Ákvörðun um vaktlistaefni til vöktunar í vatnshlotum - 32025D0439

Commission Implementing Decision (EU) 2025/439 of 28 February 2025 establishing a watch list of substances for Union-wide monitoring in the field of water policy pursuant to Directive 2008/105/EC of the European Parliament and of the Council

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.02 Vatn
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 052/2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Í samræmi við tilskipun Evrópusambandsins um umhverfisgæðakröfur (Envrionmental Quality Standards) skal gefa út vaktlista sem samanstendur af efnum sem aðildarríki skulu vakta. Á vaktlistanum eru efni eða efnahópar sem talin eru líkleg til að valda skaða á lífríki en gögn um útbreiðslu og áhrif eru ekki til eða ófullnægjandi og þarf þar af leiðandi að vakta efnin.
Vaktlistinn er endurskoðaður á tveggja ára fresti og má hvert efni aðeins vera fjögur ár á listanum.
Í 19. gr a, reglugerð nr. 535/2011 um flokkun vatnshlota, eiginleika þeirra, álagsgreiningu og vöktun er sett fram krafa um vöktun efna á vaktlista. Þessi ákvörðun Evrópusambandsins hefur ekki í för með breytingar á íslensku regluverki né kostnaðarauka.

Nánari efnisumfjöllun

Í 19. gr. a í reglugerð 535/2011 kemur fram: Vöktun efna á vaktlista fer fram til að safna gögnum á öllu Evrópska efnahagssvæðinu er ætlað að styðja ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins við ákvarðanatöku um þau efni sem skulu vera á skrá yfir forgangsefni, sbr. A-hluta lista III í viðauka með reglugerð nr. 796/1999 um varnir gegn mengun vatns og til að bæta við önnur gögn sem m.a. fást með greiningum og úttektum í tengslum við álagsgreiningu og hættumat skv. 7. gr. og með vöktun skv. 13. gr.Þegar vöktun á einstaka efnum hefur staðið yfir í fjögur ár eru teknar ákvarðanir um áhættu efnanna. Annað hvort eru þau metin hættulaus eða hættulítil umhverfinu eða eru metin skaðleg lífríkinu og verða þar af leiðandi hluti af forgangsefnum (priority substances) til frekari vöktunar.  Forgangslistinn er settur fram í lögum um stjórn vatnamála og í reglugerð nr. 796/1999 um varnir gegn mengun vatns er hann settur fram ásamt umhverfismörkum.Árið 2024 lauk vöktunarskyldu fyrir sex efni eða efnahópa sem höfðu verið á listanum frá árinu 2020 og eru þau því tekin af listanum: sulfamethoxazole, trimethoprim, venlafaxín og umbrotsefni þess O-desmethylvenlafaxín, hópur tíu azólsambanda (clotrimazole, fluconazole, miconazole, imazalil, ipconazole, metconazole, penconazole, prochloraz, tebuconazole og tetraconazole), ásamt sveppalyfjunum famoxadón og dimoxystrobin.Einnig voru azoxystrobin og diflufenican teknin af listanum; azoxystrobin var fjarlægt þar sem gögn bentu til þess að það valdi áhættu í fáum aðildarríkjum og ætti þess í stað að flokkast sem sérstakur mengunarvaldur á landsvísu. Diflufenican var fjarlægt þar sem gögn bentu til að efnið væri hugsanlegur kandídat fyrir forgangsefnaskrá.Fimm efni eða efnahópar eru áfram á lista 2025 síðan árið 2022: fipronil, clindamycin og ofloxacin, metformin og umbrotsefni þess guanylurea, sem og hópur þriggja sólarvarnarefna (butyl methoxydibenzoyl-methane, octocrylene, og benzophenone-3).Til viðbótar við ofangreind efni er eftirfarandi efnum bætt við vaktlistann: sólarvarnarefnið octisalate (2-ethylhexyl salicylate), iðnaðarandoxunarefnið N-1,3-Dimethylbutyl-N’- phenyl-p-phenylenediamine (6PPD) og niðurbrotsefni þess 6PPD-quinone, skordýra- og sníklalyfið abamectin (Avermectin B1a og B1b), nýr hópur tíu azólsambanda (bromuconazole, climbazole, cyazofamid, difenoconazole, epoxiconazole, itraconazole, ketoconazole, mefentrifluconazole, propiconazole og triticonazole), skordýraeiturinn etoxazole, geðlyfin fluoxetine og propranolol og sýklalyfin oxytetracycline og tetracycline.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Umhverfis- og orkustofnun (Umhverfisstofnun) hefur séð um mælingar á vaktlistaefnum og hefur sú fjármögnun fallið innan fjárhagsramma stjórnar vatnamála.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025D0439
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/439, 3.3.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D103185/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 34, 21.5.2026, p. 76
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/972, 21.5.2026

Breytir (Modifies)

32022D1307 repeals Commission Implementing Decision (EU) 2022/1307 of 22 July 2022 establishing a watch list of substances for Union-wide monitoring in the field of water policy pursuant to Directive 2008/105/EC of the European Parliament and of the Council Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
32008L0105 based on Directive 2008/105/EC of the European Parliament and of the Council of 16 December 2008 on environmental quality standards in the field of water policy, amending and subsequently repealing Council Directives 82/176/EEC, 83/513/EEC, 84/156/EEC, 84/491/EEC, 86/280/EEC and amending Directive 2000/60/EC of the European Parliament and of the Council Tekin upp í EES-samninginn og í gildi