá framkvæmdastjórninni. Skal hún skila reglulegum skýrslum til Evrópuþingsins og ráðsins um virkni reglugerðarinnar, hvaða áhrif hún hefur á samkeppni, hvort hún stuðli að undanskotum frá höfnum (e. port evasion), um tækniframfarir sem stuðla að kolefnisleysi í sjóflutningum o.fl., sbr. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar þessarar. GildistakaReglugerð þessi skal gilda frá og með 1. janúar 2025, utan við 8. og 9. gr. um vöktunaráætlun sem skulu gilda frá og með 31. ágúst 2024. [1] Í 68.-lið aðfararorða reglugerðar (ESB) 2023/1805 segir að framkvæmdastjórnin skuli reyna að nýta þær upplýsingar og gögn sem aflað er í tilgangi reglugerðar (ESB) 2015/757 þegar sett verður gerð um lista yfir þær umskipunarhafnir sem falla ekki undir skilgreininguna á „viðkomuhöfn“ samkvæmt reglugerð þeirri sem hér er til greiningar. Framkvæmdastjórnin samþykkti þann 26. október 2023 framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/2297 um „neighbouring container transhipment ports“ sem sett er á grundvelli 2. mgr. 3ga. gr. í tilskipun 2003/87/EB og í viðauka við þá reglugerð er að finna framangreindan lista, en reglugerðin er nú til greiningar hjá Umhverfisstofnun. Samkvæmt framangreindu ætti þessi sami listi að eiga við í skilningi reglugerðar (ESB) 2023/1805 sem hér er til greiningar.[2] Það skal tekið fram að Umhverfisstofnun hefur ekki fengið framangreindar gerðir til greiningar þegar greining þessi er rituð.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Setja þarf ný lagaákvæði í íslensk lög til innleiðingar á reglugerð þessari, þ. á m. með setningu reglugerðarheimilda og sérstaks sektargerðarákvæðis. Hér gætu efnalög nr. 61/2013 komið til greina, sbr. 62. gr. um stjórnvaldssektir, ásamt lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33/2004. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur |
Innleiðing og framkvæmd reglugerðar þessarar mun hafa í för með sér aukalegan kostnað fyrir stjórnvöld og einkaaðila, sér í lagi að því leyti sem ekki verður mögulegt að samræma þær skyldur og athafnir sem stjórnvöldum og fyrirtækjum í sjóflutningum mun bera að framkvæma á grundvelli annarra reglna sem settar hafa verið nú þegar eða verið er að innleiða, s.s. vegna viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir og reglugerðar (ESB) 2015/757. Með innleiðingu reglugerðar þessarar munu koma til framkvæmda ný verkefni í stjórnsýslunni, m.a. hvað varðar yfirumsjón og framfylgd reglna, yfirferð gagna, viðbótarathugun, álagningu og innheimtu sekta, ákvörðun um brottvísun eða farbann skipa, eftirlit með FuelEU-reglufylgniskjali og framfylgd viðurlaga þar sem við á. Þær breytingar sem í reglusetningunni felast kalla á fræðslu, þjálfun og ýmis konar undirbúning vegna nýrra verkefna í stjórnsýslunni. Líkt og fram hefur komið er þó enn óljóst hversu mörg skip munu heyra undir Ísland sem stjórnsýsluríki á grundvelli reglugerðar þessarar. Sömuleiðis fer það eftir því hvaða stjórnvald verður ákvarðað lögbært stjórnvald hvaða verkefni Umhverfisstofnun hlýtur við framkvæmd reglnanna. Samkvæmt framangreindu er umfang og vinna framundan í tengslum við reglugerð þessa og þær reglugerðir sem settar verða á grundvelli hennar (m.a. hvað varðar vottun og skýrslugjöf) enn óljós og þarf því að fara fram ítarlegra mat á kostnaðarþáttum hvað Umhverfisstofnun varðar á síðari stigum. Þörf er á mati annarra viðeigandi stjórnvalda hvað varðar kostnaðarþáttinn að þeirra leyti. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Þegar greining þessi er rituð er óljóst hvaða áhrif reglugerð þessi mun hafa á stjórnsýslu og skipafyrirtæki á Íslandi, en bent er á ákveðna samlegð með innleiðingu reglugerðar þessarar og innleiðingu tilskipunar (ESB) 2023/959 um breytingar á tilskipun 2007/87/EB, þar sem sjóflutningar eru upp að ákveðnu marki felldir inn í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, og einnig á þá samlegð sem er með reglugerð (ESB) 2015/757 um vöktun og skýrslugjöf um losun gróðurhúsalofttegunda í sjóflutningum. Gildissvið þessara þriggja gerða er það sama hvað varðar tegundir