32025R0021
Commission Delegated Regulation (EU) 2025/21 of 19 December 2024 amending Regulation (EU) No 139/2014 as regards requirements for aerodrome operators related to ground handling activities
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/21 frá 19. desember 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 139/2014 að því er varðar kröfur fyrir rekstraraðila flugvallar varðandi starfsemi á sviði flugafgreiðslu
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 219/2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Megintilgangur breytinganna er að auka skipti á gögnum um öryggi milli þeirra sem reka flugvelli og þeirra sem sjá um að veita þjónustu á þeim. Samræma á kröfur um samskipti milli stjórnunarkerfa þeirra sem sinna bæði flugvalla- og flugafgreiðsluþjónustu. Skilgreint er nánar en verið hefur hvar ábyrgð liggur milli mismunandi þjónustuaðila á flugvöllum. Sérstakar kröfur eru settar um geymslu hættulegra efna og meðferð hleðslueiningarbúnaðar. Nýjar og nákvæmar kröfur eru settar um öryggi vegfarenda við eldsneytisgjöf á flughlöðum. Ekki áhrif hér á landi önnur en að uppfæra þarf verklagsreglur og stjórnunarkerfi. Ekki kostnaður.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Megintilgangur breytinganna er að auka skipti á gögnum um öryggi milli þeirra sem reka flugvelli og þeirra sem sjá um að veita þjónustu á þeim. Samræma á kröfur um samskipti milli stjórnunarkerfa þeirra sem sinna bæði flugvalla- og flugafgreiðsluþjónustu. Skilgreint er nánar en verið hefur hvar ábyrgð liggur milli mismunandi þjónustuaðila á flugvöllum. Sérstakar kröfur eru settar um geymslu hættulegra efna og meðferð hleðslueiningarbúnaðar (ULD). Nýjar og nákvæmar kröfur eru settar um öryggi vegfarenda við eldsneytisgjöf á flughlöðum.Gildistaka: Reglugerðin tekur gildi 20 dögum eftir birtingu í Stjórnartíðindum ESB. Hún verður bindandi frá og með 27. mars 2028. Aðdragandi: Reglugerð ESB nr. 139/2014 fjallar um kröfur til þeirra sem reka flugvelli. Ekki var tekið nægilegt mið af tengslum þeirra við flugafgreiðslu, hvorki þegar þeir veita hana sjálfir né þegar þeir fá aðra til að sjá um hana. Það hefur leitt til þess að ekki er ljóst hvar ábyrgð liggur á flughlaði, tvíverknaðar og ósamræmis í stjórnunarkerfum og skorts á upplýsingastreymi um öryggisatvik.Efnisútdráttur: Breytingar eru gerðar á viðaukum III og IV við reglugerð (ESB) nr. 139/2014 þar sem áhersla er lögð á að:• styrkja öryggiskröfur til flugafgreiðslu á flugvöllum• samræma ábyrgð þeirra sem reka flugvelli og þeirra sem sjá um flugafgreiðslu• bæta flæði upplýsinga milli hagsmunaaðila um frávik • samþætta stjórnunarkerfi ef fleiri en eitt leyfi er á sömu hendi skv. reglugerð (ESB) 2018/1139• tryggja lágmarksskilyrði fyrir geymslu hættulegra efna og hleðslueiningarbúnaðar, e. unit-load device.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Uppfæra þarf verklagsreglur og stjórnunarkerfi. Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 20. gr., 72. gr. og 152. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 75/2016 sem innleiðir (ESB) 139/2014 um kröfur og stjórnsýslumeðferð er varða flugvelli samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008. Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Enginn viðbótarkostnaður. Tilgreining á hagsmunaaðilum: þeir sem veita þjónustu á sviði flugafgreiðslu, Samgöngustofa. Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð er að finna í 20. gr., 72. gr. og 152. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Innleidd með breytingu á reglugerð nr. 75/2016 um kröfur og stjórnsýslumeðferð er varða flugvelli samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Ekki áhrif hér á landi önnur en að uppfæra þarf verklagsreglur og stjórnunarkerfi. Ekki kostnaður. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025R0021 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/21, 7.3.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | C(2024)8927 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur |
Breytir (Modifies)
| 32018R1139 | based on | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32014R0139 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | transport infrastructure, provision of services, civil aviation, air safety, air traffic, ground handling, ground staff |
|---|---|
| Subject matter | Transport |
