32024R1255

Commission Implementing Regulation (EU) 2024/1255 of 3 May 2024 amending Implementing Regulation (EU) 2015/1998 as regards certain detailed measures for the implementation of the common basic standards on aviation security


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1255 frá 3. maí 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 að því er varðar ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framkvæmdarreglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 102/2025
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Markmiðið með gerðinni er að gera smávægilegar breytingar á flugverndarráðstöfunum til að auka skýrleika og eftirlit. Gerð er krafa um að stjórnvöld samþykki og hafi eftirlit með flutningsaðilum sem flytja vörur milli svæða á flugvöllum. Þá er því frestað að taka í notkun sprengjuleitarbúnað svo svigrúm gefist til endurbóta. Áhrif eðlileg og jákvæð. Óverulegur kostnaður fyrir hið opinbera en gæti orðið einhver fyrir þá sem reka Keflavíkurflugvöll.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með gerðinni er að gera smávægilegar breytingar á flugverndarráðstöfunum til að auka skýrleika og eftirlit. Gerð er krafa um að stjórnvöld samþykki og hafi eftirlit með flutningsaðilum sem flytja vörur milli svæða á flugvöllum. Þá er því frestað að taka í notkun sprengjuleitarbúnað svo svigrúm gefist til endurbóta.Efnisútdráttur: Til að flytja farm og póst á milli athafnasvæða á flugvöllum þarf hann að vera gerður af viðurkenndum umboðsaðilum, þekktum sendanda eða flugrekanda. Krafist er sérstakra öryggisráðstafana. Slíkir flutningar eru í mörgum tilfellum framkvæmdir af utanaðkomandi aðilum en í umboði ofangreindra aðila. Tiltekin skilyrði sem þarf að uppfylla til að notkun slíkra flutningsaðila sé heimil og reglur um þá eru þegar settar fram í viðauka við reglugerð ESB 2015/1998.Til að varðveita öryggi allrar flutningakeðjunnar hefur komið í ljós þörf á að reglurnar séu skýrari um atriði eins og sýnileika, ábyrgð og eftirlit með farmflytjendum af hálfu yfirvalda. Til þess þarf að setja fram kröfur um samþykki og eftirlit með flutningsaðilum í viðauka reglugerðar ESB 2015/1998 og er það gert með þeirri reglugerð sem hér er til umfjöllunar.Núverandi reglur sem gilda um flutningsaðila skulu halda gildi sínu til 31. desember 2026. Það auðveldar innleiðingu nýrra reglna bæði fyrir yfirvöld og þá aðila sem þurfa að lúta þeim.Framkvæmdastjórnin hefur jafnframt staðfest að flugvöllurinn á Svalbarða uppfyllir skilyrðin sem sett eru fram í hluta E í viðauka reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 272/2009 um skoðun farþega og handfarangurs, skoðun farangurs í farangursrými, flutning á farmi og pósti og flugvallaöryggi.Með þeirri reglugerð sem hér er til umfjöllunar er því frestað um 15 mánuði að sprengjuleitarbúnaður sem reiknað var með að yrði starfhæfur frá 1. júlí 2024 verði tekin í notkun. Það er gert til að tryggja samræmi og svo hægt sé að uppfæra búnaðinn smám saman án þess að stofna flugvernd í hættu.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Um er að ræða minniháttar breytingar sem hafa ekki mikil áhrif hér á landi. Breytingarnar eru gerðar til að auka skýrleika og í þeim tilgangi að tryggja bestu framkvæmd.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er í 167. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að innleiða reglugerðina með breytingu á reglugerð um flugvernd nr. 750/2016.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Óverulegur kostnaður metin við innleiðingu þessarar reglugerðar. Getur falið í sér aukinn kostnað fyrir rekstraraðila Keflavíkurflugvallar vegna tækja/tæknibreytinga.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: Framkvæmdaaðilar flugverndarráðstafana á flugvöllum.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er í 167. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Rétt væri að innleiða reglugerðina með breytingu á reglugerð um flugvernd nr. 750/2016.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1255
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1255, 6.5.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D094290/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 46, 24.7.2025, p. 19
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1363, 24.7.2025

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt
Viðeigandi lög/reglugerði

Breytir (Modifies)

32015R1998 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)