32024R2865
Regulation (EU) 2024/2865 of the European Parliament and of the Council of 23 October 2024 amending Regulation (EC) No 1272/2008 on classification, labelling and packaging of substances and mixtures
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með þessari reglugerð eru gerðar ýmsar breytingar á reglugerð (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna (CLP).
Nánari efnisumfjöllun
Við innleiðingu Græna sáttmálans eru í efnastefnu um sjálfbærni settar fram aðgerðir sem krefjast markvissrar endurskoðunar á CLP. Þessi reglugerð felur því í sér ýmsar breytingar á CLP og má skipta breytingunum í þrjá meginhluta:Fyrsti hluti breytinganna samanstendur af fimm leiðum til að greina/þekkja alhliða efnafræðilega hættu og flokka hana.- Samræmdri flokkun fyrir nýju hættuflokkana er forgangsraðað og þróuð eru viðmið til að leiðbeina um innsendingar tillagna um samræmda flokkun.- Framkvæmdarstjórn ESB er veitt heimild til að hefja og fjármagna samantekt málsskjala um samræmda flokkun og getur falið Efnastofnun Evrópu (ECHA) eða Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) að framkvæma slík verkefni.- Hvetja á fyrirtæki til réttrar flokkunar með þremur aðgerðum: rökstuðningur fyrir frávikum, opinberun nafna tilkynnenda og strangur frestur á uppfærslu flokkunar.- ECHA birtir upplýsingar um fyrirhugaðar tillögur og uppfærir upplýsingar á hverju stigi ferilsins við samræmda flokkun og merkingar efna.- Lögbær yfirvöld verða að tilkynna ECHA ákvörðun sína um að samþykkja eða hafna tillögu um endurskoðun á samræmdri flokkun og merkingu. Ef tillögu er hafnað ber stofnuninni að deila þeim upplýsingum með öðrum lögbærum yfirvöldum. Annar hluti breytinga samanstendur af fimm viðbótarráðstöfunum sem snúa að bættum samskiptum vegna hættu.- Skýrari merkingar með lágmarkskröfu um leturstærð og lit.- Sala efna í áfyllanlegum umbúðum er heimiluð fyrir efni sem fela ekki í sér mjög alvarlegar hættur.- Búin er til almennur rammi til að leyfa rafrænar merkingar fyrir efnavörur til viðbótar við merkingar á vörunni sjálfri.- Leyfð er víðtækari notkun flettimiða og veittar eru undanþágur fyrir stórar einingar, t.a.m. eldsneyti, eða litlar pakkningar, t.d. skrifföng. Þriðji hluti breytinga samanstendur af þremur viðbótarráðstöfunum í tengslum við sölu á netinu og tilkynningar til eitrunarmiðstöðva.- Ábyrgð birgja í fjarsölu er skýrð.- Digital Services Act tryggir netviðmót sem styðja upplýsingaskyldu birgja.- Skýrari reglur fyrir tilkynningar til eitrunarmiðstöðva, einnig fyrir dreifingaraðila og endurmerkingar vara. Eftirfarandi breytingar eru því gerðar á CLP:(1) Við 1. mgr. 1. gr. (markmið og gildissvið) er lið (f) bætt við um að tryggja að eftirnotendur, innflytjendur eða dreifingaraðilar, sem vísað er til í málsgreinum 1b og 1c í 45. gr., veiti þar til bærri stofnun viðeigandi upplýsingar í samræmi við VIII. viðauka, til að tryggja fullnægjandi bráðaviðbragð.(2) Við 2. gr. bætast fjórar nýjar skilgreiningar við: áætluð bráð eiturhrif, strikamerki, áfylling og áfyllingarstöð.(3) Í 4. gr. er 3. mgr. skipt út en þar er fjallað um hvernig skuli flokka efni sem hafa samræmda flokkun skv. VI. viðauka.(4) Í 4. gr. bætist ný málsgrein við en efni eða efnablöndur má einungis setja á markað ef birgir innan ESB, tilgreindur á merkingu, uppfyllir skilyrði reglugerðarinnar í atvinnuskyni.(5) Við 5. gr. og 6. gr. er bætt við nýjum lið og nokkrum málsgreinum er breytt.Framleiðendur, innflytjendur eða eftirnotendur verða að meta hvert þekkt innihaldsefni eða efnisþátt efnis eða efnablandna ef um er að ræða tiltekna hættuflokka. Ekki má vanmeta heildaráhrif efnis vegna minna hættulegra eiginleika efnisins í heild, ef einstakir hlutar sýna alvarlega áhættu. Undanþágur geta átt við ef um er að ræða innihaldsefni sem fengin er úr plöntum eða hluta úr plöntum.(6) Í 9. gr. er 3. og 4. mgr. skipt út en þar er fjallað um hvað skal gera ef ekki er hægt að nota viðmið sem um getru í 1. mgr. eða þegar prófunargögn efnablöndu vantar.