32024D2950
Commission Implementing Decision (EU) 2024/2950 of 29 November 2024 postponing the expiry date of the approval of N,N-diethyl-meta-toluamide for use in biocidal products of product-type 19 in accordance with Regulation (EU) No 528/2012 of the European Parliament and of the Council
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 276/2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Ákvörðunin felur í sér frestun að því er varðar lokadag samþykkis fyrir N,N-díetýl-meta-tólúamíð til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 19 eins og fram kemur í I. viðauka við tilskipun 98/8/EB til 31. janúar 2027. Ákvörðunin öðlaðist gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Nánari efnisumfjöllun
Sótt var um endurnýjun á samþykki fyrir N,N-díetýl-meta-tólúamíð til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 19 þann 26. janúar 2021 í samræmi við 1. tl. 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012. Frakkland, sem lögbært matsyfirvald, hefur ákveðið að nauðsynlegt sé að vinna fullnaðarmat á umsókninni. Lokadegi samþykkis fyrir N,N-díetýl-meta-tólúamíð til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 19 var áður frestað til 31. janúar 2025 með framkvæmdarákvörðun (ESB) 2021/2146. Mat á umsókninni er enn ekki lokið og líklegt er að ekki náist að taka ákvörðun um endurnýjun áður en lokadagur samþykkis rennur upp. Því þykir rétt að fresta honum aftur, nú til 31. janúar 2027.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Innleiða þarf ákvörðunina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur. Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Kostnaður fælist í vinnu sérfræðings Umhverfis- og orkustofnunar við að framlengja leyfunum og félli á stofnunina. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Það eru þrjár vörur, sem innihalda N,N-díetýl-meta-tólúamíð og flokkast í vöruflokk 19 með markaðsleyfi á Íslandi. Ákvörðunin hefur þau áhrif að framlengja þarf gildistíma þeirra. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024D2950 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/2950, 3.12.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 26, 16.4.2026, p. 40 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/656, 16.4.2026 |
