32024D1762
Commission Implementing Decision (EU) 2024/1762 of 5 June 2024 amending Directive 2008/68/EC of the European Parliament and of the Council on the inland transport of dangerous goods to authorise certain national derogations
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Ákvörðun |
| Nánari tegund gerðar | Framkvæmdarákvörðun |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.01 Flutningar á landi |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 101/2025 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Verið er að uppfæra tiltekin ákvæði í viðaukum við tilskipun 2008/68/EB um flutning á hættulegum farmi í samræmi við óskir einstakra ríkja. Undanþágurnar eiga eingöngu við þessi ríki og því ekki áhrif hér á landi. Ekki kostnaður.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Verið er að uppfæra ákvæði í viðaukum við tilskipun 2008/68/EB um flutning á hættulegum farmi. Tiltekin aðildarríki fóru fram á að gerðar yrðu nokkrar breytingar á undanþáguákvæðum gerðarinnar.Efnisúrdráttur: Verið er að uppfæra I. 3 kafla í I. viðauka, II. 3 kafla í II. viðauka og III. 3. kafla í III. viðauka tilskipunar 2008/68/EB. Þessir kaflar innihalda lista yfir undanþágur þar sem heimilað er að tekið sé tillit til ákveðinna kringumstæðna í einstökum löndum. Hér er því verið að gera ákveðnar breytingar á undanþágum tiltekinna landa í samræmi við óskir þeirra.Framkvæmdastjórnin hefur metið og farið yfir þessar beiðnir og komist að því að þau skilyrði sem sett eru fram í 2. og 4. mgr. 6. gr. tilskipunarinnar eru uppfyllt. Því ætti að samþykkja undanþágurnar.Þar sem breyta þarf I.3 kafla í I. viðauka, II.3 kafla í II. viðauka og III. 3. kafla í III. viðauka tilskipunarinnar er viðeigandi með skýrleika að markmiði að skipta þeim út í heild sinni.Þær aðgerðir sem heimilaðar eru í þessari ákvörðun eru í samræmi við álit nefndarinnar um flutning á hættulegum farmi.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Verið er að uppfæra undanþáguheimildir ákveðinna aðildarríkja. Ísland er ekki þar á meðal og því ætti þessi uppfærsla ekki að hafa áhrif hér á landi.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 81. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.Innleitt í reglugerð um flutning á hættulegum farmi á landi nr. 1077/2010.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Óverulegur.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Gæti átt við Vinnueftirlitið.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Vinnueftirlitið.[GD1]Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei. [GD1]Vinnueftirlitið hefur að meginstefnu yfirumsjón með framkvæmd reglugerðarinnar hvað varðar flokkun efna, viðurkenningu umbúða o.s.frv. og heyrir undir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið. Breytingin varðar landsbundnar undanþágur annarra ríkja sem hafa ekki gildi hér á landi og sökum þess engir hagsmunaaðilar hér.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð er að finna í 81. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Innleitt í reglugerð um flutning á hættulegum farmi á landi nr. 1077/2010 |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024D1762 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/1762, 28.6.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D096627/02 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 46, 24.7.2025, p. 18 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/1389, 24.7.2025 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Hvít: Ekki þörf á laga- eða reglugerðabreytingum til að innleiða gerðina |
|---|
Breytir (Modifies)
| 32008L0068 | amends, based on | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32008L0068 | Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/68/EB frá 24. september 2008 um flutning á hættulegum farmi á landi og skipgengum vatnaleiðum Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
