Starfsréttindi rúmenskra hjúkrunarfræðinga á EES-svæðinu. - 32024L0505
Directive (EU) 2024/505 of the European Parliament and of the Council of 7 February 2024 amending Directive 2005/36/EC as regards the recognition of professional qualifications of nurses responsible for general care trained in Romania
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/505 frá 7. febrúar 2024 um breytingu á tilskipun 2005/36/EB að því er varðar viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi hjúkrunarfræðinga í almennri hjúkrun sem hlutu menntun sína í Rúmeníu
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 07 Viðurkenning á faglegri menntun og hæfi |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 132/2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Breyting sem gerir hjúkrunarfræðingum menntuðum í Rúmeníu kleift að njóta viðurkenningar til starfa innan EES-svæðisins á sömu skilmálum og aðrir hjúkrunarfræðingar.
Nánari efnisumfjöllun
Breytingin miðar að því að uppfæra tilskipunina svo að hún endurspegli breytingar sem orðið hafa á menntun hjúkrunarfræðinga í Rúmeníu. Við inngönguna í ESB 2007 voru rúmenskir hjúkrunarfræðingar ekki taldir uppfylla skilyrði tilskipunarinnar um viðurkenningu til starfa þar eð námið þar var ekki á háskólastigi, heldur fagháskólastigi. Frá þeim tíma hefur verið unnið að umbótum á náminu og starfandi hjúkrunarfræðingum gefinn kostur á viðbótarnámi til þess að þeir geti uppfyllt sett skilyrði. Breytingatilskipunin staðfestir þessa þróun og gerir ráð fyrir afléttingu takmarkana sem voru á viðurkenningu starfsréttinda hjúkrunarfræðinga frá Rúmeníu á EES-svæðinu. Ákvæði hér að lútandi er að finna í 13. gr. reglugerðar nr. 510/2020 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum eða Sviss til að starfa hér á landi, og fylgiskjali IV með þeirri reglugerð. Tilskipunin verður tekin í íslenskan rétt með breytingu á þeirri reglugerð.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyting á reglugerð 510/2020 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðru EES-ríkjum eða Sviss til að starfa hér á landi. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Heilbrigðisráðuneytið |
|---|---|
| Önnur ráðuneyti sem hafa aðkomu | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
| Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu | Embætti landlæknis |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024L0505 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/505, 12.02.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2023) 502 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 61, 2.10.2025, p. 32 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/1826, 2.10.2025 |
