CSDR Refit - 32023R2845

Regulation (EU) 2023/2845 of the European Parliament and of the Council of 13 December 2023 amending Regulation (EU) No 909/2014 as regards settlement discipline, cross-border provision of services, supervisory cooperation, provision of banking-type ancillary services and requirements for third-country central securities depositories and amending Regulation (EU) No 236/2012


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES
Svið (EES-samningur, viðauki) 09 Fjármálaþjónusta, 09.03 Kauphöll og verðbréf

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með reglugerðinni eru gerðar ýmsar breytingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 909/2014 um bætt verðbréfauppgjör í Evrópusambandinu og um verðbréfamiðstöðvar o.fl., sem innleidd var hér á landi með lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, nr. 7/2020. Breytingar varða m.a. ráðstafanir til að koma í veg fyrir og takast á við uppgjörsbresti og samvinnu eftirlitsaðila.

Nánari efnisumfjöllun

Með reglugerðinni eru gerðar ýmsar breytingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 909/2014 um bætt verðbréfauppgjör í Evrópusambandinu og um verðbréfamiðstöðvar o.fl., sem innleidd var hér á landi með lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, nr. 7/2020.Breytingar varða m.a. ráðstafanir til að koma í veg fyrir og takast á við uppgjörsbresti. Verðbréfamiðstöð ber að vakta uppgjörsbresti í viðskiptum með fjármálagerninga og beita viðurlögum, þ. á m. sektum, á skilvirkan hátt. Skerpt er á reglum um sektarkerfið og ferli við skyldubundin uppgjörskaup. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er falið að útfæra nánari reglur um þetta, með aðkomu Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar (ESMA). Vegna ákvæðanna um skyldubundin uppgjörskaup er smávægileg breyting gerð á skortsölureglugerð (ESB) nr. 236/2012, sem innleidd var hér á landi með lögum um skortsölu og skuldatryggingar, nr. 55/2017. Lágmarkstíðni reglulegs mats á starfsemi verðbréfamiðstöðva skal miðast við þrjú ár í stað árlegrar framkvæmdar, sem þótt hefur of íþyngjandi fyrir bæði verðbréfamiðstöðvar og eftirlitsaðila. Með reglugerðinni er jafnframt skerpt á reglum sem varða  samstarf landsbundinna eftirlitsaðila við veitingu starfsleyfis og framkvæmd eftirlits og skylt verður að koma á fót samstarfshópi eftirlitsaðila fyrir verðbréfamiðstöðvar með starfsemi yfir landamæri sem talin er verulega mikilvæg fyrir starfsemi verðbréfamarkaða og vernd fjárfesta, en framkvæmdastjórninni er falið að útfæra skilyrði þess nánar í reglum.Í tengslum við breytingar sem varða veitingu þjónustu af hálfu verðbréfamiðstöðva yfir landamæri er gert ráð fyrir að aðildarríki miðli upplýsingum um landslöggjöf á sviði fyrirtækjaréttar til ESMA reglulega og a.m.k. á tveggja ára fresti.Önnur nýmæli varða m.a. áætlanir verðbréfamiðstöðva um endurbót og skipulega slitameðferð, verðbréfamiðstöðvar þriðja lands, miðlun upplýsinga og mat vegna breytinga á eignarhaldi, uppgjör peningahluta verðbréfaviðskipta og svonefnda viðbótarbankaþjónustu.Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er m.a. með gerðinni falin nánari reglusetning um verklag sem tekur á mögulegum hagsmunaárekstrum,  frestað uppgjör á hreinum grunni og upplýsingagjöf vegna verðbréfamiðstöðva þriðja lands. Henni er jafnframt ætlað að taka út og gera almenna skýrslu um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 909/2014, með áorðnum breytingum, fyrir 17. janúar 2029.  

