Cyber Solidarity Act - 32025R0038

Regulation (EU) 2025/38 of the European Parliament and of the Council of 19 December 2024 laying down measures to strengthen solidarity and capacities in the Union to detect, prepare for and respond to cyber threats and incidents and amending Regulation (EU) 2021/694 (Cyber Solidarity Act)


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 11 Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið, 11.01 Fjarskiptaþjónusta

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Markmið reglugerðarinnar er að efla samstarf innan ESB á sviði netöryggis, þá sérstaklega þegar kemur að viðbúnaði, viðbrögðum og greiningu á netöryggisógnum og atvikum. Til að efla samstarfið verður eftirfarandi komið á fót: Evrópskum netöryggiskildi (e. European Cyber Shield) Neyðarkerfi netöryggis (e. Cyber Emergency Mechansims) Endurskoðunarkerfi fyrir netöryggisatvik (e. Cybersecurity Incident Review Mechanism)

Nánari efnisumfjöllun

Almenn markmið – I. kafli:Markmið reglugerðarinnar er að efla samstarf innan ESB á sviði netöryggis, þá sérstaklega þegar kemur að viðbúnaði, viðbrögðum og greiningu á netöryggisógnum og atvikum. Til að efla samstarfið verður eftirfarandi komið á fót:Evrópskum netöryggiskildi (e. European Cyber Shield)Neyðarkerfi netöryggis (e. Cyber Emergency Mechansims)Endurskoðunarkerfi fyrir netöryggisatvik (e. Cybersecurity Incident Review Mechanism)Evrópski netöryggisskjöldurinn – II. kafli:Komið yrði á fót svokölluðum netöryggisskildi, en markmiðið með honum er að þróa getu fyrir ESB til að greina og vinna úr gögnum um netöryggisógnir og atvik. Verkefni þessu tengt verða fjármögnuð af Digital Europe áætluninni.Landsbundin SOC (e. National SOCs) og milliríkja SOC (e. Cross-border SOCs) innan ESB munu mynda Evrópska netöryggisskjöldinn. Hvert þátttökuríki tilnefnir landsbundið SOC í samstarfið.Í tillögunni er vísað í væntanlegt kall í tengslum við Digital Europe áætlunina sem styður við uppbyggingu á landsbundnum SOC; næsta kall verður birt í lok ágúst/ byrjun september 2023.Ísland er í samstarfi við hin Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin í að mynda milliríkja SOC. Sjá í málaskrá HVIN23010019. Það samstarf er leitt af varnarmálaráðuneyti Danmerkur. Nánari skilgreiningar á milliríkja SOC eru að finna í tillögunni.Neyðarkerfi netöryggis – III. kafli:Neyðarkerfi netöryggis á að bæta áfallaþol ESB vegna netárása, þ.e. að draga úr áhrifum verulegra eða stórfelldra netöryggisatvika. Innleiðing kerfisins yrði fjármögnuð af Digital Europe áætluninni og myndi samanstanda af aðgerðum sem styðja við viðbúnað, samræmdum prófunum aðila úr mikilvægum geirum, viðbragða og endurreisn vegna alvarlegra netöryggisatvika.Viðbúnaðaraðgerðir neyðarkerfis netöryggis fælu í sér samræmdar prófanir aðila sem falla undir skilgreiningu „mikilvægra geira“ (e. entities operating in highly critical sectors); skilgreiningar miðast við NIS 2 tilskipunina (viðauki I). Til þess að bregðast við umtalsverðum eða stórfelldum atvikum yrði settur á fót netöryggisvarasjóður ESB, þar sem hægt yrði að óska eftir sérstakri viðbragðsþjónustu frá viðurkenndum aðilum. Viðbragðsaðilar/CSIRTs teymi aðildarríkja ásamt stofnunum ESB geta nýtt sér þessa þjónustu. Framkvæmdastjórn ESB myndi bera ábyrgð á rekstri og framkvæmd sjóðsins, með stuðningi frá ENISA.Þriðju lönd geta óskað eftir stuðningi frá netöryggissjóði ESB, ef samið hefur verið um það í tengslum við þátttöku þeirra í Digital Europe áætluninni. Endurskoðunarkerfi fyrir netöryggisatvik - IV. kafliAð beiðni framkvæmdastjórnarinnar, EU-CyCLONe eða CSIRTs netsins, ætti ENISA að endurskoða og meta ógnir, veikleika og mótvægisaðgerðir með tilliti til sérstaks verulegs eða stórfellds netöryggisatviks. ENISA myndi afhenda mat sit í formi atviksendurskoðunarskýrslu til CSIRTs netsins, EU-CyCLONe og framkvæmdastjórnarinnar; skýrslan ætti að innihalda upplýsingar um lærdóm vegna atvika og úrbótatillögur.Lokaákvæði – V. kafliLokákvæði tillögunnar fela í sér nauðsynlegar breytingar á Digital Europe áætluninni, ásamt skyldum framkvæmdastjórnar ESB um að gera skýrslu um mat og endurskoðun reglugerðarinnar sem lögð er fyrir Evrópuþingið og ráðið.Jafnframt fengi framkvæmdastjórnin umboð til að útbúa innleiðingargerðir.Fjármögnun Cyber Solidarity ActSamkvæmt tillögu ESB um Cyber Solidarity Act, yrðu 100 milljónir evra endurúthlutað úr öðrum stefnumarkandi markmiðum Digital Europe áætlunarinnar í netöryggishluta áætlunarinnar (Strategic Objective ‘Cybersecurity’). Heildarfjármögnun netöryggishluta Digital Europe áætlunarinnar yrði 842,8 m. evra. Að óbreyttu þýðir þetta að útgjöld í Digital Europe áætlunina munu ekki aukast með tilkomu Cyber Solidarity Act.Tilfærsla 100 m. evra yrðu nýttar í aðgerðir í tengslum við miðlægar vöktunarmiðstöðvar fyrir netöryggi (e. Security Operation Centres, SOCs). Jafnframt yrði hluti af fjármagninu nýttur til að stofna netöryggisvarasjóð ESB (e. EU Cybersecurity Reserve).Mikilvægt er að fylgjast með fjármögnunarútfærslu á Cyber Solidarity Act, sem mun að öllum líkindum taka breytingum í umræðum Evrópuþingsins og Ráðsins.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R0038
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/38, 15.1.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2023) 209
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytt af (Modified by)

COM(2025) 342
52025PC0342
based on
32025D1458 based on Council Implementing Decision (EU) 2025/1458 of 14 July 2025 authorising support from the EU Cybersecurity Reserve for Moldova Finna má upplýsingar um stöðu gerðar neðar
32025C00310 work related to work

Breytir (Modifies)

COM(2023) 209
52023PC0209
adopts Regulation (EU) 2025/38 of the European Parliament and of the Council of 19 December 2024 laying down measures to strengthen solidarity and capacities in the Union to detect, prepare for and respond to cyber threats and incidents and amending Regulation (EU) 2021/694 (Cyber Solidarity Act) Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32021R0694 amends Regulation (EU) 2021/694 of the European Parliament and of the Council of 29 April 2021 establishing the Digital Europe Programme and repealing Decision (EU) 2015/224 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
12016E322 based on
12016E173 based on

Samantekt EUR-Lex