skipa fram að 1. janúar 2025 (þegar það víkkar í ETS-kerfinu og í reglugerð (ESB) 2015/757) en hvað varðar tegundir gróðurhúsalofttegunda er hér um að ræða þær sömu og falla undir gildissvið reglugerðar (ESB) 2015/757 (kodíoxíð, metan og díköfnunarefnisoxíð) og einnig þær sömu og munu falla undir ETS-kerfið frá og með 2026. Einnig mun hverju skipafyrirtæki verða ákvarðað sitt stjórnsýsluyfirvald á grundvelli ETS-tilskipunarinnar fyrir 1. febrúar 2024 og mun sami listi gilda hvað varðar reglugerð þessa. Kemur þá í ljós hvaða fyrirtæki heyra undir lögbært stjórnvald hér á landi. Ljóst er að þau fyrirtæki sem undir reglugerðina falla þurfa að skila vöktunaráætlun til vottunaraðila fyrir 31. ágúst á næsta ári, 2024, og skylda til vöktunar hefst 1. janúar 2025. Fyrstu skýrslu skal skila til stjórnsýsluríkis fyrir 31. janúar 2026. Taka þarf ákvörðun um hvaða stjórnvald á Íslandi verði lögbært stjórnvald í skilningi reglugerðarinnar. Í reglugerðinni er m.a. mælt fyrir um að lögbært stjórnvald geti framkvæmt viðbótarathugun (e. additional checks), beri ábyrgð á álagningu og innheimtu FuelEU-sekta og skuli taka ákvarðanir um brottvísun eða farbann skipa. Í tilskipun (ESB) 2023/959, er sömuleiðis mælt fyrir um að eitt aðildarríki geti í ákveðnum tilvikum ákvarðað brottvísun skips og að öðrum aðildarríkjum sé í kjölfarið skylt að neita viðkomandi skipi um aðgang að höfn. Samkvæmt þessu er hugsanlegt að íslenskum stjórnvöldum geti borið skylda til að neita skipum um komu til íslenskra hafna vegna reglugerðar þessarar. Skoða þarf hvort gera þurfi breytingar á reglum um eftirlit með skipum vegna þessa og hvaða opinbera stofnun muni hafa slíka heimild hérlendis. Einnig bætist við það verkefni stjórnvalds sem annast skoðun á skipum að kanna hvort skip hafi gilt FuelEU-reglufylgniskjal. Í reglugerð þessari og í framkvæmdarreglugerð sem sett verður á grundvelli hennar verður fjallað ítarlega um samskipti milli hafnar og skips varðandi aðkomu skips í höfn og möguleika á OPS tengingu. Að þessu leyti munu hafnaryfirvöld líklega spila stórt hlutverk og því er mögulega þörf á aðkomu þeirra við greiningu á hagsmunamati og áhrifum hér á landi. Skv. 2. mgr. 25. gr. verður það að öllum líkindum hlutverk Samgöngustofu að gera könnun á FuelEU-reglufylgniskjali við hefðbundin skipaeftirlit. Samkvæmt framangreindu er þörf á aðkomu annarra hlutaðeigandi stofnana við mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum hér á landi, m.a. Orkustofnun og Samgöngustofa, auk þess sem framangreindar stofnanir þurfa að greina þær laga- og reglugerðarbreytingar sem nauðsynlegar eru til innleiðingar. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Önnur ráðuneyti sem hafa aðkomu | Innviðaráðuneytið |
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
| Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32023R1805 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 234, 22.9.2023, p. 48 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2021) 562 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar |
|---|
Breytt af (Modified by)
| XC(2026) 905 52026XC00905 |
based on |
| XC(2025) 3449 52025XC03449 |
based on |
| XC(2025) 3448 52025XC03448 |
based on |
| XC(2025) 969 52025XC00969 |
based on |
| XC(2025) 636 52025XC00636 |
based on |
Breytir (Modifies)
| COM(2021) 562 52021PC0562 |
adopts | Regulation (EU) 2023/1805 of the European Parliament and of the Council of 13 September 2023 on the use of renewable and low-carbon fuels in maritime transport, and amending Directive 2009/16/EC | Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun |
| 32009L0016 | amends | Directive 2009/16/EC of the European Parliament and of the Council of 23 April 2009 on port State control | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 12016E100 | based on |
Samantekt EUR-Lex
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | maritime transport, greenhouse gas, reduction of gas emissions, energy resources, renewable resources, pollution from ships, marine fuel |
|---|---|
| Subject matter | Fuels, Transport, Pollution |
