32024R1180
Commission Delegated Regulation (EU) 2024/1180 of 14 February 2024 amending Regulation (EU) 2015/758 of the European Parliament and of the Council as regards the standards relating to eCall
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1180 frá 14. febrúar 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/758 að því er varðar staðla sem varða eCall-neyðarsímtal
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.01 Vélknúin ökutæki |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 266/2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Markmiðið með gerðinni er að uppfæra eCall kerfið í ökutækjum til að mæta þróun fjarskiptatækni og tryggja að það haldi áfram að vera virkt eftir að 2G og 3G fjarskiptanetin verða lögð niður. Reglugerðin kveður á um nauðsynlegar breytingar til að gera eCall kerfin fær um að taka á móti 4G og 5G pakkaflutningsneti. Ekki kostnaður fyrir Samgöngustofu. Jákvæð og nauðsynleg breyting.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með gerðinni er að uppfæra eCall kerfið í ökutækjum til að mæta þróun fjarskiptatækni og tryggja að það haldi áfram að vera virkt eftir að 2G og 3G fjarskiptanetin verða lögð niður. Reglugerðin kveður á um nauðsynlegar breytingar til að gera eCall kerfin fær um að taka á móti 4G og 5G pakkaflutningsneti.Í reglugerðinni eru settar fram tímasetningar og bráðabirgðaákvæði til að gefa framleiðendum ökutækja og aðildarríkjum nægan tíma til að aðlaga sig og uppfylla nýju kröfurnar.Aðdragandi: Skylt hefur verið að hafa eCall kerfi í nýjum bifreiðum frá 31. mars 2018. Aðdragandi reglugerðarinnar er að farsímafyrirtækin áætla að leggja niður eldri 2G/3G fjarskiptanet á árunum 2025 til 2030. Það verður til þess að uppfæra þarf eCall kerfin þannig að þau geti notað 4G/5G pakkaflutningsneti. Því þarf að laga reglugerð (ESB) nr. 2015/758, sem upprunalega kvað á um eCall kerfin, að þessum nýju tæknikröfum.Evrópska staðlastofnunin (CEN) hefur samþykkt nýjar tækniforskriftir fyrir eCall kerfi sem byggja á pakkaflutningsnetum. Reglugerðin inniheldur uppfærðar tilvísanir í þessa nýju staðla og forskriftir.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Það er verið að uppfæra tæknilegar kröfur til eCall kerfisins og skilgreina heimildir gerðarviðurkenningaryfirvalda til að gefa út eða hafna útgáfu gerðarviðurkenninga á yfirgangstímabili.Hefur því ekki áhrif á Samgöngustofu og ætti ekki að hafa áhrif á almenning ef þjónustuveitendur eCall kerfisins (Neyðarlínan) og fjarskiptafyrirtækin uppfæra sín kerfi eftir því sem við á.Leitað var til Neyðarlínunnar sem rekur eCall kerfið hér á landi með umsögn: Neyðarlínan lagði áherslu nauðsyn þess að innleiða breytingarnar og styður að það verði gert. Að öðru leyti var ekki gerð athugasemd við reglugerðina.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 45. gr. vegalaga nr. 80/2007.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Hefur ekki áhrif á Samgöngustofu og ætti ekki að hafa áhrif á almenning ef þjónustuveitendur eCall kerfisins (Neyðarlínan) og fjarskiptafyrirtækin uppfæra sín kerfi eftir því sem við á.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: dómsmálaráðuneyti, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiTilgreining á hagsmunaaðilum: Neyðarlínan, Vegagerðin, FjarskiptastofaHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breytum vísun í lagastoð í 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024R1180 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/1180, 19.4.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | C(2024)0823 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 25, 24.4.2025, p. 27 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/547, 24.4.2025 |
Breytir (Modifies)
| 32015R0758 | amends, based on | Regulation (EU) 2015/758 of the European Parliament and of the Council of 29 April 2015 concerning type-approval requirements for the deployment of the eCall in-vehicle system based on the 112 service and amending Directive 2007/46/EC | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
