32024R1084

Commission Delegated Regulation (EU) 2024/1084 of 6 February 2024 amending Delegated Regulation (EU) No 305/2013 supplementing Directive 2010/40/EU of the European Parliament and of the Council with regard to the harmonised provision for an interoperable EU-wide eCall


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 313/2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Mælt er fyrir um að þau kerfi sem taka á móti neyðarköllum frá bifreiðum sem lenda í óhöppum skuli miða við fjórðu og fimmtu kynslóð farsíma í stað annarrar og þriðju en það kerfi er verið að leggja niður. Þó skal áfram hægt að taka á móti neyðarköllum með eldra kerfi meðan það er enn notað. Kostnaður mun hljótast af en hann liggur ekki fyrir. Áhrif eðlileg og miðast við þróun á tækni sem átt hefur sér stað.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með gerðinni er að tryggja að miðstöð neyðarsímsvörunar, e. Public Service Asnwering Point, sé í stakk búin til að taka á móti merkjum frá neyðarsendum bifreiða, eCall, samkvæmt samræmdum stöðlum og með nýrri fjarskiptatækni. Aðdragandi: Í framseldri reglugerð ESB nr. 305/2013 er mælt fyrir um forskriftir að því hvernig eigi að uppfæra neyðarsímsvörunarstöð, e. public safety answering point (PSAP). Þessu er ætlað að tryggja samhæfingu, samvirkni og samfellu í samræmdri eCall-þjónustu innan Evrópusambandsins.Forskriftirnar eru byggðar á stöðlum sem þróaðir voru fyrir línuskipta gagnaflutningaþjónustu, þ.e. 2G og 3G kynslóðir farsíma. Flestir farsímakerfisrekendur hafa tilkynnt áform um að slökkva á línuskiptum gagnaflutningsþjónustum og nota pakkaskipta gagnaflutningaþjónustu í staðinn. Sú tækni byggir á 4G og 5G kynslóðum farsíma. Evrópskar staðlastofnanir hafa gengið frá tækniforskriftum fyrir eCall með því að nota pakkaskipta gagnaflutningaþjónustu. Endurskoða þarf eCall forskriftir fyrir PSAP til þess að hægt sé að taka við og meðhöndla sendingar frá nýjum ökutækjum þar sem eCall búnaður þeirra miðast við pakkaskipta gagnaflutninga. Engu að síður þarf að vera hægt að taka á móti og meðhöndla samskipti sem byggjast á eldri stöðlum séu þau enn notuð. Miðað er við að umskiptin hafi að fullu átt sér stað 1. janúar 2026. Reglugerð 305/2013 var innleidd með reglugerð nr. 342/2013 um þróun upplýsinga- og fjarskiptatækni til notkunar fyrir skynvædd samgöngukerfi (ITS). Við þá innleiðingu varð aðildarríkjunum skylt að útnefna yfirvald sem færi með eftirlit með eCall PSAP. Jafnframt var það skylda þessa yfirvalds að taka saman skýrslu til framkvæmdastjórnarinnar. Þessi tilnefning hefur ekki orðið hér. Nauðsyn er á að tilnefna eftirlitsstjórnvald. Gera má ráð fyrir að skýrslur héðan færu til Eftirlitsstofnunar EFTA.Leitað var umsagnar Vegagerðarinnar sem taldi ekki ástæðu til að koma að athugasemdum.Leitað var umsagnar Neyðarlínunnar. Í umsögn Neyðarlínunnar kemur fram að 2G og 3G kerfinu verði lokað í lok árs 2025. Þá verði nýtt kerfi að vera tilbúið. Hvorki umfang né kostnaður liggi fyrir. Verkefnið er ekki hafið.Umsögn: helstu breytingar,  mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Með gerðinni eru tæknilegar kröfur uppfærðar til samræmis við tækniframfarir sem munu hafa mest áhrif á fjarskiptafyrirtækin og Neyðarlínuna.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 45. gr. vegalaga nr. 80/2007Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Liggur ekki fyrir eins og er. Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Dómsmálaráðuneyti, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Neyðarlínan, Vegagerðin, Fjarskiptastofa. Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í 45. gr. vegalaga nr. 80/2007. innleidd með reglugerð nr. 342/2013 um þróun upplýsinga- og fjarskiptatækni til notkunar fyrir skynvædd samgöngukerfi (ITS
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Kostnaður mun hljótast af en hann liggur ekki fyrir. Áhrif eðlileg og miðast við þróun á tækni sem átt hefur sér stað.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Kostnaður mun hljótast af en hann liggur ekki fyrir. Áhrif eðlileg og miðast við þróun á tækni sem átt hefur sér stað.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1084
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1084, 12.4.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2024)0655
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur

Breytir (Modifies)

32013R0305 amends Commission Delegated Regulation (EU) No 305/2013 of 26 November 2012 supplementing Directive 2010/40/EU of the European Parliament and of the Council with regard to the harmonised provision for an interoperable EU-wide eCall Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32010L0040 based on Directive 2010/40/EU of the European Parliament and of the Council of 7 July 2010 on the framework for the deployment of Intelligent Transport Systems in the field of road transport and for interfaces with other modes of transport Tekin upp í EES-samninginn og í gildi