32023R2620

Commission Implementing Regulation (EU) 2023/2620 of XXX approving sulfur dioxide generated from sulfur by combustion as an active substance for use in biocidal products of product-type 4 in accordance with Regulation (EU) No 528/2012 of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2620 frá 24. nóvember 2023 um að samþykkja brennisteinstvíoxíð sem er búið til úr brennisteini með bruna sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 4 í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 062/2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin felur í sér að samþykkja brennisteinstvíoxíð, sem er búið til úr brennisteini með bruna, sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 4 að uppfylltum þeim skilyrðum sem sett eru fram í viðauka við reglugerðina.
Reglugerðin tók gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Nánari efnisumfjöllun

Sæfivörunefndin hefur samþykkt álit Efnastofnunar Evrópu (ECHA), sem byggt er á matsskýrslu lögbærs matsyfirvalds í Þýskalandi, en þar kemur fram að gera megi ráð fyrir að sæfivörur í vöruflokki 4, sem innihalda brennisteinstvíoxíð sem búið er til úr brennisteini með bruna muni uppfylla skilyrði b-liðar 1. mgr. 19. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012. Því sé rétt að samþykkja virka efnið.Dagsetning samþykkis er 1. október 2024 og samþykkið gildir til og með 30. september 2034.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf reglugerðina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.
Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R2620
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/2620, 27.11.2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D090790/03
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur