32025R0022

Commission Delegated Regulation (EU) 2025/22 of 19 December 2024 amending Delegated Regulation (EU) 2022/1645 as regards requirements on information security for organisations providing ground handling services


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 219/2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Um er að ræða útvíkkun á gildisviði krafna sem gerðar eru í reglugerð 2022/1645 um aðgerðir á sviði upplýsinga verndar til þess að verja kerfi sem notuð eru við flugstarfsemi og stuðla þannig að auknu flugöryggi. Reglugerðin nær nú einnig til fyrirtækja sem veita flugafgreiðsluþjónustu. Lítill kostnaður sem fellur undir reglubundna starfsemi Samgöngustofu. Áhrif eðlileg.

Nánari efnisumfjöllun

Almennt: Um er að ræða útvíkkun á gildisviði krafna sem gerðar eru í reglugerð 2022/1645 um aðgerðir á sviði upplýsinga verndar til þess að verja kerfi sem notuð eru við flugstarfsemi og stuðla þannig að auknu flugöryggi. Reglugerðin nær nú einnig til fyrirtækja sem veita flugafgreiðsluþjónustu, e. ground handling services.Meginbreytingar 1. gr., þ.e. karfa um upplýsinga vernd sem gerð er til flugafgreiðsluþjónustuaðila, taka gildi 27. mars 2031. Breytingar á viðauka (2. gr.) taka gildi 16. október 2025. Þetta á við aðila sem falla undir reglugerð (EBS) 2025/20 sem:•      þjónustu sinnar vegna safna, geyma, greina eða vinna með á annan hátt upplýsingar/gögn frá þriðja aðila, eða •      útvega flugrekendum gögn til notkunar í flugrekstri.Yfirstjórn og upplýsingastjórnkerfiÞessi fyrirtæki eru undir yfirlýsingarfyrirkomulagi, e. declaration regime, sem þýðir:•      Að þau þurfa ekki að fá handbækur eða ferla um breytingastjórnun formlega samþykkta af yfirvöldum.•      En þau bera ábyrgð sjálf á að innleiða viðeigandi stjórnunarkerfi.Skýrslugjöf um upplýsinga vernd – ný krafa.•      Skylda til að fylgja ákvæðum IS.D.OR.230 um ytri tilkynningar upplýsingaverndaratvika. •      Þetta á jafnframt við um fyrirtæki sem þegar uppfylla kröfur samkvæmt ESB 2015/1998 um flugvernd sem nær til upplýsinga verndar.Eftirlitsyfirvöld skilgreind•      Samkvæmt reglugerð (ESB) 2025/23 en í henni er skilgreint hver fer með hlutverk lögbærs yfirvalds í málum tengdum flugafgreiðslu. Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Samgöngustofa er það yfirvald sem tekur við hlutverki lögbærs yfirvalds/eftirlitsstjórnvalds samkvæmt reglugerðinni, eins og það er útfært í reglugerð (ESB) nr. 2025/23, þ.e. yfirumsjón og eftirlit með þeim sem veita flugafgreiðslu og breytingum á (ESB) 2022/1645.Þar sem um breytingu er að ræða á gildissviði reglugerðar (ESB) 2022/1645 verður ekki um mikla viðbót að ræða frá því sem SGS þarf til að koma á stofn við innleiðingu þeirrar gerðar á Íslandi. Viðbótin felst í þeim aðilum sem eru eingöngu að sinna flugafgreiðslu en falla ekki þegar undir gildissvið annað hvort (ESB) 2022/1645 eða 2023/203. Þegar þessi gerð tekur gildi verður eftirliti með flugafgreiðslu væntanlega komið á fót. Í þess felst lítil viðbót við verkefni SGS.Áhrifin verða þó á þessa tilteknu aðila. Þeir eru einhverjum tilvikum litlir og munu þurfa að koma sér upp kerfi, þ.m.t. þekkingu og hæfni, til að tryggja upplýsinga vernd. Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 20. gr., 72. gr. og 152. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Gerðina ætti að innleiða með breytingu á þeirri reglugerð sem innleiðir (ESB 2022/1645 og (ESB) 2023/203 um upplýsinga vernd. Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Ekki teljandi kostnaður fyrir SGS sbr. ofangreint. Einhver kostnaður fyrir leyfishafa sem eingöngu eru flugafgreiðsluaðili sbr. einnig ofangreint. Tilgreining á hagsmunaaðilum: Veitendur flugafgreiðslu.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í 20. gr., 72. gr. og 152. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Gerðina ætti að innleiða með breytingu á þeirri reglugerð sem innleiðir (ESB 2022/1645 og (ESB) 2023/203 um upplýsinga vernd.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Lítill kostnaður sem fellur undir reglubundna starfsemi Samgöngustofu. Áhrif eðlileg.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R0022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/22, 7.3.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2024)8928
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur