Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2951 um heildar magn losunarheimilda í viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir fyrir geira bygginga og flutninga á vegum og annarra geira (ETS 2) fyrir árið 2027. - 32024D2951

Commission Decision (EU) 2024/2951 of 29 November 2024 on the Union-wide quantity of allowances to be issued under the EU ETS for buildings, road transport and additional sectors for 2027

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem beðið er afléttingar stjórnskipulegs fyrirvara
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 182/2025

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar sem setur fram útreikninga á og magn losunarheimilda sem gefa skal út árið 2027 vegna losunar frá geirum sem falla undir kafla IV. í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB um að koma á fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan Bandalagsins og um breytingar á tilskipun ráðsins 96/61/EB (ETS tilskipun).

Nánari efnisumfjöllun

Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. c. í ETS tilskipuninni skal Framkvæmdastjórn ESB gefa út fjölda losunarheimilda undir kafla IVa í tilskipuninni fyrir 1. janúar 2025. Í ákvörðun Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2951 sem hér er til greiningar er útreikningum á fjölda losunarheimilda lýst og magn losunarheimilda ákveðið fyrir árið 2027 í viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir byggingar, vegasamgöngur og aðra geira (ETS II) skv. IV. Kafla ETS tilskipunarinnar.    Skv. 1. mgr. 30.gr. c í ETS tilskipuninni, skal útgefið magn árlegra losunarheimilda frá árinu 2027 fyrir allt sambandið beitt línulega lækkunarstuðlinum 5,10%  frá losunarmörkum ársins 2024.  Losunarmörkin 2024 eru skilgreind á grundvelli losunarviðmiða sem sett eru fram í 2. mgr. 4. gr. reglugerðar ESB 2018/842 um árlega skerðingu á losun gróðurhúsalofttegundum aðildarríkjanna frá 2021-2030 sem stuðlar að loftslagsaðgerðum til að uppfylla skuldbindingar skv. Parísarsamningnum. Losunarmörk fyrir 2024 skulu skv. því ekki fara yfir þau mörk sem skilgreind eru með línulegum ferli frá 2022 til 2030 frá og með losunarmörkum 2022, sem aftur eru skilgreind í sömu reglugerð með línulegum ferli sem byggir á meðaltali losunar gróðurhúsalofttegunda hvers aðildarríkis á árunum 2016, 2017 og 2018 sem finna má í endurskoðuðum gögnum í losunarbókhaldi aðildarríkjanna (þ.m.t. EES EFTA ríkjanna).  Við útreikninganna var losun koldíoxíðs, frá starfsemi sem er undanþegin  viðauka III í ETS tilskipuninni og fellur undir ETS 2 dregin frá heildarlosun koltvísýrings í losunarbókhaldi landanna. Auk þessa  voru teknar til greina breytingar á upprunaflokkunum 1A1 og 1A3b eins og skilgreint er í 2006 IPCC leiðbeiningum.  Losunarmörk 2024 fyrir starfsemi sem fellur undir ETS 2 ætti á grundvelli ofangreindra útreikninga að nema 1.223.481.445 tonnum af koltvísýringi, eða rúmlega 1223 milljónir. Magn losunarheimilda sem gefin er út fyrir árið 2027 vegna starfsemi sem fellur undir ETS 2 skal minnka árlega eftir árið 2024 með línulegum lækkunarstuðli sem nemur 5,10%. Á þessum grundvelli er fjöldi losunarheimilda innan Sambandsins vegna starfsemi sem fellur undir ETS 2 ákveðin 1.036.288.784 losunarheimildir fyrir árið 2027.   Ákvörðunin tók gildi í Evrópusambandinu í desember 2024.      

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Alþingi hefur lokið mati sínu
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB
Sent til Alþingis

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Ákvörðunin tengist innleiðingu ETS 2 kerfisins, en kerfið hefur ekki verið lögfest á Íslandi. Lagastoð vantar í lög nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir fyrir innleiðingu ákvörðunarinnar í reglugerð á Íslandi. Því þyrfti að gera lagabreytingu og breytingu á reglugerð 606/2021 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir til að innleiða ákvörðunina á Íslandi.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024D2951
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/2951, 3.12.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Stjórnskipulegur fyrirvari skv. 103. grein (Ísland) Ísland

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 69, 6.11.2025, p. 45
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/2116, 6.11.2025