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Já
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já
Sent til Alþingis

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf lögum nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, svo og smávægileg breyting á skortsölulögum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Já
Samráðsgátt Áform um upptöku og lagasetningu vegna CSDR Refit (Samráðsgátt stjórnvalda)
Niðurstöður samráðs Áform um lagasetningu vegna innleiðingar CSDR Refit voru birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is 4. desember 2025 og umsagnarfrestur veittur til 19. desember sama ár (mál nr. S-239/2025). Þrjár umsagnir bárust um málið. Í umsögn Nasdaq verðbréfamiðstöðvar (NVM) er m.a. lögð áhersla á að samræmd gildistaka breytinganna með CSDR Refit tryggi jafnræði og skilvirkni á fjármálamörkuðum innan EES. Að mati NVM er ávinningur af innleiðingu fyrir íslenskan markað meðal annars fólginn í skýrari og einfaldari reglum um þjónustu þvert á landamæri, bættu eftirliti og samhæfingu, tæknilegum úrbótum og samræmdri skýrslugjöf. Þá séu breytingar á reglum til að takast á við uppgjörsbresti til þess fallnar að styðja við styttingu uppgjörstíma úr T+2 í T+1 sem innleidd verður á verðbréfamörkuðum í Evrópu í október 2027. NVM bendir í umsögn sinni á að innleiðing CSDR Refit krefjist verulegs undirbúnings, bæði í regluverki og tæknilegum lausnum, og mikilvægt sé að tryggja nægan tíma og samhæfingu milli fjármálamarkaðar og stjórnvalda. Hafa verður í huga snertifleti CSDR Refit við styttingu uppgjörstíma skv. CSDR (T+1), breytingar með þeirri fyrrnefndu eru nauðsynlegar vegna þeirrar síðarnefndu. Í umsögn sinni fagnar Verðbréfamiðstöð Íslands (VBM) áformum um innleiðingu CSDR Refit og þeim ráðstöfunum sem gildistaka breytinganna leiðir af sér. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) vísa til umsagnar um áform um lagasetningu vegna innleiðingar CSDR T+1, sem voru birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda samhliða áformum vegna CSDR Refit og sami umsagnarfrestur var veittur um (mál nr. S-240/2025).

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Upptaka og innleiðing CSDR Refit er til þess fallin að skýra framkvæmd regluverksins og er, þegar á heildina er litið, ekki talin fela í sér teljandi aukinn kostnað fyrir markaðsaðila. Auknar líkur má telja á því að reyni á reglur um uppgjörsbrest þegar uppgjörstími styttist í T+1. Innleiðing CSDR Refit, sem m.a. skerpir á reglum í því sambandi, samhliða CSDR T+1 er því ákjósanleg. Umbætur á kerfum og ferlum vegna styttingar uppgjörstíma geta á hinn bóginn orðið kostnaðarsamar, en aukin skilvirkni verður markaðnum jafnframt til hagsbóta. Þróun og viðhald markaðsinnviða er viðvarandi verkefni rekstraraðila þeirra, sem og að stuðla stöðugt að skilvirkni, hagkvæmni og öryggi.
Við setningu laga nr. 7/2020 var ekki gert ráð fyrir að innleiðing CSDR hefði teljandi fjárhagsáhrif fyrir ríkissjóð (þskj. 460 – 370. mál á 150. lögþ. 2019–2020) og er það mat óbreytt nú. Fjármálaeftirlitinu er falið eftirlit með framkvæmd laganna, sem taka breytingum við innleiðingu CSDR Refit, og er að mati ráðuneytisins í stakk búið til þess. Ef í ljós kemur að breyta þurfi eftirlitsgjaldinu sem stendur undir rekstri Fjármálaeftirlitsins vegna breytinganna, sem ekki er útilokað í ljósi nauðsynlegs undirbúnings styttingar uppgjörstíma (sem fylgja mun í kjölfar innleiðingar Refit), verður brugðist við með þeim hætti sem gert er ráð fyrir í lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavald, nr. 99/1999.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Seðlabanki Íslands

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R2845
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/2845, 27.12.2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2022) 120
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar

Breytir (Modifies)

COM(2022) 120
52022PC0120
adopts Regulation (EU) 2023/2845 of the European Parliament and of the Council of 13 December 2023 amending Regulation (EU) No 909/2014 as regards settlement discipline, cross-border provision of services, supervisory cooperation, provision of banking-type ancillary services and requirements for third-country central securities depositories and amending Regulation (EU) No 236/2012 Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
32014R0909 amends Regulation (EU) No 909/2014 of the European Parliament and of the Council of 23 July 2014 on improving securities settlement in the European Union and on central securities depositories and amending Directives 98/26/EC and 2014/65/EU and Regulation (EU) No 236/2012 - CSDR Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32012R0236 amends Regulation (EU) No 236/2012 of the European Parliament and of the Council of 14 March 2012 on Short Selling and certain aspects of Credit Default Swaps - Short Selling and CDS Tekin upp í EES-samninginn og í gildi