Breyting reglugerð 2019/1009 varðandi að setja filmur í efnisþáttaefniviðaflokk 9 - 32024R2787
Commission Delegated Regulation (EU) 2024/2787 of 23 July 2024 amending Regulation (EU) 2019/1009 of the European Parliament and of the Council as regards the inclusion of mulch films in Component Material Category 9
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2787 frá 23. júlí 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1009 að því er varðar að fella jarðþakningarfilmur inn í efnisþáttaefniviðaflokk 9
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Nánari tegund gerðar | Framseld reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.14 Áburður |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 091/2025 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2024/2787 frá 23. júlí 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1009 að því er varðar að setja filmur í efnisþáttaefniviðaflokk 9
Nánari efnisumfjöllun
ESB-áburðarvörur mega aðeins innihalda efni sem tilheyra einum af efnisþáttaefnaflokkum í II. viðauka við reglugerð (ESB) 2019/1009. Í reglugerðinni eru sett skilyrði um að meta viðmið fyrir lífbrjótanleika jarðvegsþekjufilmur með það fyrir augum að þær verði hluti af efnisþáttaefniviðaflokki 9. Filmur (mulch films) eru notaðar til að viðhalda eða vernda eðlis- eða efnafræðilega eiginleika, uppbyggingu eða líffræðilega virkni jarðvegsins, t.d. til að halda vatni í jarðvegi eða auka hitastig. Notkun filma kemur í veg fyrir að illgresi vaxi og því þurfa plönturnar ekki að keppa við illgresi um sólarljós og næringarefni. Þannig getur notkun filma leitt til skilvirkari notkunar á áburði, dregið úr notkun illgresiseyða. Rannsókn sýndi að það eru bæði filmur sem eru lífbrjótanlegar og ólífbrjótanlegar á markaði innanlands. Mæla ætti fyrir um viðeigandi kröfur sem fela í sér lífbrjótanlegar fjölliður í formi filma sem falla undir gildissvið reglugerðar (ESB) 2019/1009. Meta skal lífniðurbrotið bæði í jarðvegi og í vatnsumhverfi.Filmur eru notaðar á jarðveg og eiga ekki að ná til vatnsumhverfis. Þó að ekki sé hægt að útiloka algjörlega flutning á hlutum filmu í vatn þá er dregið úr hugsanlegri áhættu fyrir vatnsumhverfi því að að viðkomandi fjölliður ná aðeins til vatnshlota eftir að niðurbrotið í jarðvegi er þegar hafið. Til að draga enn frekar úr hugsanlegri áhættu skal setja fram kröfur um merkingar og vara endanlega notendur við að nota ekki vöruna nálægt yfirborðsvatnshlotum og til að viðhalda varnarbeltum, í samræmi við landsráðstafanir um notkun áburðar. Ef slíkar reglur eru ekki fyrir hendi skal fara að 3 m lágmarksvarnarbelti. Til að koma í veg fyrir útskolun í vatnshlot og hvetja til lífniðurbrots í jarðvegi skal þar að auki fela í sér leiðbeiningar um að varan sé felld inn í jarðveginn eftir virknitímabilið.Til að tryggja jöfn samkeppnisskilyrði ætti að skrá prófunaraðferðirnar til að sýna fram á samræmi við viðmiðanirnar um lífbrjótanleika. Slíkar prófunaraðferðir eru settar fram í evrópskum eða alþjóðlegum stöðlum og eru því áreiðanlegar og samanburðarnákvæmar.Fjölliður, sem þegar eru í efnisþáttaefniviðaflokki 9, verða að standast prófun á bráðum eiturhrifum á plöntuvöxt, prófun á bráðum eiturhrifum ánamaðka og prófun á nítrunarhömlun með örverum í jarðvegi. Til að tryggja öfluga vernd fyrir heilbrigði manna og umhverfið skulu sömu prófanir einnig gilda um fjölliður í filmum. Þar sem filmur eru notaðar í meira magni í samanburði við aðrar fjölliður í efnisþáttaefniviðaflokki 9 skulu filmufjölliðurnar einnig standast prófun á langvinnum eiturhrifum ánamaðka.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Gerðin verður innleidd með breytingu á reglguerð nr. 543/2024, sem sett er með stoð í lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Atvinnuvegaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024R2787 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/2787, 31.10.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | C(2024)5113 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 46, 24.7.2025, p. 3 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/1381, 24.7.2025 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
|---|---|
| Viðeigandi lög/reglugerði |
|
Breytir (Modifies)
| 32019R1009 | amends, based on | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32019R1009 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1009 frá 5. júní 2019 um reglur um að bjóða ESB-áburðarvörur fram á markaði og um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 1069/2009 og (EB) nr. 1107/2009 og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 2003/2003 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
