32025L0002
Directive (EU) 2025/2 of the European Parliament and of the Council of 27 November 2024 amending Directive 2009/138/EC as regards proportionality, quality of supervision, reporting, long-term guarantee measures, macro-prudential tools, sustainability risks and group and cross-border supervision, and amending Directives 2002/87/EC and 2013/34/EU
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem beðið er afléttingar stjórnskipulegs fyrirvara |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 09 Fjármálaþjónusta, 09.01 Vátryggingar |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 317/2026 |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Tilskipun (ESB) 2025/2 Evrópuþingsins og ráðsins frá 27. nóvember 2024 um breytingu á tilskipun 2009/138/EB að því er varðar meðalhóf, gæði eftirlits, skýrslugjöf, langtímaábyrgðarráðstafanir, þjóðhagsvarúðartæki, sjálfbærniáhættu og eftirlit með hópum og yfir landamæri, og um breytingu á tilskipunum 2002/87/EB og 2013/34/ESB.
Nánari efnisumfjöllun
Meðal breytinga má nefna að meðalhófsreglan á oftar við en áður. Skilgreind verður ný flokkun vátryggingafélaga sem teljast „smá og einföld“ en slík flokkun gerir þeim kleift að beita einfaldari útreikningum auk þess sem stjórnarháttakröfur eru takmarkaðri og skýrslugjöf umfangsminni. Markmið tilskipunarinnar er að styrkja langtímaábyrgðarráðstafanir og draga úr sveifluaukandi áhrifum fjármálamarkaða á eiginfjárkröfur vátryggingafélaga. Leitast er við að tryggja að eiginfjárkröfur endurspegli raunverulega áhættu til lengri tíma og að þær séu ekki óhóflega viðkvæmar fyrir skammtímasveiflum fjármálamarkaða. Vátryggingafélög skulu við eigið áhættu- og gjaldþolsmat taka tillit til þjóðhagsvarúðar og mögulegrar þróunar á fjármálamörkuðum, þ. á m. stýrivaxta og verðbólgu. Vátryggingafélög skulu setja upp áætlun til að bregðast við lausafjáráhættu og uppfæra hana reglulega. Tilskipunin felur í sér breytingar á eftirliti með samstæðum, samvinnu eftirlitsstjórnvalda og reglum um starfsemi yfir landamæri. Heimildir eftirlitsstjórnvalda til að grípa inn í þegar áhætta safnast upp innan samstæðu eru auknar og settar eru skýrari reglur um starfsemi yfir landamæri og upplýsingagjöf um hana. Gerðar eru kröfur um aukna samvinnu og upplýsingaskipti milli eftirlitsaðila heimaríkis og gistiríkis vátryggingafélags ef starfsemi félagsins yfir landamæri telst veruleg. Tilskipunin innleiðir sjálfbærniáhættu í áhættustýringu og stjórnarhætti. Vátryggingafélög þurfa að taka kerfisbundið tillit til loftslagsáhættu, umbreytingaráhættu og annarra sjálfbærniþátta í ákvörðunum sína og meta fjárhagslega áhættu vegna þessara þátta. Einnig eru gerðar breytingar á skýrslugjöf og gagnsæi, þar sem dregið er úr óþarfa upplýsingagjöf án þess að draga úr gæðum eftirlits eða vernd vátryggingataka. Eftirlitsstjórnvöld hafa í vissum tilvikum heimild til að kveða á um örari eða lægri tíðni skýrsluskila ef það er talið nauðsynlegt eða tiltekin skilyrði eru uppfyllt. Eftirlitsstjórnvöld þurfa sérstaklega að meta hvort tiltekin skýrsluskil séu of íþyngjandi fyrir lítil og einföld vátryggingafélög sem og önnur félög sem ekki teljast lítil og einföld.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Já |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyta þarf að lágmarki lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016 og lögum um vátryggingasamstæður, nr. 60/2017. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
|---|
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025L0002 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/2, 8.1.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2021) 581 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Stjórnskipulegur fyrirvari skv. 103. grein (Ísland) | Ísland |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar |
|---|
Breytir (Modifies)
| COM(2021) 581 52021PC0581 |
adopts | Directive (EU) 2025/2 of the European Parliament and of the Council of 27 November 2024 amending Directive 2009/138/EC as regards proportionality, quality of supervision, reporting, long-term guarantee measures, macro-prudential tools, sustainability risks and group and cross-border supervision, and amending Directives 2002/87/EC and 2013/34/EU | Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi |
| 32013L0034 | amends | Directive 2013/34/EU of the European Parliament and of the Council of 26 June 2013 on the annual financial statements, consolidated financial statements and related reports of certain types of undertakings, amending Directive 2006/43/EC of the European Parliament and of the Council and repealing Council Directives 78/660/EEC and 83/349/EEC [Accounting] | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32009L0138 | amends | Directive 2009/138/EC of the European Parliament and of the Council of 25 November 2009 on the taking-up and pursuit of the business of Insurance and Reinsurance (Solvency II) | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32002L0087 | amends | Directive 2002/87/EC of the European Parliament and of the Council of 16 December 2002 on the supplementary supervision of credit institutions, insurance undertakings and investment firms in a financial conglomerate and amending Council Directives 73/239/EEC, 79/267/EEC, 92/49/EEC, 92/96/EEC, 93/6/EEC and 93/22/EEC, and Directives 98/78/EC and 2000/12/EC of the European Parliament and the Council | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 12016E053 | based on |
