32024R1681

Commission Delegated Regulation (EU) 2024/1681 of 6 March 2024 supplementing Regulation (EU) No 305/2011 of the European Parliament and of the Council by establishing classes of performance in relation to the resistance to fire of construction products


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1681 frá 6. mars 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 305/2011 með því að ákvarða nothæfisflokka að því er varðar brunaþol byggingarvara
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framseld reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.21 Byggingarvörur
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 239/2024
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Um er að ræða framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB um skilyrði fyrir flokkun tiltekinna byggingarvara m.t.t. viðbragðs þeirra við bruna án þess að þær séu prófaðar sérstaklega. Reglugerðin nær til tvenns konar byggingarvara; annars vegar gegnheils viðarpanels og hins vegar gegnheilla viðarklæðninga. Gætu verið áhrif á þá sem nota þessar vörur. Ekki kostnaður fyrir ríkið.

Nánari efnisumfjöllun

Almennt: Samkvæmt 60. gr. reglugerð (ESB) nr. 305/2011 um byggingarvörur getur framkvæmdastjórnin samþykkt framseldar gerðir. Þannig getur framkvæmdastjórnin ákveðið hvaða skilyrði byggingavörur þurfa að uppfylla til að teljast fullnægja tilteknu nothæfisstigi eða -flokk án þess að vera prófaðar sérstaklega.Í byggingarreglugerð nr. 112/2012 segir að flokkun byggingarhluta og viðbragð byggingarefna við eldi skuli gerð samkvæmt flokkunarstaðlinum ÍST EN 13501. Af þeirri staðlaröð leiðir að í vissum tilvikum er hægt að setja tilteknum byggingarvörum flokk m.t.t. viðbragðs við bruna án prófunar. Þar er um að ræða vörur sem hafa þekkt viðbragð við bruna.Í reglugerð Evrópusambandsins nr. 2016/364 er sett fram kerfi fyrir flokkun nothæfis byggingarvara m.t.t. viðbragðs þeirra við bruna. Þar er jafnframt sett fram hvaða kröfur byggingavörur þurfa að uppfylla í þessum efnum til að fá vottun án þess að vera prófaðar sérstaklega. Þær byggingavörur sem fjallað er um í þeirri gerð sem hér er til um fjöllunar eru gegnheill viðarpanell og gegnheil viðarklæðning. Þessar byggingarvörur eru meðal þeirra sem reglugerð 2016/364 gerð tekur til.Í ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB nr. 2006/213/EC eru settir fram flokkar fyrir nothæfi gegnheils viðarpanels og gegnheilla viðarklæðninga m.t.t. viðbragðs þessara vara við bruna. Samkvæmt gerðinni sem hér er til skoðunar þarf að takmarka skilyrðin sem þar koma fram þannig að þau taki aðeins til þess þegar viður hefur ekki verið meðhöndlaður með öðrum hætti en ofnþurrkun. Í reglugerðinni segir að prófanir hafi sýnt að þær vörur sem falla undir hana hafi stöðugt og fyrirsjáanlegt nothæfi m.t.t. viðbragðs við bruna, að því gefnu að þær uppfylli tiltekin skilyrði sem lúta að þéttleika viðarins, lágmarksþykkt prófíla og fyrirhugaðrar notkunar þeirra, sem og að viðurinn hafi ekki verið meðhöndlaður á neinn annan hátt en með ofnþurrkun.Að teknu tilliti til þessa ákveður framkvæmdastjórnin að gegnheill viðarpanell og gegnheil viðarklæðning skuli teljast uppfylla tiltekin nothæfisflokk m.t.t. viðbragðs við bruna án sérstakrar prófunar svo fremi að hann hafi eingöngu verð meðhöndlaður með ofnþurrkun, sbr. framselda gerð nr. 2016/364.Umsögn: helstu breytingar,  mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Að teknu tilliti til framangreinds telur HMS ekki tilefni til að ætla að þörf sé á að breyta reglum hérlendis vegna innleiðingar gerðarinnar. HMS telur hins vegar mikilvægt að upplýsa þá aðila sem kunna að framleiða þessar vörur hérlendis um þá breytingu sem innleiðing gerðarinnar hefur í för með sér og þau skilyrði sem þurfa að vera uppfyllt til að flokka megi viðbragð þeirra við bruna án prófunar.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lög um byggingarvörur nr. 114/2014, sbr. 5. mgr. 27. gr. reglugerðar ESB nr. 305/2011.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Ekki kostnaður fyrir ríkisvaldið.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: NeiHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: ekkiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í lögum um byggingarvörur nr. 114/2014, sbr. 5. mgr. 27. gr. reglugerðar ESB nr. 305/2011.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1681
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1681, 13.6.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2024)1356
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 9, 20.2.2025, p. 19
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/235, 20.2.2025

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt

Breytir (Modifies)

32011R0305 based on, completes Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32011D0232 implicitly repeals Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
32003D0629 implicitly repeals
32000D0367 repeals Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi