Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2620 að því er varðar kröfur svo telja megi að gróðurhúsalofttegundir séu varanlega efnafræðilega bundnar í vöru. - 32024R2620

Commission Delegated Regulation (EU) 2024/2620 supplementing Directive 2003/87/EC of the European Parliament and of the Council as regards the requirements for considering that greenhouse gases have become permanently chemically bound in a product


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2620 frá 30. júlí 2024 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB að því er varðar kröfur er varða að líta svo á að gróðurhúsalofttegundir séu orðnar varanlega bundnar með efnatengjum í vöru
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framseld reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 183/2025
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Í reglugerð (ESB) 2024/2620 sem hér er til greiningar eru sett fram skilyrði þess að telja megi gróðurhúsalofttegundir sem varanlega efnafræðilega bundnar í vöru. Reglugerðin inniheldur einnig lista yfir vörur sem teljast uppfylla þau skilyrði, en þann lista skal uppfæra m.t.t. beiðna frá lögbærum yfirvöldum, á grundvelli tækniþróunar og nýsköpunar og úrbótum í vöktun og skýrslugjöf.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð ESB 2024/2620 er sett á grundvelli mgr. 3b. í 12. gr. tilskipunar ESB 2003/87/EB (ETS tilskipun). Í þeirri grein kemur fram að ekki er skylt að standa skil á losunarheimildum þegar um er að ræða losun gróðurhúsalofttegunda sem teljast fangaðar og notaðar á þann hátt að þær eru varanlega efnafræðilega bundnar í vöru og losna ekki út í andrúmsloftið við venjulega notkun. Samkvæmt greininni skal Framkvæmdastjórn ESB setja framselda gerð hvað varðar þær kröfur sem uppfylla þarf svo að gróðurhúsalofttegundir teljist varanlega efnafræðilega bundnar í vöru. Í reglugerð ESB 2024/2620, sem hér er til greiningar, eru þessar kröfur settar fram.  CO2 getur talist varanlega bundið í vöru í að minnsta kosti nokkrar aldir eða lengur byggt á tegund efnatengis, eðlilegri notkun sem og líklegum úrgangsfasa vörunnar eftir að endingartíma hennar líkur. Vörur byggðar á karbónötum eru mikið notaðar í byggingariðnaði en karbónöt mynd sterk efnatengi og eru þær byggingarvörur sem byggðar eru á slíkum efnatengjum langlífar og enda líftíma sinn á viðeigandi hátt undir eðlilegum kringumstæðum.   Losun á CO2 frá vöru getur átt sér stað vegna bruna og til þess að tryggja að kolefni haldist varanlega efnafæðilega bundið í vörum sem eru langlífar við eðlilega notkun skal vörunni fargað á annan hátt en með brennslu í sorpbrennslustöðvum við lok endingartíma hennar. Í sorpbrennslustöðum eru t.d. aðstæður sem teljast nægjanlegar til að byrja afkolunarferli (e. decarbonation) og ætti því ekki að líta á kolefni sem fangað er og geymt í vörum sem enda líftíma sinn í brennslu sem varanlega efnabundið.  Þær kröfur sem settar eru fram svo telja megi CO2 sem varanlega efnafræðilega bundið í vöru eru eftirfarandi, sbr. 3. gr reglugerðarinnar ESB 2024/2620:  - CO2 sé efnafræðilega bundið í vöru í gegnum eftirlitsskylt nýtingarferli þar sem hægt er að mæla og ákvarða magn CO2 ígilda sem bundið er í vörunni á meðan á nýtingarferlinu stendur, þó skal ekki taka í reikninginn kolefni sem var til staðar í efninu fyrir nýtingarferlið né það sem er náttúrulega frásogað úr andrúmsloftinu.  - CO2 getur ekki losnað út í andrúmsloftið við eðlilega notkun vörunnar, eða við eðlilega meðferð eftir að endingartíma hennar lýkur, í a.m.k. nokkrar aldir. Ef um er að ræða vörur með fjölbreytta eðlilega notkun og úrgangsfasa þar sem varan getur, við eðlilega notkun, og eftir að endingartíma hennar líkur orðið fyrir háhitabrennslu, svo sem sorpbrennslu skal hún ekki talin binda CO2 varanlega efnafræðilega.   Þær vörur sem teljast uppfylla þessi skilyrði eru taldar upp í viðauka við reglugerðina.  Í 4. mgr. reglugerðarinnar kemur fram að Framkvæmdastjórn ESB skuli endurskoða vörur þær sem eru taldar upp í viðaukanum á grundvelli tækniþróunar og nýsköpunar á sviði varanlegrar bindingar CO2 í vöru, úrbótum í vöktun og skýrslugjöf  sem og reynslu af innleiðingu reglugerðarinnar og skal uppfæra viðaukann ef þörf krefur. Eins skal taka til greina beiðnir frá lögbærum yfirvöldum er varða uppfærslu á listanum. Niðurstöður og gögn um endurskoðun á vörum þeim sem eru á listanum skal birta opinberlega.   Reglugerðin hefur tekið gildi gagnvart aðildarríkjum ESB.   

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Já
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei
Sent til Alþingis

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerð ESB 2024/2620 þyrfti að innleiða hér á landi í reglugerð, þá með breytingu á reglugerð 606/2021 um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir, en þó með tilliti til þess að unnið er að nýrri reglugerð um ETS kerfið.

Reglugerðarheimild vantar í lög nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS lög) til að innleiða reglugerð ESB 2024/2620.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R2620
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/2620, 4.10.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2024)5294
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Ísland)

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 69, 6.11.2025, p. 46
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/2117, 6.11.2025

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Breytir (Modifies)

32003L0087 based on, completes Tekin upp í EES-samninginn og í gildi