(7) 10. gr. er skipt út og fjallar um styrkleikamörk og M-stuðla fyrir flokkun efna og efnablandna.(8) 13. gr. er skipt út og fjallar um hvernig skuli ákvarða flokkun efna og efnablandna.(9) b)-lið 3. mgr. 18. gr. er skipt út en vörukenni fyrir blöndu skal auðkenna öll efni í efnablöndunni sem stuðla að flokkun blöndunar sem varðar tiltekna hættuflokka.(10) Nýjum tölulið er bætt við 23. gr. en talið er að sú breyting eigi ekki við um EFTA ríkin þar sem vitnað er í tilskipun sem ekki er innleidd í EES samninginn sem fjallar um vopn (tilskipun (ESB) 2021/555).(11) 2. undirgr. 2. mgr. 24. gr. er skipt út en þar er fjallað um fjárhæð gjalda vegna umsóknar um notkun á annars konar efnaheitis í efnablöndu.(12) 25. gr. er breytt en sú grein fjallar um viðbótarupplýsingar á merkimiðum. (13) 29. gr. er breytt en sú grein fjallar um þær undanþágur sem gilda frá ákvæðum vegna merkinga og umbúða. (14) 30. gr. er skipt út en þar er fjallað um hvenær og hvernig skuli standa að því að uppfæra upplýsingar á merkingum efnavara. (15) 31. gr. er breytt og við bætast nýjar málsgreinar sem fjalla um samanbrjótanlega miða og stafænar merkingar. (16) 6. mgr. 32. gr. er eytt en það snérist um að merkingar sem koma vegna krafa úr landsbundnum lögum en ekki ESB skulu vera í viðbótarupplýsingum á merkimiða vöru. (17) Kafla 3 er bætt við III. bálk og í honum má finna tvær nýjar greinar sem fjalla um snið merkinga. Önnur greinin snýr að áþreifanlegum merkginum á umbúðum og leyfileg merkingaratriði á stafrænu formi. Hin greinin snýr að ítarlegum kröfum varðandi stafrænar merkingar. (18) Nýrri málsgrein er bætt við 35. gr. sem fjallar um þau skilyrði sem þurfa að vera til staðar ef bjóða á fram hættuleg efni eða efnablöndur til neytenda með notkun áfyllingarstöðva. (19) 1. mgr. 36. gr. er aðlöguð með því að skipta út a)-lið og bæta við 6 nýjum liðum, e) – j) en það fjallar um samræmingu flokkunar og merkingar efna í samræmi við 37. gr. Hér er verið að bæta við nýju hættuflokkana. 2. mgr. 36. gr. er uppfærð m.t.t. að vísa í núgildandi sæfivörureglugerð í stað forvera hennar. (20) Ýmsu er breytt og bætt við 37. gr. en í grófum dráttum fjallar greinin um málsmeðferð við samræmingu flokkunar og merkingar efna. Hér er fjallað um einfaldari og skýrari verklag, forgangur hópflokkunar, samhæfða ráðgjöf, skylda til að tilkynna fyrirfram, gjaldskylda tillaga, framsal heimilda og skýrar vísindalegar kröfur fyrir hópflokkun. (21) c)-liður 1. mgr. 38. gr. er skipt út fyrir - sértæk styrkleikamörk, M-þættir eða mat á bráðum eiturhrifum, þar sem við á. (22) 40 .gr. fjallar um þær skyldur um hvenær eigi að tilkynna ECHA um breytingar á upplýsingum efna en sú grein er breytt vegna frekari útskýringa og aukna krafna. (23) Breytingar eru gerðar á 42. gr. til að auka skýrleika á því hvaða upplýsingar ECHA skuli halda úti sem eru aðgengilegar öllum. (24) Í 45. gr. eru breytingar gerðar til að auka skýrleika varðandi tilnefningu á aðila sem skal taka á móti og veita viðbúnað í neyðartilvikum og forvörnum er varðar hættuleg efni. Aðildarríki mega tilnefna ECHA til að vera slíkur aðili. (25) Bætt er við nýrri málsgrein, 1a., við 46. gr. sem fjallar um Market surveillance – Reglugerð (ESB) 2019/1020 . (26) 48. gr. er breytt með eftirfarandi hætti:a) 1. mgr. Í öllum auglýsingum fyrir efni sem er flokkað sem hættulegt skal koma fram hættumerki, varnaðarorð, hættusetningar og viðbótar EUH setningar sem koma fram í II. viðauka. Auglýsing fyrir slíkt efni til sölu til almennings skal þar að auki innihalda: „ Alltaf skal fylgja upplýsingum á merkimiða vöru“b) 2. mgr. Í öllum auglýsingum fyrir efnablöndu sem er flokkuð sem hættuleg eða fellur undir 6. mgr. 25. gr. skal koma fram hættumerki, varnaðarorð, hættusetningar og viðbótar EUH setningar sem koma fram í II. viðauka. Auglýsing fyrir slíkar efnablöndur til sölu til almennings skal þar að auki innihalda: „ Alltaf skal fylgja upplýsingum á merkimiða vöru“c) 3. mgr. Allar auglýsingar fyrir efni eða efnablöndu sem er flokkuð sem hættuleg skal ekki innihalda yfirlýsingar sem eiga ekki að vera á miða eða umbúðum efnisins eða efnablöndunnar í samræmi við 4. mgr. 25. gr.d) 4. mgr. Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. má sleppa hættumerkjum og varnarorðum ef auglýsingin er ekki sjónræn (27) 48a. gr. er bætt við sem nýrri grein og fjallar um fjarsölu en þegar efni og efnablöndur eru settar á markað í gegnum fjarsölu, skal tilboðið innihalda greinileg og sýnileg merkingaratriði sem vísað er til í 17. gr. (28) 50. gr. er breytt með því að auka skyldur ECHA er varðar leiðbeiningar til fyrirtækja og eftirlitsaðila aðildarríkja. (29) 2. mgr. 52. gr. er breytt með því að auka skýrleika á því að framkvæmdarstjórnin skuli setja fram framkvæmdarreglugerðir í samræmi við athugunarmálsmeðferð. (30) Nýjum málsgreinum er bætt við 53. gr. þar sem ákveðnar nýjar skyldur eru settar á herðar framkvæmdarstjórnar ESB meðal annars m.t.t. að meta þróun aðferða, beita sér fyrir samræmingu á viðmiðum á flokkun og merkingu á alþjóðavettvangi og hvaða tækni sé hægt að nota við rafrænar merkingar. (31) 53a. gr. er breytt með því að skipta út 2., 3. og 6. mgr. en þær fjalla um hvernig og við hvaða aðstæður framkvæmdarstjórnin geti sett fram framseldar reglugerðir vegna tiltekinna ákvæða reglugerðarinnar. (32) 53c. gr. er breytt en hún fjallar um aðskildar framseldar gerðir fyrir mismunandi framseld völd og hvernig framkvæmdarstjórnin skal athæfa sig að því. (33) 54. gr. er breytt með eftirfarandi hætti:a) 1. mgr. er breytt - Framkvæmdastjórnin skal njóta aðstoðar nefndarinnar sem komið var á fót með 133. gr. reglugerðar (EB) nr. 1907/2006. Sú nefnd skal vera nefnd í skilningi reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 182/2011.b) 2. mgr. er breytt - Þegar vísað er til þessarar málsgreinar gildir 5. gr. reglugerðar (ESB) nr. 182/2011. (34) Ný grein bætist við, 54a. gr. sem fjallar um skýrslugerð og yfirferð framkvæmdarstjórnarinnar til Evrópuþingsins og á því mögulega ekki við um EFTA ríkin. (35) Tvær nýjar málsgreinar bætast við 61. gr. þar sem gefin er ákveðin aðlögunartími til að merkja efni eða efnablöndur í samræmi við ákvæði sem samþykkt voru fyrir árslok 2024. (36) Breytingar eru gerðar á I. viðauka sem fjalla m.a. um minnstu leyfilega leturgerð á miða til að merkja vörur, bil á milli stafa, litur bakgrunns, leturstærð, nýjar kröfur varðandi samanbrjótanlega merkimiða og lista yfir þær upplýsingar sem mega vera eingöngu á stafrænum merkingum.Fjallað er um merkingar á skotfærum sem er undanskilið frá merkingarkröfum. (37) Breytingar eru gerðar á II. viðauka sem fjalla um kröfur er varða áfyllingarstöðvar og hvaða vörur megi ekki hafa á slíkum stöðvum. Að auki eru gerðar merkingarkröfur vegna blautra sementsblanda og steypu sem eru tilbúin til notkunar og fyrir efni eða blöndu sem er afhent á bensínstöð og dælt beint í ílát sem er óaðskiljanlegur hluti ökutækis. (38) Breytingar eru gerðar á III. viðauka þar sem 2. hluta er skipt út en í þeim hluta er mælt fyrir um almennar meginreglur um gerð málsskjala til að leggja til og réttlæta samræmda flokkun og merkingu. (39) Breytingar eru gerðar á IV. viðauka þar sem uppfærsla á upplýsingum þegar upplýsingar um eldsneyti eða sementi eru lagðar fram. Þessi reglugerð tók gildi 23. október 2024. Sérstakur kafli er settur fram þar sem talið er upp ýmis ákvæði sem koma til framkvæmda seinna þar sem aðlögunartími hefur verið gefinn.