32024D0734

Commission Implementing Decision (EU) 2024/734 of 27 February 2024 postponing the expiry date of the approval of brodifacoum, bromadiolone, chlorophacinone, coumatetralyl, difenacoum, difethialone and flocoumafen for use in biocidal products of product-type 14 in accordance with Regulation (EU) No 528/2012 of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin felur í sér frestun að því er varðar lokadag samþykkis fyrir bródífakúmi, brómadíólóni, klórfasínóni, kúmatetralýli, dífenakúmi, dífeþíalóni og flókúmafeni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 14 til 31. desember 2026.
Ákvörðunin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Nánari efnisumfjöllun

Lokadagur samþykkis fyrir bródífakúmi, brómadíólóni, klórfasínóni, kúmatetralýli, dífenakúmi, dífeþíalóni og flókúmafeni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 14 er 30. júní 2024.Sótt hefur verið um endurnýjun á samþykki fyrir ofangreindum virkum efnum til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 14 í samræmi við 1. tl. 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012. Danmörk, Finnland, Frakkland, Holland, Noregur og Spánn, sem lögbær matsyfirvöld, hafa ákveðið að nauðsynlegt sé að vinna fullnaðarmat á umsóknunum. Líklegt er að ekki náist að taka ákvörðun um endurnýjun áður en lokadagur samþykkis rennur upp fyrir virku efnin og þess vegna þykir rétt að fresta honum til 31. desember 2026.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf þessa ákvörðun með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.
Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Framlenging á markaðsleyfum sex sæfivara mun hafa í för með sér aukakostnað í formi vinnu sérfræðings, sem mun falla á Umhverfisstofnun.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Í vöruflokki 14 eru fimm vörur sem innihalda brómadíólón og ein vara sem inniheldur dífenakúm með markaðsleyfi á Íslandi. Frestun á lokadegi samþykkis fyrir virku efnunum hefur það í för með sér að framlengja þarf markaðsleyfum þessarra sex vara.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfisstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024D0734
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/734, 29.02.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D094927/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB