32024R2564
Commission Delegated Regulation (EU) 2024/2564 of 19 June 2024 amending Regulation (EC) No 1272/2008 of the European Parliament and of the Council as regards the harmonised classification and labelling of certain substances
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
---|---|
Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 283/2024 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
Staðfestur gildistökudagur | |
Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Um er að ræða framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) um breytingu á 3. hluta viðauka VI. við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008, þar sem mælt er fyrir um samræmda flokkun og merkingu hættulegra efna. Breytingin miðar að því að bæta öryggi og tryggja að flokkun og merking efna sé byggð á bestu vísindalegu þekkingu.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og efnablandna [sem breytir m.a. reglugerð (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni (REACH)], er að tryggja öfluga heilsu- og umhverfisvernd svo og frjálsa dreifingu efna, efnablandna og hluta.Til að ná þeim markmiðum er m.a. lögð áhersla á að samræma viðmiðanir fyrir flokkun efna og efnablandna og reglur um merkingu og pökkun hættulegra efna og efnablandna.Með framseldri reglugerð og viðauka við hana er gerð breyting á töflu 3 í 3. hluta viðauka VI. við reglugerð (EB) nr. 1272/2008, þar sem mælt er fyrir um samræmda flokkun og merkingu hættulegra efna á grundvelli viðmiðana sem kveðið er á um í 2.-5. hluta viðauka I.Breytingunni er ætlað að auka öryggi og tryggja að flokkun og merking efna sé byggð á bestu vísindalegu þekkingu:· Tafla 3.1 hefur verið endurnefnd tafla 3 eftir að töflu 3.2 var eytt.· Ný samræmd flokkun og merkingar fyrir 27 tiltekin efni er bætt við.· Samræmd flokkun og merking fyrir tiltekin 16 efni eru uppfærð.· Samræmd flokkun og merking fyrir tiltekin 7 efni er eytt.Breytingin tekur gildi fyrsta dag mánaðarins að liðnum 18 mánuðum frá gildistökudegi reglugerðarinnar. Frá gildistöku hennar er þó heimilt að haga flokkun, merkingu og pökkun efna og efnablandna í samræmi við breyttan 3. hluta viðauka VI.
Staða innan stjórnsýslunnar
Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
---|---|
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
---|---|
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyting á reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablanda. Reglugerðin er innleidd með tilvísunaraðferð. Lagastoð er að finna í 2. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Áhrif
Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Aukinn kostnaður verður í eftirliti þar sem fleiri atriði bætast við sem þarf að hafa eftirlit með bæði varðandi flokkun og merkingar á umbúðum. |
---|---|
Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Á ekki við: Reglugerðir sem vísað er til í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samn¬ingsins. |
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
---|---|
Ábyrg stofnun | Umhverfisstofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
CELEX-númer | 32024R2564 |
---|---|
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/2564, 30.9.2024 |
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
Dagsetning tillögu ESB | |
---|---|
C/D numer | C(2024)3992 |
Dagsetning tillögu | |
Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
---|---|
Staðfestur gildistökudagur |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Rauð: ESA hefur ekki móttekið Form 1 |
---|