Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með uppfærslu á viðaukum við tilskipun 2008/68/EB um flutning á hættulegum farmi á landi er að tryggja að reglur og kröfur um slíkan flutning haldist í takt við vísindalegar og tæknilegar framfarir. Slík uppfærsla á sér stað á tveggja ára fresti. Þessi síðasta uppfærsla tók gildi 1. janúar 2025.Uppfærslan felur í sér:• Samræmingu við alþjóðlegar reglur: Tilvísanir í alþjóðlega samninga eru uppfærðar. Þetta á við um flutning á hættulegum efnum á vegum, þ.e. ADR, flutning á hættulegum efnum á járnbrautum, þ.e. RID og flutning á hættulegum efnum á skipgengum vatnaleiðum, þ.e. ADN. Þessir samningar eru endurskoðaðir reglulega með hliðsjón af nýrri þekkingu, framförum í öryggistækni og nýjasta mati á áhættu.• Bætt öryggi í flutningum: Reglur um flutning á hættulegum farmi eru gerðar öruggari og skilvirkari til að draga úr hættu á slysum á fólki, mengun og skemmdum á umhverfi og eignum.• Lögbundið jafnvægi innan ESB: Tryggt er að öll aðildarríki ESB hafi samræmdar reglur um innlenda flutninga á hættulegum farmi. Það auðveldar frjálsan flutning vöru yfir landamæri innan sambandsins.• Aðlögun að tækninýjungum: Fella nýjungar inn í efni reglna um flutning á hættulegum efnum. Það á við um reglur um umbúðir, um flutningstækni og reglur um aðferðir til að tryggja að flutningskerfi séu áreiðanleg og uppfylli nýjustu kröfur.Þessar breytingar eru nauðsynlegar til að viðhalda háum stöðlum um öryggi- og skilvirkni í flutningum á hættulegum farmi innan ESB. Þær eru hluti af stöðugri þróun reglna á þessu sviði.Aðdragandi : ADR- (Agreement concerning the International Carriage of Dangerous Goods), RID- (Regulation concerning the International Carriage of Dangerous Goods by Rail) og ADN (European Agreement concerning the International Carriage of Dangerous Goods by Inland Waterways)-samningarnir eru uppfærðir á tveggja ára fresti.Hlutar tilskipunar nr. 2008/68/EB hafa að geyma tilvísanir til þessara samninga, sem fjalla um flutninga á hættulegum farmi, hver á sínu sviði. þ.e. hluti I.1 í viðauka I (vegir), hluti II.1 í viðauka II (járnbrautir) og hluti III.1 í viðauka III (skipgengar vatnaleiðir.Breyta þarf viðaukum til samræmis við þær breytingar og felur tilskipun þessi í sér slíka breytingu. Aðildarríkin hafa aðlögunartíma til 30. júní 2025 til að setja lög og reglugerðir til að uppfylla kröfur tilskipunarinnar.Efnisútdráttur; Helstu breytingar sem tilskipunin hefur í för með sér eru þessar: Viðaukar I, II og III eru uppfærðir til að endurspegla nýjustu breytingar á alþjóðasamningunum ADR (vegaflutningar), RID (járnbrautarflutningar) og ADN (skipgengar vatnaleiðir).Þær breytingar sem voru samþykktar af aðilum að ADR, RID og ADN á tímabilinu 2022-2024 eru innleiddar. Þær tóku gildi frá 1. janúar 2025, með aðlögunartímabili fram til 30. júní 2025. Aðildarríkin skulu þannig samþykkja nauðsynleg lög og stjórnsýslufyrirmæli fyrir 30. júní 2025 og senda framkvæmdastjórninni texta ákvæðanna.Í stað hugtaksins „samningsríki“ í ADR, RID og ADN-samningunum er notað hugtakið „aðildarríki“ til að tryggja samræmingu innan ESB.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Um er að ræða breytingar á alþjóðasamkomulagi um hættulega flutninga og hafa þær ekki sérstök áhrif á starfsemi Samgöngustofu þar sem stofnunin hefur ekki eftirlit með framkvæmd reglna um flutning á hættulegum farmi.Enginn flutningur á sér stað hér á landi með lestum eða skipgengum vatnaleiðum og því varðar breytingin hér á landi einungis reglurnar um flutninga á hættulegum farmi á vegum.Áhrifin eru aðallega varðandi tæknilegar útfærslur á ökutækjum hjá framleiðendum.Mögulega þarf Vinnueftirlitið að skoða með uppfærslu á sínu ADR námsefni.Þá þarf lögregla að kynna sér breytingarnar þar sem mögulega er um að ræða breytingu á framkvæmd við flutning á hættulegum farmi.Breytingar sem verða gerðar á lögum eða reglugerðum skal tilkynna til ESA og þær þurfa að koma til framkvæmda fyrir 30. júní 2025Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Innleidd með breytingu á reglugerð nr. 1077/2010 um flutning á hættulegum farmi með lagastoð í 4. mgr. 81. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Enginn kostnaður fyrir Samgöngustofu.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Vinnueftirlitið og lögregla.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Framleiðendur ökutækja og þeir sem útbúa ökutæki til flutnings á hættulegum farmi (ekki gert hérlendis) og þeir sem flytja hættulega farm á vegum.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Ekki um það að ræða