32025R0877

Commission Regulation (EU) 2025/877 of 12 May 2025 amending Regulation (EC) No 1223/2009 of the European Parliament and of the Council as regards the use in cosmetic products of certain substances classified as carcinogenic, mutagenic or toxic for reproduction


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/877 frá 12. maí 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á tilteknum efnum, sem eru flokkuð sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða sem efni sem hafa eiturhrif á æxlun, í snyrtivörur
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.16 Snyrtivörur
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 283/2025
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur varðandi CMR-efni (krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun). Breytingar fela í sér að uppfæra skrá í II. viðauka yfir innihaldsefni sem eru ekki leyfileg í snyrtivörum og skrá í III. viðauka yfir innihaldsefni sem falla undir skilyrði varðandi notkun í snyrtivörum.

Nánari efnisumfjöllun

Með reglugerðinni er verið að breyta reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
Samkvæmt 1. mgr. 15. gr. reglugerðar (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur skulu efni sem eru flokkuð sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun (CMR) í undirflokki 1A, 1B eða flokki 2 vera bönnuð í snyrtivörum nema að þau falli undir undantekningar sem eru tilgreindar í seinni setningu 1.mgr. 15. gr. eða í annarri undirmálsgrein 2. mgr. 15. gr. í áðurnefndri reglugerð.
Í samræmi við framselda reglugerð (ESB) 2020/1182, sem kom til framkvæmda þann 1. mars 2022, þá er efnum sem flokkuð eru sem CMR efni samkvæmt hættuflokkun í samræmi við reglugerð (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna einnig bætt við eða fjarlægð af listum um efni sem eru bönnuð eða háð takmörkunum í viðaukum II. og III. í reglugerð (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.Þær breytingar sem gerðar eru á reglugerð (EB) nr. 1223/2009 eru að mestu til samræmingar við breytingar sem orðið hafa á reglugerð (EB) nr. 1272/2008 og eru sem hér segir:a) Í lista yfir efni sem falla undir skilyrði varðandi notkun í snyrtivörum í III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1223/2009 er færsla 311 fjarlægð þar sem Trímetýlbenzóýl Dífenýlfosfínoxíð er flokkað sem CMR efni í flokki IB (eiturhrif á æxlun) og er því ekki leyfilegt til notkunar í snyrtivörur lengur og efninu er einnig bætt við á lista yfir efni sem eru ekki leyfileg í snyrtivörum í II. viðauka reglugerðarinnar.b) Efnum sem flokkuð voru sem CMR efni er bætt við lista við efni sem eru ekki leyfileg í snyrtivörum í II. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, alls 21 efni og einnig er færslu 1580 skipt út á þann hátt að færslan innihaldi líka efnaheiti efnisins sem kemur fram í samsvarandi færslu í reglugerð 1272/2008, þannig að bæði efnaheiti efnisins og bæði CAS númer þeirra komi fram í færslunni til samræmis.Nýjum færslum er bætt við eða felldar út í II. og III. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1223/2009 í eins og fram kemur í viðauka við þessa reglugerð.
Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og kemur til framkvæmda 1. september 2025.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur sem innleiðir reglugerð (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur hér á landi. Reglugerðin er innleidd með tilvísunaraðferð. Lagastoð er að finna í 7. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R0877
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/877, 13.5.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D101967/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 26, 16.4.2026, p. 56
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/628, 16.4.2026

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt
Viðeigandi lög/reglugerði

Breytir (Modifies)

32009R1223 amends, based on Tekin upp í EES-samninginn og í gildi