32023R2381
Commission Implementing Regulation (EU) 2023/2381 of 29 September 2023 amending Implementing Regulation (EU) 2016/480 establishing common rules concerning the interconnection of national electronic registers on road transport undertakings
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2381 frá 29. september 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/480 um sameiginlegar reglur varðandi samtengingu rafrænna landsskráa yfir flutningafyrirtæki á vegum
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 032/2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Verið er að breyta reglum um skrá yfir þau fyrirtæki sem hafa hlotið leyfi til flutninga á vegum. Gerð var breyting á reglugerðinni sem skráin byggir á og í framhaldi af því þarf að breyta reglum um skrána sjálfa. Lítil áhrif hér á landi og ekki kostnaður tengdur þessari gerð sérstaklega.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Verið er að gera breytingar á framkvæmdareglugerð (ESB) 2016/480 um sameiginlegar reglur varðandi skuldbindingu á samtengingu rafrænna landsskráa í Evrópu fyrir flutning á vegum.Aðdragandi: Gerð er sú krafa í 16. gr. reglugerðar EB nr. 1071/2009 að aðildarríkin haldi rafræna landsskrá yfir fyrirtæki sem stunda flutninga á vegum og hlotið hafa leyfi yfirvalda til að stunda flutninga á vegum í atvinnuskyni. Skráin; European Register of Road Transpor Undertakings, hefur í daglegu tali verið nefnd ERRU. Í 5. og 6. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar er gerð sú krafa að innlendar rafrænar skrár séu samtengdar. Framkvæmdastjórninni er falið það hlutverk að samþykkja sameiginlegar reglur um slíka samtengingu.Með framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/480 er sett upp rafrænt kerfi fyrir samtengingu innlendra rafrænna skráa (ERRU). Með því að samtengja allar rafrænu landsskrárnar eru upplýsingarnar aðgengilegar lögbærum landsyfirvöldum allra aðildarríkjanna.Reglugerð EB nr. 1071/2009 hefur verið breytt með reglugerð 2020/1055. Með breytingunni var þess krafist að landsskráin innihaldi viðbótarupplýsingar um flutningafyrirtæki á vegum. Þessar viðbótarupplýsingar verða einnig að vera aðgengilegar lögbærum landsyfirvöldum aðildarríkjanna við vegaeftirlit. Þar af leiðandi ætti að uppfæra reglur um landsskrána og gera upplýsingarnar aðgengilegar. Því er framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/480 hér með breytt til samræmis við þessar breytingar.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Þetta er nánari útfærsla á landsskrá (ERRU) sem hefur ekki verið komið upp á Íslandi. Þessar breytingar hafa því ekki áhrif en það verður tekið tillit til þeirra þegar landsskráin verður sett upp.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 34. gr. laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017.Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á í reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 474/2017.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Þessi tiltekna gerð ætti ekki að valda frekari kostnaði við uppsetningu kerfisins í heild sinni.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Nei.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð er að finna í 32. gr. og 34. gr. laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á í reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 474/2017. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32023R2381 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2023/2381, 05.10.2023 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 30, 8.5.2025, p. 57 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/760, 8.5.2025 |
