32024R1860
Regulation (EU) 2024/1860 of the European Parliament and of the Council of 13 June 2024 amending Regulations (EU) 2017/745 and (EU) 2017/746 as regards a gradual roll-out of Eudamed, the obligation to inform in case of interruption or discontinuation of supply, and transitional provisions for certain in vitro diagnostic medical devices
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1860 frá 13. júní 2024 um breytingu á reglugerðum (ESB) 2017/745 og (ESB) 2017/746 að því er varðar að innleiða Evrópska gagnabankann um lækningatæki (Eudamed) smám saman, skylduna til að tilkynna um það ef truflanir verða á afhendingu eða ef afhendingu er hætt og um umbreytingarákvæði vegna tiltekinna lækningatækja til sjúkdómsgreiningar í glasi
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.30 Lækningatæki |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 172/2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1860 frá 13. júní 2024 um breytingu á reglugerðum (ESB) 2017/745 og (ESB) 2017/746 að því er varðar stigvaxandi innleiðingu Evrópska gagnabankans um lækningatæki (e. Eudamed), skyldu til að upplýsa ef truflun eða stöðvun er á afhendingu og umbreytingarákvæði vegna tiltekinna lækningatækja til sjúkdómsgreiningar í glasi.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerðin er sett til að tryggja öruggt og stöðugt framboð af lækningatækjum til sjúkdómsgreiningar í glasi innan Evrópusambandsins og til að draga úr áhættu á skorti, auka gagnsæi með stigvaxandi innleiðingu Eudamed gagnabankans og auðvelda yfirvöldum að bregðast við framboðstruflunum til að vernda lýðheilsu og öryggi sjúklinga.Helstu efnistök reglugerðarinnar eru:1. Stigvaxandi innleiðing á Evrópskum gagnabanka um lækningatæki (Eudamed): Tiltekin rafræn kerfi innan Eudamed hafa tafist í þróun. Reglugerðin heimilar stigvaxandi innleiðingu einstakra kerfa eftir því sem þau verða fullvirk til að minnka álag á opinberar stofnanir og einkaaðila.2. Upplýsingaskylda við truflanir eða stöðvun á afhendingu: Ef framleiðandi áætlar truflun eða stöðvun á afhendingu á lækningatæki eða lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi, og það er fyrirsjáanlegt að slíkt geti haft alvarleg áhrif á sjúklinga eða lýðheilsu, skal hann upplýsa yfirvöld og viðkomandi hagsmunaaðila með a.m.k. sex mánaða fyrirvara. Þessi regla miðar að því að tryggja að aðilar hafi nægan tíma til að bregðast við skorti.3. Framlenging á aðlögunartímabilum: Vegna mögulegrar hættu á skorti á lækningatækjum til sjúkdómsgreiningar í glasi, sem eru nauðsynleg fyrir heilbrigðiskerfi, framlengir reglugerðin aðlögunartímabil fyrir vottun samkvæmt nýju reglum til að tryggja að ekki verði tafir á afhendingu þeirra. Aðlögunartíminn byggist á áhættuflokki tækjanna, með styttri tíma fyrir tæki í hærri áhættuflokkum.4. Samræmt eftirlit með vottunum: Í reglugerðinni er kveðið á um að nýr eftirlitsaðili taki við eftirliti með tækjum sem fá framlengingu á aðlögunartímabili, þannig að ábyrgðin flytjist smám saman frá fyrri eftirlitsaðila samkvæmt fyrra regluverki.5. Rafræn skráning og skýrslugerð: Reglugerðin setur fram tímamörk fyrir skráningu og uppfærslu gagna í Eudamed, sem nær bæði til framleiðenda og eftirlitsaðila. Þetta er gert til að tryggja gagnsæi og auðvelda rekjanleika tækjanna innan Evrópska efnahagssvæðisins.Áhrif reglugerðarinnar: Reglugerðin hefur í för með sér aukið öryggi sjúklinga og eflir almennt lýðheilsu með því að tryggja stöðuga afhendingu nauðsynlegra lækningatækja til sjúkdómsgreiningar í glasi. Hún minnkar einnig álag með stigvaxandi innleiðingu Eudamed-kerfanna og eykur gagnsæi og eftirlit með stöðu lækningatækja á markaði. Með því að leggja áherslu á upplýsingaskyldu framleiðenda við hugsanlega skort eða stöðvun á afhendingu tækja, verða heilbrigðisyfirvöld betur í stakk búin til að bregðast við vandamálum og tryggja að sjúklingar fái nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Já |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
| Sent til Alþingis | |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Reglugerðin gerir breytingar á tveimur reglugerðum ESB 2017/745 og 2017/746 sem innleiddar eru með lögum um lækningatæki nr. 132/2020. Kallar á lagabreytingu á lögum um lækningatæki, nr. 132/2020. Innleidd í lög um lækningatæki, nr. 132/2020, sbr. https://island.is/stjornartidindi/nr/8a535752-d6d3-4e47-9f4a-a6b35533f7f7 |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Heilbrigðisráðuneytið |
|---|
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024R1860 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/1860, 9.7.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2024) 43 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Ísland) | |
|---|---|
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Noregur) |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 69, 6.11.2025, p. 19 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/2108, 6.11.2025 |
Breytir (Modifies)
| COM(2024) 043 52024PC0043 |
adopts | ||
| 32017R0746 | amends | Regulation (EU) 2017/746 of the European Parliament and of the Council of 5 April 2017 on in vitro diagnostic medical devices and repealing Directive 98/79/EC and Commission Decision 2010/227/EU | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32017R0745 | amends | Regulation (EU) 2017/745 of the European Parliament and of the Council of 5 April 2017 on medical devices, amending Directive 2001/83/EC, Regulation (EC) No 178/2002 and Regulation (EC) No 1223/2009 and repealing Council Directives 90/385/EEC and 93/42/EEC | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 12016E168 | based on |