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Breyta þarf reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna. Í ljósi fjölda breytinga á henni mætti skoða hvort betur henti að fella hana brott og gefa út nýja. Endurskoða þarf efnalög nr. 61/2013 með síðari breytingum til að innleiða megi þessa reglugerð í íslenskan rétt. Sérstaklega þarf að endurskoða verkaskiptingu stjórnvalda hvað varðar Eitrunarmiðstöð og Umhverfis– og orkustofnun í efnalögum á þann veg að möguleikanum sé haldið opnum að Ísland hafi þann möguleika að tilnefna Efnastofnun Evrópu til að taka á móti upplýsingum hvað varðar viðbúnað í neyðartilvikum og forvarnir, en samkvæmt verkaskiptingu stjórnvalda sem kemur fram í efnalögum nr. 61/2013 hefur Eitrunarmiðstöð hlutverki að gegna varðandi að taka á móti upplýsingum hvað varðar viðbúnað í neyðartilvikum og forvarnir. Skoða þarf hvort þessar breytingar samræmist forsendum EES samningsins. Í staðalskjal með gerðinni var bent á að gera þurfi aðlögun vegna þessara ákvæða. Einnig er vert að skoða hvernig útfæra eigi ákvæði um áfyllingarstöðvar bæði hvað varðar hver fer með eftirlit með slíkum stöðvum og jafnframt að starfsmenn eftirlitsyfirvaldsins fái næga þjálfun til að lágmarka áhættu fyrir neytendur og þá sjálfa. Þetta á einnig við um sérákvæði varðandi merkingar á blautum sementsblöndum og steypu og efnum sem dælt er beint í fasta hluta ökutækja. Varðandi kröfur um auglýsingar annars vegar og upplýsingar sem birtar eru þar sem vara er boðin til sölu í netsölu/fjarsölu hins vegar er mikilvægt að skýra vel hvort það eftirlit heyrir allt undir hlutverk Neytendastofu eins og því er nú lýst í efnalögum eða hvort skýra þurfi hlutverk frekar hvað þetta varðar. Að sama skapi þarf að tryggja að lagastoð sé næg fyrir ákvæðum sem banna að birta með auglýsingum hættuflokkaðra vara yfirlýsingar sem ekki mega vera á umbúðum viðkomandi vöru. Meta þarf hvort ákvæði 2. mgr. 33. gr. efnalaga sé næg lagastoð fyrir þessum ákvæðum. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Kostnaðaraukning ekki ljós en umfang eftirlits útvíkkast og aukin þörf á upplýsingagjöf vegna fleiri krafa og nýrra reglna varðandi nýja hættuflokka, auknar kröfur varðandi upplýsingar á flettimiðum, bætt inn lágmarki fyrir leyfilega leturstærð á miðum, innleiðingu stafrænna merkinga auk nýrra ákvæða um áfyllingastöðvar og eftirlits með stafrænum merkingum og áfyllingarstöðvum sem krafist gæti snjalltækja. Einnig eru nýjar kröfur hvað varðar auglýsingar efnablandna sem eru flokkaðar sem hættulegar og fjarsölu. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024R2865 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/2865, 20.11.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2022) 748 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Tillögur að breytingum (Proposed amendments)
| COM(2025) 526 52025PC0526 |
Regulation (EU) 2025/2439 of the European Parliament and of the Council of 26 November 2025 amending Regulation (EU) 2024/2865 as regards dates of application and transitional provisions | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
Breytt af (Modified by)
| COM(2025) 526 52025PC0526 |
proposes to amend | Regulation (EU) 2025/2439 of the European Parliament and of the Council of 26 November 2025 amending Regulation (EU) 2024/2865 as regards dates of application and transitional provisions | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32025R2439 | amends | Regulation (EU) 2025/2439 of the European Parliament and of the Council of 26 November 2025 amending Regulation (EU) 2024/2865 as regards dates of application and transitional provisions | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
Breytir (Modifies)
| COM(2022) 748 52022PC0748 |
adopts | Regulation (EU) 2024/2865 of the European Parliament and of the Council of 23 October 2024 amending Regulation (EC) No 1272/2008 on classification, labelling and packaging of substances and mixtures | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32008R1272 | amends | Regulation (EC) No 1272/2008 of the European Parliament and of the Council of 16 December 2008 on classification, labelling and packaging of substances and mixtures, amending and repealing Directives 67/548/EEC and 1999/45/EC, and amending Regulation (EC) No 1907/2006 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 12016E114 | based on |
